Skátaforinginn - 01.12.1991, Blaðsíða 27

Skátaforinginn - 01.12.1991, Blaðsíða 27
UR STARFINU Frá rltst|érn Sökum plássleysis neyddist rít- stjóm Skátaforingjans að feUa niður eftirtaldar greinar sem áttu að birtast í blaðinu að þessu sinni: Á FERÐ UM LANDIÐ - Umfjöllun um skátafélagið á Þórshöfn, SKÁLAPISTILL - kynn- ing á skátaskálanum Fluga í Borgarfirði, YFIR HAFIÐ - Grein um skátastarf í Svíþjóð, HJÁLP- ARSVEITIR SKÁTA - UmfjöUun um Hjálp>arsveit skáta í Vest- mannaeyjum, SUMARBÚÐIR í HÁLFA ÖLD - umfjöUun í máU og myndum um starfið í sumar- búðum skáta s.l. sumar. Hlutaðeigandi aðilar eru beðnir velvirðingar á þessu en úr þessu verður bætt í næsta blaði. Með kveðju, ritstjóm. Ný ársskírteini BÍS hefur nú gefið út ný ársskír- teini og taka þau gildi nú í upp- hafi starfsársins. Félög eru beð- in að panta tímanlega og er tek- iðvið pöntunum áskrifstofu BÍS í síma 91-23190 alla virka daga frákl. 13.00 til 16.00 (Sigurður). Sumarbúðir skáta Sumarbúðir skáta hafa nú lokið 50. starfsári sínu. Forstöðu- kona sumarbúðanna var Laufey Gissurardóttir en hún veitti sumarbúðunum einnig for- stöðu s.I. sumar. Laufey starfar nú fyrir Björgunarskóla LHS. Nær 400 böm tóku þátt í fjöl- breyttri og skemmtilegri dag- skrá sem starfsfólk sumarbúð- anna bauð upp á nú í sumar og vom þau öll mjög ánægð. Nú í sumar sem endranær var fötluð- um bömum gefinn kostur á að sækja sumarbúðimar. Hefur það mælst vel fyrir og hafa þessi böm jafnan fengið mikið út úr dvölinni að Úlfljótsvatni. SJálfboðaliðar áskast Sjálboðaliðar óskast í fjölbreytt verkefni fyrir BÍS. Fjölbreytt og skemmtileg verkefni. Nánari upplýsingar gefur Helgi Eiríks- son framkvæmdastjóri í stma 91- 23190. Stáru skálarnlr Ef þig vantar skála fyrir fiokka eða sveit þá hefur þú nú snarlega lokið þinni leit. Hafðu bara samband, já hafðu af okkur not: Lækjarbotnar, Amarsetur - eða Dalakot. Við höfum skálann sem þig vant- ar. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu BÍS í síma 91-23190. Starfsmaftur áskast Skátafélagið Vífill óskar eftir að ráða starfemann í hlutastarf. Um er að ræða húsvörslu og fjölbreytt verkefni tengd félag- inu. Nánari upplýsingar fást hjá Þór eða Karli í síma 91-41609. Nýr f starfsráá BÍS í september s.l. lét Ellen Habe- kost af störfum í starferáði BÍS en hún hafði setið sem fulltrúi SSRíráðinu. Stjóm SSRsldptaði Guðfinn Pálsson úr Skjöldung- um í hennar stað. Guðfinnur hefur hafið störf með ráðinu. íbi & Kim Eins og fram kemur á síðum blaðsins hefur BÍS gefið út stórgóða leikjabók sem heitir ÍBÍ & KIM. Bóldn inniheldur 134 fjölbreytta leild og á vafaLítið eftir að koma skátum að góðum notum í starfinu. ÍÞRÓTTA- 0G TÓMSTUNDARÁÐ “Öll kennsla ■ skáta- starfi á að fara sem mest fram í leikjum, æfingum og keppnum11, sagði Baden-Powell í fyrstu skátabákinni. SAMVINNUHNÚTURINN Sveitar- eöa flokksleikur, inni. Efni/áhöld: Hnútabönd, helmingi færri en skátarnír. Það krefet stórkostlegrar snilldar að binda hnút - a.m.k. ef það er gert á eftírfarandi hátt: Skátamir eru paraðir saman og hvert par hefur eitt band, sem annar skátínn heldur á í hægri hönd en hinn í þeirri vinstri. Lausu höndinni halda þeir fyrir aftan bak. Foringinn nefnir einhvem hnút og hvert par fyrir sig reynir að hnýta hann á bandið. Meira að segja fióknustu hnúta má binda á þennan hátt og getur það orðið ansi skemmtilegt. Lcikinn má þyngja með því að setja þá reglu að ckki megi tala saman og ef það reynist ekki nógu erfitt geta skátamir staðið t hring þannig að hver skáti bindi tvo hnúta í einu - í samvinnu við sinn hvom aðilann. HJÓLBÖRUHNÚTURINN Sveitarleikur, úti Efni/áhöld: Einar hjólbörur og 10 hnútabönd. Skátamir raða sér í flokkaraðir. Fyrsti fiokkurinn fær afhentar einar hjólbörur og tíu hnútabönd. Einn úr flokknum sest upp í börumar og hefur böndin meðferðis. Því næst á flokkurinn að keyra þann sem í hjólbörunum er ákveðna leið, sem gjaman má vera ójöfn, en á meðan á sá sem í þeim situr að binda sem flesta mismunandi hnúta. Svo tekur næsti flokkur við og svo koll af kolli uns allir hafa loldð keppninni. Við stigagjöf skal bæði taka tillit til tímans og svo fjölda mismun- andi hnúta. Gjaman mega vera fleiri en einn hnútur á hverju bandi. HUGMYNDA- SMIÐJAN UMSJÓN: INGIBJÖRG EIRÍKSDÓTTIR SKÁTAFORINGINN - 27

x

Skátaforinginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátaforinginn
https://timarit.is/publication/909

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.