Skátaforinginn - 01.06.1991, Blaðsíða 15

Skátaforinginn - 01.06.1991, Blaðsíða 15
GILWELL '91 TEXTI: GUÐMUNDUR PALSSON MYND: HELGIEIRIKSSON Gilwell-námskeift veröur haldið aö Úlfljóts- vatnl vikuna 24. ágúst tll 1. september 1991. Aöelns komast 24 þátttakendur aö á námskeiölö svo þaö er ekkl selnna vænna heldur en aö láta skrá sig strax! Námskeiðið er ætlað sveitar- foríngjum en auövitað er það gagnlegt öllum eldrí skátum sem gegna ábyrgðarstöðum innan hreyfingarinnar. Nú, svo hafa margir skellt sér á nám- skeið svona rétt til að hlaða batteríin á ný! Stjómandi nám- skeiðsins er Björgvin Magnús- son og hefur hann fengið til liðs við sig valinkunnan hóp skáta sér til aöstoöar. Segja má að námskeiðið bygg- ist upp af þremur meginþátt- um. í fyrsta lagi UPPLIFUN sem felst í verklegri þjálfún þar sem þátttakendur læra með því að framkvæma sjálfir. Áhersla er lögð á gru ndvallaru ppeld isað- ferð skátahreyfingarinnar, ken- nslu í umgengni við náttúruna og að geta bjargað sér. í öðru lagi er áhersla lögð á HUG- MYN DAFRÆÐI HREYFINGAR- INNAR, bakgrunn hennar, upp- eldisleg markmið og skátaverk- efni. í þriðja lagi er lögð áhersla á SVEITARFORINGJ- ANN SEM STJÓRNANDA. Farið er vel í hlutverk sveitarforingj- ans sem stjómanda og skipu- leggjanda jafnt í starfi sem leik. Þessi námskeið eru vægast sagt stórkostleg og eitt ævintýri frá upphafi til enda - spurðu bara einhvem sem hefur tekið þáttl! Skráning og nánari upp- lýsingar fást á skrifstofú BIS í sfma 91-23190. ÚTILÍFSSKÓLINN TEXTI: GUÐMUNDUR PÁLSSON Fyrír nokkrum árum fór skátafélagið Dalbú- ar af staö meö útilífs- skóla og var barnið skírt ÚTILÍFSSKÓLINN. Fljótlega óx starfsem- inni fiskur um hrygg og fyrir 3 árum fengu Dalbúar til liðs vlö sig félaga sína úr Voga- hverfi, Skátafélagið Skjöldunga. Skólinn hefur staðið fyrir marg- þættri starfsemi, allt frá ævintýraferðum á kanóum, hellaferðum og útilífsnámskeiðum fyrir börn og unglinga. Hér á eftir fer úrdrátt- ur úr kynningarbæk- lingi sem skólinn hefur látiö útbúa. ÚTILÍFSSKÓLINN hefúr nú um árabil boðið bömum og ungling- um í Reykjavík upp á spennandi útilífsnámskeið þar sem þátttak- endum er gefinn kostur á fjöl- breyttri dagskrá og upplifun úti í náttúrunni. Markmlö Útilífsskólans MARKMIÐ skólans eru mark- mið skátastarfsins; að þroska böm og ungt fólk til að verða sjálfstæðir, virkir og ábyrgir ein- staklingar í samfélaginu. Hóp>- vinna, þroskandi viðfangsefni af ýmsu tagi og útilíf em megin- þættimir í starfi skólans. Blönduö námskelö STARFSEMI skólans hefur fram að þessu verið tvíþætt. Annars vegar hefúr verið um að ræða almenn námskeið og hins vegar sérstök námskeið fyrir fatlaða. í sumar munu þessi námskeið verða sameinuð og munu fatlað- ir og ófatlaðir starfa saman. Fjöldl þátttakenda og aldur FJÖLDI þátttakenda á hvert námskeið er 20 böm á aldrinum 8 til 12 ára og þar af munu 3-6 pláss vera ætluð fötluðum. Það er trú aðstandenda skólans að það sé rétt að blanda saman þessu hópum. Á þann hátt vilj- um við auka skilning heilbrigðra bama á födun og þörfum fatl- aðra auk þess að gefa fötluðum kost á krefjandi starfi. Dagskráln DAGSKRA námskeiðanna er sem fyrr segir fjölbreytt og spennandi. Hver dagur hefur ákveðið þema þar sem þátttak- endur fá fræðslu og tældfæri tíl að reyna ýmsa þætti. Lokapunkt- urinn á námskeiðunum er svo útilega þar sem þátttakendur fá að spreyta sig á ýmsum verkefn- um sem byggja á þemum fyrri daga á námskeiðinu. Tveggja vikna námskelð LENGD hvers námskeiðs er 2 vikur. Bömin koma saman á öll- um virkum dögum og hefst dag- skráin kl. 10.00 og stendur tíl kl. 16.00 dag hvem. Bömin mæta í skátaheimilið í Sólheimum 21a. Húsið opnar kl. 09.00 og verður opið tíl kl. 17.00. Bömunum er frjálst að koma efdr kl. 09.00 og vera tíl ld. 17.00 ef það hentar. Tímasetningar HALDIN verða fjögur námskeið í sumar og eru tímasetningar þeirra sem eftír eru semhér segir: III. 08. júlf tíl 19- júlí IV 06. ágúst tíl 16. ágúst. Kostnaður ÞÁTTTÖKUGJALD er kr. 6.500,- \hkin er athygli á því að innifalið í verðinu er útílegan í lok nám- skeiðsins þar sem m.a. verður fúllt fæði fýrir þátttakendur. Skráning Skráning og nánari upplýsingar fást á skrifstofu skólans í Skáta- húsinu Snorrabraut 60 2.h. og í síma 91-621390 alla virka daga frá kl. 12.00 tíl 14.00. Óendur- kræft staðfestingargjald, kr. 1.500.-, greiðist við innritun. Þátttökugjald skal greitt að fullu í síðasta lagi viku fyrir upphaf námskeiðs. Sé það ekki gert skoðast plássið laust. Annaö Ðömin skulu klæðast með tíiiití tíl veðurs og vera við því búin að vera útívið allan daginn. Gert er ráð fyrir því að bömin hafi með sér nesti nema þegar farið er í útíleguna. ÚTILÍFSSKÓLINN er rekinn af skáta- félógunum Dalbúum og Skjöldung- um en þau starfa f Laugarnes- og Vogahverfi. Skólinn er rekinn í samvinnu viö Bandalag fslenskra skáta, Skátasamband Reykjavfkur, Landssamtökin Þroskahjálp og Ör- yrkjabandalag íslands. ÚTILlFS- SKÓLINN fœr fjárstyrk frá íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur. SKÁTAFORINGINN -15

x

Skátaforinginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátaforinginn
https://timarit.is/publication/909

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.