Skátaforinginn - 01.06.1991, Blaðsíða 22

Skátaforinginn - 01.06.1991, Blaðsíða 22
SKATAHREYFINGIN A ISLANDI HÁLFLÖMUÐ AF MANNAVÖLDUM Þa6 er skátahreyflngunnl nauAsynlegt að staldrað só við ððru hverju og skoðað hvort við höfum „gengið til góðs, götuna fram eftlr veg”. Hór á eftlr fylgir grein eftlr skáta sem lætur sór annt um BÍS og skátastarf í landlnu, skáta sem ekki er sáttur viö núverandi stöðu og vlll melna að við getum gert mlklu betur heldur en viö gerum í dag. Þetta er athyglisverö lesnlng sem snertir okkur öll. Stærsti félagsskapur heims. Enginn vafi leikur á því, að skátahreyfingin er stærsti félags- skapur heims. Tugmilljónir manna, í flest öllum ríkjum heims, starfa, eða hafa starfað undir merkjum skátahreyfingar- innar. Enginn félagsskapur kemst með tæmar þar sem skáta- hreyfingin hefur hælana. Þessa gífurlegu velgengni má fyrst og fremst þakka þeim trausta grunni sem starfið er byggt á og íhalds- seminni sem ráðið hefur ríkjum innan hreyfingarinnar. Allt frá því Baden-Powell hóf brautryðj- andastarf sitt árið 1907, hefur andi og tilgangur starfsins h'tið breyst, a.m.k. ef tekið er tillit til annarra breytinga sem orðið hafa á þessum árum. Flokkakerf- ið, einkennisbúningurinn, skáta- lögin, skátaheitið, útilífið, mann- réttindahugsjónin, trúfrelsið, virðingin og umburðarlyndið fyrir skoðunum annarra, allt eru þetta grundvallaratriði kenninga Baden-Powells, sem staðist hafa tímans tönn. Eftir því sem tíminn líður, sér maður reyndar betur og betur hversu brýnt erindi hreyfingin á við ungt fólk, nú ekki síður en árið 1907. Ástandiö hér á landi. Skátahreyfingin barst til íslands árið 1912 og hefur verið starf- andi hér óslitið síðan. Á nærri 80 árum hefúr aö sjálfsögðu gengið á ýmsu innan hreyfingarinnar. Starf sem þetta gengur misvel eft- ir árum. Erfitt er Uka að meta hvort starf er lélegt, sæmilegt, gott eða ágætt, sérstaklega sé maður ekki virkur þátttakandi. Á íslandi eru starfandi um 4.000 skátar, þarafum 1.000 í Reykjavík og getur það ekki talist mikið miðað við fjölda íbúa. \úrla verð- ur sagt að mikil reisn séyfir skáta- starfi á íslandi sem stendur. Þar með er ég ekki að segja að allt sem gert er sé ómögulegt, flarri því. Hins vegar held ég því hik- laust fram að hreyfingin væri mun sterkari hér, væri henni stjómað markvissara, af ákveðni; festu og hæfilegri íhaldssemi. A undanförnum árum hafa, að mínum dómi, verið gerð hrapal- le^ stjómunarleg mistök innan BIS. Lög bandalagsins em trú- lega eitt skýrasta dæmið þar um. Þá hafa verið teknar vafasamar ákvarðanir í of mörgum málum. Innan æðstu stjómar hafa fúll- trúar sýnt óþolandi framkomu, eins og síðar verður vikið að og komist upp með það, vegna stef- nu- og reynsluleysis æðstu manna. Stundum hefur lánleysi BÍS verið algjört. Dæmi um það er búningamálið. Hringlið með útlit skátabúninganna er ekki einleikið. Má t.d. nefna þegar BÍS samþykkti á sínum tíma að leggja niður skátabúninga og merki, a.m.k. að verulegu leyti. Þettavar gert vegna þess, að forustan vildi "poppa" hreyfinguna upp, færa hana nær núttmanum. \úrla vom liðnir þrír mánuðir frá því þessi ákvörðun var tekin þangað til alls konar einkennisbúningar urðu alheimstíska. Gamlar skátaskyrt- ur seldust á uppsprengdu verði í tfskuverslunum um allan heim og voru því dýrari sem fleiri merld vom á þeim. Þá var skáta- lögunum og breytt. Til hvers? Hreyfingin verður að vera íhalds- söm á gamlar hefðir, á því byggist gmndvallarhugsjónin. Þeir sem ekki skilja það ættu að halda sig utan stjómar BÍS til að valda sem minnstu tjóni. Ekkert fjáröflunarkerfi eftir 80 ára starfsemi! Skátastarf á íslandi er að verða 80 ára. Undirritaður hefur oft undrast að hreyfingin skuli ekki eiga neina fasta fjáröflunarleið. Þetta er ekki einleikið. Af hverju í lifandis ósköpum hefur BÍS ekki unnið að því að koma upp ör- uggu tekjukerfi. Af hverju er BÍS ekld aðili að Lottóinu eins og t.d. skátamir í Danmörku eru aðilar að danska lottóinu? Af hverju er ekki unnið að því? Hvemig stend- ur á því, að framkvæmdastjórn BÍS er gert ókleift að standa fyrir fjáröflunum. Það er eins og það séu trúarbrögð innan hreyfingar- innar að hún eigi sífellt að vera á hausnum fjárhagslega. Engu er líkara en sumt af því fólki sem stjómar hreyfingunni sé á þeirri skoðun, að fjáraflanir séu til ills og ekki skátum samboðnar. Þessu fólld þarf að koma burt úr áhrifastöðum innan BÍS. Afleið- ing fjárhagsvandræðanna kemur svo niður á starfinu, skuldir hrannast upp, lánstraust BÍS er þrodð hjá fjölda fyrirtækja, þar sem erfiðlega hefúr gengið að fá reikninga greidda. Fáliöuö skrifstofa. Eitt ömurlegasta dæmið um það vandræöalega ástand sem ríkir innan BÍS er skrifstofúhald- ið. Starfsliðið er aðeins tveir menn, en að auki er stundum fengin aukamanncskja í sérstök verkefni. Það kann að virðast töluvert að hafa tvo menn í vinnu og einhverjum kann að finnast það nóg. Því fer þó fjarri. \fcrkefiii BÍS em ákaflega margvísleg. Má þar nefna viðamikla útgáfu, er- lend samskipti, innlend sam- skiptí, t.d. við opinbera aðila, er- indrekstur og þjónusta við skáta- félög um land allt, umsjón með eignum, rekstur BÍS, rekstur lítíls hliðarfyrirtælds, fjáraflanir, und- irbúningur funda, undirbúning- ur skátamóta, alls konar verkefni tengd skátastarfi, móttaka og af- greiðsla ýmiss konar o.fl. o.fl. Það verður að segja eins og er, að þeir tveir sem á skrifstofunni vinna ráða alls ekid við nema brot af þessum verkefnum. Sumt ráða þeir ekki við vegna tíma- skorts, en við bætíst, að sum verkefnin em þess eðlis að tíl að leysa þau þarf viðsldptamenntað fólk. Þá hefúr ekki verið starfandi 22 - SKÁTAFORINGINN

x

Skátaforinginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátaforinginn
https://timarit.is/publication/909

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.