Skátaforinginn - 01.06.1991, Blaðsíða 30

Skátaforinginn - 01.06.1991, Blaðsíða 30
HUGMYNDA SMIÐJAN UMSJON: INGIBJORG EIRIKSDOTTIR Skemmtllegar hug- myndlr má fá hvaöan- æva að, t.d. úr bókum og blöðum, frá gömlum skátum, í forlngja- flokknum, á námskelð- um o.s.frv. o.s.frv. Marga hefur langað til að sjá meira af slíku efni hér í blaðinu og eins og sjá má hefur nú verið ákveðið að bæta þar úr. í þetta skipti birtast nokkrar hugmyndir um það hvcmig kenna má á átta- vita. En til að geta haidið hug- myndaflæðinu áfram þörfnumst við ykkar hjálpar. Hvort sem þú ert starfandi skáti eða einn af þessum "gömlu" leikur enginn vafi á því að þú átt eitthvað skemmtilegt í pokahominu, sem við hin gætum haft gaman af að prófa. Því væri það vei þegið ef þú tæidr þér penna í hönd, kæmir einhverju niður á blað og sendir það til okkar. Utanáskriftin er: Skátaforinginn, Pósthólf 831, 121 Reyiqavík. ÁTTIRNAR Flokksleikur, inni. Efni/óhöld: Stórt karton og túss, 8x2 samstse&ir hlutir og skrif- færi. Teiknið upp stórt áttavitahús og skiptið því í 16 hluta; einn fyrir hverja átt (sjá mynd). Að því loknu setjið þið einn hlut á hvem hluta, þó þannig að tveir og tveir tilheyri hvor öðrum; t.d. gosílaska og tappi, þvotta- poki og sápa o.s.frv. Skátamir eiga nú að finna út hvaða tveir og tveir hlutir eiga saman og skrifa niður áttir þeirra, t.d. SV- NNA fyrir gosflöskuna og tapp- ann. Fyrir þá eldri má útfæra leikinn sem Kimsleik, þ.e.a.s. gefa skátunum ákveðinn tíma til að horfa á "áttavitann" og skrifa svo niður á sama hátt og gert var í fyrra skiptið. HEIMSHORNIN Flokks- eöa sveitarleikur, inni/úti. Efni/óhöld' Klútur og dagblafi. Skátarnir standa í hring og mynda "lifandi áttavita". í miðjunni stendur "áttavitanái- in" (einn skátanna) með bund- ið fyrir augun og samanrúllað dagblað í höndinni. Hún snýr sér í tvo hringi og að því loknu gefúr foringinn upp einhverja átt, sem "áttavitanálin" á þá að finna út og slá laust mað blað- inu í þann skáta sem táknar viðkomandi átt. Annars vegar má hafa leikinn þannig að svo lengi sem "áttavitanálin" gerir rétt fái hún að vera inni í hringnum eða hins vega þann- ig að skipt sé um áttavitanál ef hún vísar í rétta átt. BUIÐ TILYKKAF? EIGINN ÁTTAVITA! EFNI OG ÁHÖLD: Fjöður úr þunnu stáli, u.þ.b. 4-5 cm löngu (t.d úr gamatli vekjaraklukku), 1-2 segulstál, trékubbur og nagli. LÝSING: Byrjið á því að gera litla hoiu (ekki gat) á miðja fjöðrina og neglið naglann í gegn um tré- kubbinn. Næst gerið þið fjöðrina segulmagnaða með því að draga mínusskaut segul- stáisins eftir henni frá þeim enda sem þið viljið að vísi til suðurs að hinum endanum, lyftið því frá og endurtakið þetta svolitla stund, eða þar til fjöðrin er orðin segulmögn- uð. Einnig má segulmagna fjöðrina á annan hátt, sem í raun er einfaldari, en sú að- ferð felst í því að leggja tvö segulstál við sinn hvom enda fjöðurinnar; plússkaut öðru megin, en mínusskaut hinum megin og bíða svo svolitla stund. Þegar þessu er lokið skuluð þið tylla fjöðrinni á odd naglans og sjá hvað gerist. En ekki er allt búið enn, því hér er önnur aðferð, sem ekki er síðri: EFNI OG ÁHÖLD: Saumnál, korkbútur, 1-2 seg- ulstál og skál með vatni í. LÝSING: Skerið korkbútinn til, ef þess gerist þörf, svo hann verði rétt nógu stór til að fljóta með nál- ina á vatninu. Gerið svo saumnálina segulmagnaða á sama hátt og stálfjöðrina áð- an. Að því loknu skuluð þið leggja nálina ofan á korkbút- inn og síðan ailt saman ofan í vatnsskálina. Þá ætti nálin, eins og stálfjöðurin áðan, að vísa til norðurs-suðurs. Til að gera verkið fullkomið getið þið svo sett nálina og korldnn í kmkku, en breidd hennar þarf að vera örlítið meiri en lengd nálarinnar. Utan á krukkuna merldð þið áttimar (N,S,A og V) og skellið svo loki yfir hana. HÉR Á SfÐUNNI ERU ÞRÍR SKEMMTILEGIR ÁTTAVITALEIKIR SEM ÞIÐ ÆTTUÐ AÐ PRÓFAI ULFALDAR í EYÐIMÖRK Flokks- eöa sveitarleikur, inni/úti Efni/óhöld: Engin. Skátamir ráfa um herbergið og ímynda sér að þeir séu úlf- aldar í eyðimörk. Þegar for- inginn hrópar t.d. "sandbylur frá suðaustri" - eða úr ein- hverri annarri átt - eiga úlfald- amir aö snúa baki í suðaustur. Því oftar sem vindurinn snýst, þeim mun skemmtilegri verð- ur ieikurinn. 30 - SKÁTAFORINGINN

x

Skátaforinginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátaforinginn
https://timarit.is/publication/909

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.