Skátaforinginn - 01.06.1991, Blaðsíða 16
Nú er landsmótl nýlok-
16 og tókst þaö í alla
staöi mjög vel. Veörlö
haföl sitt aö segja;
lóttl lundina og auö-
veldaöl öll störf. Elnn-
Ig hjálpaöl aöstaöan á
Utfljótsvatnl, en hún er
góö til mótshalds og
tel óg því ekkl fráleitt
aö halda öll landsmót
þar.
EFTIRÞANKAR
LANDSMÓTS
TEXTI: REYNIR MÁR RAGNARSSON
MYNDIR: HELGI EIRÍKSSON
LANDSMÓTIN Á SAMA
STAÐ
Mildll spamaður væri að halda
landsmótin alltaf á sama stað,
bæði hvað snertir peninga og
vinnu.
BYGGING SKEMMU
Byggja þyrfti skemmu þar sem
ýmis útbúnaður yrði geymdur
milli móta. Mín reynsla er sú að
töluverðar fjárhæðir fara t að
kaupa hluti, sem hægt væri að
nota aftur og aftur, fyrir lands-
mót.
UPPBYGGING
TJALDBÚÐASVÆÐA
Tíl að gera aðstöðuna betri á
Úlfljótsvatni er nauðsynlegt að
skipta túnunum niður í fimm
600-800 manna tjaldbúöasvæði.
Einnig þarf að gera varanlega
göngustfga um svæðið, planta
trjám til skjóls og prýði milli
tjaldbúðasvæðanna og reisa
þvottastæði og lítil salcrnishús
við hvert tjaldbúðasvæði.
AUKIÐ RÝMI
Ulfljótsvatnsráð þyrfti að fá
hluta af túni bóndans; þann
hluta sem notaður var á lands-
mótinu. Þessa aðstöðu yrði síð-
an hægt að nota fyrir smærri mót
og útilegur, jafnvel opna aðstöðu
fyrir almenning. Þetta kostar að
vísu sinn pening, en með góðri
fjáröflun er hægt að safna fyrir
þessu á fáum árum.
RAUÐHETTA Á
ÚLFLJÓTSVATNI
Þótt Rauðhetta hafi verið um-
deild á sínum tfma skilaði hún
mörgum milljónum í hagnað og
var aðstandendum til sóma fyrir
16 - SKÁTAFORINGINN
gott skipulag og vandaöa dag-
skrá; hún fékk góða umfjöllun
hjá almenningi og var vinsæl.
Með þvf að halda tvær til þrjár
slfkar skemmtanir væri hægt að
fjármagna þessar framkvæmdir
og rúmlega það. Nú er bara að
ræða hlutina án allra fordóma,
teikna upp svæðið, skipuleggja
og halda góða fjáröflun. Fram-
kvæma síöan þessa hluti og gera
Úlfljótsvatn að besta útilegu-
svæði iandsins. Verum bjartsýn
og kraftmildl.
AUKA ÞÁTTAKA
STYRKTARAÐILA
Hingað tíl hefúr verið litið á
landsmót sem fjáröflun fyrir BÍS.
Þetta er röng stefna. Landsmótá
að vfsu að standa undir sér, en
stefnan á að vera sú að fá alla
skáta á landsmót með þvf að hafa
þátttökugjaldið sem lægst; helst
ekkert. Þetta er hægt. Á síðasta
landsmótí var fariö út í það að fi
styrktaraðila. Það tókst vel, en
hefði verið hægt að fá fleiri. Með
því að ráða mann á prósentum tíl
að fá styrktaraðila á tilteknum
tíma ári fyrir mót má fá styrki í
peningum og vörum, sem stæöu
að miklu eða öllu leyti undir
kostnaði við mótíð. Duglegur
aðili getur safnað mörgum styrkt-
araðilum; reynslan frá síðasta
landsmótí sannar það.
STARFSFÓLK
Á síðasta landsmótí vantaði tíl-
finnanlcga starfsfólk, en það var
aðallega mótsstjórninni að
kenna. Tvenn mistök voru gerð;
í fyrsta lagi að hækka aldur starfs-
fólks ffá því sem verið hefúr og í
öðru lagi að láta starfsfólkið
borga fyrir að vinna á mótínu.
Lágmarksaldur á að vera 15 ára.
Það hefur sýnt sig á liðnum árum
að kjami starfsfólks er 15-18 ára.
Hefur þetta fólk skilað góöu
starfi og því engin ástæða tíl að
útíloka það frá starfsmannabúð-
um. Það, að vinna á landsmótí,
er í flestum tilfellum erfið vinna
og vinnuframlagið því nóg
greiðsla tíl mótsins; það ættí að
vera ástæðulaust að láta starfs-
fóLldð borga með sér.
LANDSMÓT Á AÐ BÆTA
SKÁTASTARFIÐ
Landsmót á að halda á fjögurra
ára fresti; landsmót á að auka og
bæta skátastarfið í landinu. Þau
á að tengja meira starfinu, bæði
fyrir og eftír mót. Þaðerhægtað
gera á margan hátt. Ein aðferðin
er sú að senda félögunum fram-
kvæmdaáætíun sem byrjar tveim-
ur árum fyrir mót og saman-
stendur af beinum undirbún-
ingsverkefnum og starfsverkefn-
um fyrir sveitír og flokka. Hægt
er að hugsa sér þriggja til fimm
manna verkeínisstjóm hjá BÍS,
sem sldpuð yrði þremur ámm
fyrir mót. Fyrsta árið færi í und-
irbúnings- og skipufagsvinnu, út-
sendingu gagna og kynningu.
Hin tvö árin notaði hún tímann í
eftírlit og aðstoð í formi heim-
sókna og fjölmiðlunar. Áætíunin
stæði líka á eftir mót; sá tími yrði
notaður til að viðhalda þeim
áhuga og eldmóði sem lands-
mótí fylgir. Þessu yrði fylgt eftir
með verkefnum fyrir sveitír og
flokka eins og fyrir mót, frágangs-
verkefnum fyrir félögin og end-
urmatí á landsmótínu, bæði hvað
varðar mótíð sem slíkt og undir-
búning og fararstjóm félagsins.
Verkefnisstjómin skilaði síðan af
sér eftír fjögur ár og nýstjóm yrði
sldpuð.
TÖKUM HENDUR ÚR
VÖSUM
Tökum nú hendur úr vösum,
skipuleggjum Úlfljótsvatn sem
framtíðar landsmótsstað, tengj-
um landsmótið meira starfinu,
gemm landsmótíð að enn meiri
hápunktí starfeins og reynum að
tryggja eins vel og við getum að
allir skátar komist á landsmót.
Ég vona að þessi grein veki upp
umræður og að þær síðan leiði af
sér framkvæmdir.