Skátaforinginn - 01.06.1991, Side 25
ISHÆK '91
Dagana 23. - 27. mars
fór fram ÍSHÆK 91.
Þa6 voru 15 skátar úr
skátafólaglnu Klakkl
sem tóku þátt í þetta
sinn. Gengið var á skíð-
um um Flateyjardal
sem er á skaganum
milli Eyjaf jarðar og
Skjálfanda. Dalur
þessl hefur verið ÍS-
HÆKAÐUR áður en í
þetta slnn var brugðlð
á það ráð að slgla á
staðinn. Hór frásögn
elns skátans, Jónínu
Guðjónsdóttur, af ævin-
týrinu.
TEXTI: JÓNÍNA GUÐJÓNSDÓTTIR MYNDIR: ÁSGEIR HREIÐARSSON, KANDERSTEGFARI
SJÓVEIK í ÍSHÆKI
Það er hálf ankannalegt að
byrja ÍSHÆK á því að verða sjó-
veikur. Það gerði ég. Þannig er
nefnilega mál með vexti að á
þessum árstíma er ekld hægt að
komast á staðinn sem við lögðum
upp frá nema siglandi eða á
tveimur jafnfljótum. Eftir að
hafa eldð til Húsavíkur stigum við
um borð í tvær trillur sem tóku
síðan stefnuna norðvestur yfir
SkjáLfandaflóann. Siglingin tók
um tvo klukkutíma. Á leiðinni
héfdu flestir eðlilegum andlitslit,
við hin vorum svona misgræn, en
það gleymdist fljótt.
ENGINN SNJÓR!
Þegar komið var út í mynni Flat-
eyjardals vorum við selAutt í land
á lítilli plastskel. Þar létum við
það verða okkar fyrsta verk að fá
okkur vel að borða, snæddum
hádegisverð þarna í fjörunni -
með kletta á aðra hönd, sjó á
hina og hvergi nokkum snjó að
sjá. Þegar þamavar komiðvarég
alveg búin að gleyma því að ég
væri í ÍSHÆKI.
VINNUSVIK
Eftír matínn bröltum við upp úr
fjömnni og fundum snjóinn sem
þrátt fyrir vinnusvik Vetrar kon-
ungs virtist vera nóg af (ekki mik-
ið-ennóg). Svo var rölt af stað.
Nú fóru hlutimir að færast í eðli-
legt ÍSHÆKShorf. Röð skíða-
skáta silaðist suður dalinn, með
vindinn í fangið, í átt tíl Heiðar-
húsa. Þangað komum við svo
seinnipart annars dags.
BIKARKEPPNI SKÍÐA-
SAMBANDSINS
Arviss bikarkeppni skíðasam-
bands skáta var haldin þriðja
daginn í misjafnlega blautu en
annars góðu veðri. Keppnin
kostaði eitt par af skíðum, en það
hefði nú verið hálf svekkjandi að
bera varaskíðin til einslds! Bikar-
meistari í ár varð Sigurður Sæ-
mundsson, Júh'us Ámason hrep-
ptí annað sætið og Margrét Aðal-
geirsdóttir það þriðja.
HÚSIÐ HRUNDI
Á meðan að við dvöldum í Heið-
arhúsum tóku nokkrir sig tíl og
byggðu igloo-snjóhús. Þarlögðu
þeir sig síðan til svefns sama
kvöld. Vfeðurguðimir voru hins-
vegar ekki alveg á því að þetta
myndarlega igloo fengi að standa
því nú byrjaði að rigna. Iglooið
stóð fram undir morgun en vakti
þá fbúana með því að hrynja ofan
á þá. Hetjumar okkar létu það
nú ekld á sig fá, grófu sig bara út
úr rústunum, fóm inn í hesthús
og héldu áfram að sofa. Þegar á
daginn leið hafði regnið komið
því svo fyrir að engin merki sáust
um snjóhúsagerðina.
POPP-PARTY
í SNJÓHÚSI
Á fjórða degi skíðuðum við
áfram í suðurátt. Umkvöldiðvar
tjaldað en þeir sem ekki höfðu þá
þegar gefist upp á snjóhúsagerð
grófu sig inn í næsta skafl. Þar
gerðu þeir stærðarinnar snjóhús
og buðu þvínæst öllum í popp-
partý (sem ég svaf reyndar af
mér).
BEINT í SUND
Síðasta daginn röltum við sem
leið lá að bænum Þverá í Dals-
mynni. Þangað vomm við sótt
og skutlað beinustu leið í sund
þar sem bílstjómnum líkaði víst
ekld af okkur lyktín. Eftír sundið
var haldið heim á leið, sólbmnn-
ir skátar með brotin og rispuð
skíði, skakkir og skældir skátar -
þreyttír en ánægðir eftír ÍSHÆK
’91.
SKÁTAFORINGINN - 25