Skátaforinginn - 01.12.1991, Side 9
AÐALSTJÓRNARFUNDUR Á AKUREYRI:
KLAKKUR í
ERINDREKSTUR
TEXTI: GUÐMUNDUR PÁLSSON MYND: HELGI EIRÍKSSON
f skoðunarferð um Kjamaskóg. Frá vinstri: Björk Thomsen, Tryggvi Marinósson, Guðmundur Pálsson,
Hattbjörg Þórarinsdóttir, Páll Zóphóníasson, Júlíus Aðalsteinsson, Kristján Guðmundsson, Anna G.
Sverrisdóttir, Ólafur Tr. Kjartansson og bílstjórinn okkar.
Aöalstiórn BÍS hefur
leitast viö aö halda
a.m.lc. einn fund á
ári utan höfuöborgar-
svæöisins. Aö þessu
slnni bauö Klakltur á
Akureyri st|órninnl
heim og var fundur-
inn haldin þann 27.
september s.l.
Fundinn sóttu þau Gunnar H.
Eyjólfsson, Páll Zóphóníasson
og Kristín Bjamadóttir aðstoð-
arskátahöfðingjar, Anna G.
Sverrisdóttir formaður al-
þjóðaráðs, BjörkThomsen for-
maður starfsráðs, Þorsteinn
Sigurðsson formaður fjármála-
ráðs, Hailbjörg Þórarinsdóttir
frá Austurlandi, Tryggvi Marin-
ósson frá Norðurlandi, Krist-
ján Guðmundsson frá Vest-
fjörðum, Ólafur Ásgeirsson
Reykjavík og Hafdís Óladóttir
Suðurlandi. Sigurður Guð-
leifsson sat sem áheymarfull-
trúi fyrir Skátasamband
Reykjaness og Júh'us Aðal-
steinsson sat fundinn fyrir for-
ingjaþjálfunarráð. Auk þess
sátu starfsmenn BÍS, þeir Helgi
Eiríksson og Guðmundur Páls-
son, þennan fund.
Fundurinn hófet kl. 16.00.
Mörg mál voru á dagskrá og
lauk fúndi því ekld fyrr en laust
fyrir kl. 01.00 eftir miðnætti.
Nokkur umræða varð um er-
indrekstur og samband BÍS við
félögin. Ljóst er að sökum
þröngrar fjárhagsstöðu er erf-
itt að sinna félögunum sem
skyldi. Þó var samþykkt að fela
Klakk að annast erindrekstur á
Norðurlandi og leitast við að
auka útbreiðslu skátastarfe á
svæðinu fram að áramótum.
Á laugardagsmorgun bauð
Klakkur aðalstjómarmönnum
í skoðunarferð um framtíðar-
útivistarsvæði Akureyringa.
Var það mjög fróðlegt og
skemmtilegt. Einnig var farið í
Kjamaskóg en þar mun næsta
landsmót verða haldið árið
1993. Um kvöldið fjölmennti
aðalstjóm upp í Fálkafell, einn
af skátaskálum Klakks, og tók
þar þátt í Fálkafellsvígslu en
það er árlegur viðburður hjá
þeim Akureyringum. Þá koma
eldri skátar saman, þiggja veit-
ingar, syngja nokkur lög og
rabba saman. Aðalstjóm send-
ir Skátafélaginu Klakk sínar
bestu kveðjur með þakklæti
fyrir glæsilegar móttökur og
góðan gjöming.
ERINDREKI
UMSJÓNARMAÐUR
Skátafélag í Reykfavik éskar að
ráða starfsmann.
Starfiö felur í sér erindrekstur og umsjón meö almennu
skátastarfi og foringjaþjálfun. Leitaö er aö skáta a.m.k. 20 ára,
meö reynslu í skáta- og foringjastörfum. Gilwellpróf æskilegt.
Viökomandi þarf aö hafa gaman af skátastarfi og eiginleika til
aö umgangast ungt fólk.
Um er aö raeöa u.þ.b. 20-25% starf meö vinnutíma oftast aö
kvöldlagi. Ágæt laun, ráöningartími og annaö fyrirkomulag
eftir samkomulagi.
Umsóknin sendist til skrifstofu Skátasambands Reykjavfkur,
Snorrabraut 60,101 Reykjavík fyrir 1. desember merkt:
„Rikk-tíkk".
KASSAGERÐ REYKJAVÍKUR HF
Kleppsvegi 33 Sími 38383 Fax 91-38598
SKÁTAFORINGINN - 9