Skátaforinginn - 01.12.1991, Blaðsíða 12

Skátaforinginn - 01.12.1991, Blaðsíða 12
GILWELL ’91 GAMAN Á GILWELL TEXTI: GUÐMUNDUR PÁLSSON MYND: HELGI EIRÍKSSON Síéustu helginu f ágúst var haldié Gilwell-námskeié á Úlfl|ótsvatni. Nám- skeiðinu st|órnaði Björgvin Magnússen •n sér til lulltingls hafél hann ffölmennt lið leiðbeinenda. Þeirra á meðal voru þau Ólafur Ásgeirsson formaður SSR, Helgi Eiríksson framkvæmdastjóri BÍS, Björk Thomsen formaður starfsráðs BÍS, Jónas B. Jónsson formaður Úlfljótsvatnsráðs, Anna Kristjánsdóttir SSR, Guð- mundur Pálsson skrifstofu BÍS, Danfríður Skarphéðinsdóttir, Sigurður Guðleifsson foríngja- þjálfunarráði BÍS, Hermann Sig- urðsson, Einar Þór Strand, Ellen Habekost o.fl. Það ríldr jafnan mikil eftirvænting þegar h'ða tekur að Gilwell enda eru þátt- takendur sammála um að þetta vikunámskeið sé toppurinn á skátaferlinum. Dagskrá nám- skeiðanna er afar fjölbreytt og miðar að því að gera foringjana enn betur í stakk búna til að takast á við þær skyldur og þá ábyrgð sem fylgir því að vera skátaforíngi. UCLÚR I -' 1 v jj EH* 1 Þátttakendur og hluti leiðbeinenda á Gilwell '91: Aftasta röð frá vinstri: UGLUR: Jón Skf. Eina, Fanný Kópum, Gylfi Vogabúum, Hanna Fossbúum, GAUKAR: Daði Skf. Eina, Friðfinnur Klakk, Öm Hafömum, Hjördís Birkibeinum. Næst aftasta röð: DÚFUR: Óttar Klakk, Hera Kópum, María Hafömum, Guðmundur Garðbúum, HRAFNAR: Einar Dalbúum, Margrét Nesbúum, Sverrir Heiðabúum. Fremsta röð: LEIÐBEINENDUR: Hermann, Guðmundur, Danfríður, Ólafur, Björgvin (stjómandi), Jónas B., Helgi, Sigurður, Lillý, Einar (standandi fyrir aftan) og þær Andrea og Magnea (sitjandi á gólfi). GILWELL-REUNIOh '91 TEXTI: GUÐMUNDUR PÁLSSON MYND: ÁSGEIR HREIÐARSSON Þeir skátar sem hafa tekið þátt í Gilwellnámskeiðum, alþjóð- legum foringjanámskeiðum skáta, koma árlega saman að ÚLfljótsvatni. Að þessu sinni kom hópurinn saman Laugar- daginn 5. október. Dagskráin hófst með helgistund í ÚLfljóts- vatnskirkju ld. 18.00 og að henni Lokinni var haldið í Gil- wellskálann. Þar var kvöld- vaka og sáu flokkamir um skemmtiatriði sem tókust mjög vel. Að lokinni kvöldvöku voru kaffiveitingaroggafst þá tóm til að spjafla við gamla félaga. GilwelIþjáLfunin dregur nafn sitt af alþjóðlegum foringja- skóla skáta sem er í GilweLL Park rétt utan við London og við þann stað var Baden-Po- well stofnandi skátahreyfingar- innar kenndur er hann fékk lá- varðstign. Hafa skátar um aLL- an heim kennt þjálfun þessa við Gilweil í virðingarskyni við Baden-Powell. Þrjátíu og tvö ár em nú Liðin frá því að fyrsta GiLwell námskeið- ið var haldið á íslandi og hafa þessi námskeið verið burðarás- inn í þjálfun sveitarforingja hér á landi. Þátttaka á Gilwell-re- union var mjög góð og vom það ríflega 60 skátar sem tóku þátt að þessu sinni. 12- SKÁTAFORINGINN

x

Skátaforinginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátaforinginn
https://timarit.is/publication/909

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.