Skátaforinginn - 01.06.1991, Blaðsíða 8
I BRETArWí//
Gilwell Park
TEXTI & MYND: JÚLÍUS AÐALSTEINSSON
Á ferö um London í
nóvember síttast liðn-
um áttum vltt
Guttmundur Pálsson
þess kost att helm-
sækja Gilwell Park,
þjálfunarmlttstöð og
útilífssvæðl breska
drengjaskátabanda-
lagsins í útjaðrl stór-
borgarinnar.
Segja má aö allri foringjaþjálf-
un breskra drengjaskáta sé í raun
stjómað frá Gilwell Park. Þar
vinna starfsmenn að þróun
námsefnis og þar er unnið að
útgáfumálum. Einnig er þar það
sem við getum kallað GAGNA-
BANKI foringjaþjálfunar, þar
sem þeir sem halda námskeið
viðsvegar um land, panta allt
kennsluefni og fá það sent í um-
beðnu upplagi fyrir námskeiðið.
Fyrir okkur sem erum upp>-
tendraðir af "Gilwell eldmóði"
sem Björgvin Magnússon DCC
hefur innblásið okkur, var ekki
síður athyglisvert að ganga um
húsakynni og þjálfunargrundir
staðarins, sjá með eigin augum
alla þá staði sem minnst er á :
sögum og söngvum frá þessum
stað. Við viljum hvetja alla skáta
til að gera sér ferð til Gilwell
Park, eigi þeir leið um London.
NÝTT SKÁTAHEIMILI
TEXTI & MYNDIR: JÚLÍUS AÐALSTEINSSON
SVONA MUN SKÁTAHEIMILIÐ
LftA ÚT - GLÆSILEGT EKKI
SATT?
Fyrsta skóflustunga
att nýju skátahelmlll
Vogabúa var tekin á
Sumardaglnn fyrsta.
Davíð Oddson, borgarstjóri,
hafði ætlað að taka þessa skóflu-
stungu en vegna anna við rflds-
stjómarmyndun gat ekld orðið
af því og kom það því í hlut Páls
Gíslasonar, varaforseta borgar-
stjómar Reykjavíkur og fyrrum
skátahöfðingja, að vinna verkið.
Sannaðist þar rétt einu sinni að
skátar em ávallt viðbúnir. Skát-
ar úr Vogabúum stóðu heiðurs-
vörð við athöfnina og stjómuðu
einnig fjöldasöng.
Mikill fjöldi skáta hvaðanæva
að úr Reykjavík var viðstaddur
auk íbúa í Grafarvogi. Að athöfh
loldnni var öllum boðið í kakó
og pönnukökur. Skátaforinginn
ræddi við þá Yngvinn Gunn-
taugsson, féhigsforingja Voga-
búa og Ólaf Asgeirsson, for-
mann Skátasambands Reykja-
vikur, og kom fram í máli þeirra
að miklar vonir em bundnar við
að þetta húsnæði muni verða tíl
þess að efla og styrlqa skátastarf-
ið í Vogabúum, sem er eins og
kunnugt er yngsta skátafélngið í
Reykjavík.
Reykjavíkurborg styrkir bygg-
ingu þessa á svipaðan hátt og
byggingu íþróttamannvirkja
íþróttafélaganna í borginni.
Vonast er til að unnt verði að
ljúka fyrsta áfanga hússins nú í
haust, þ.e. að gera húsið fok-
helt. Því miður hefur dregist allt
of lengi að hefja framkvæmdir,
þar sem ýmsar tafir hafa orðið á
samþykktum í nefndum borgar-
innar sem fjallað hafa um þetta
mál. En vonandi em þær tafir
nú að baki og Skátaforinginn
óskar Vogabúum tíl hamingju
með það að framkvæmdir skuli
nú vera hafnar og vonar að
þeim miði fljótt og vel áfram,
svo eldd líði á löngu þar tíl unnt
verður að flytja inn.
8 - SKÁTAFORINGINN