Skátaforinginn


Skátaforinginn - 01.12.1991, Síða 10

Skátaforinginn - 01.12.1991, Síða 10
SUÐURLANDSMOT: GUFFI í GALTALÆK TEXTI: ÁGÚSTA MARGRÉT ÞÓRARINSDÓTTIR MYNDIR: HANNA KR. SIGURÐARDÓTTIR Helgina 7.-9. |úní s.1. var haldið f Oaltalaek)- arskögi skátamót þrigg|a skátafélaga á Suéurlandi. Skátafé- lögln voru Strákur Hverageröi, Fossbúar Selfossi eg Birklbeinar Eyrarbakka. Syng|andl kynningarleikur Félögin þrjú komu á staðinn um sex leytið á föstudag og var tjöldum slcgið upp. Eftir það var kynnisleikur sem fólst í því að flokkamir fengu bút úr lagi og áttu svo að finna annan flokk sem var með samskonar lag og áttu þessir flokkar að syngja þetta lag á kvöldvökunni seinna um kvöldið. Svo var mótið formlega sett og eftir setningu var svo hressileg kvöldvaka. Líflfnukast og steinagreining Klukkan 10.00 á laugardags- morgun hófust svo p>óstaleikir sem stóðu yfir allan daginn. Var þetta keppni milli flokka og póstamir sem flokkamir gátu valið á milli voru úr ýmsum átt- um og voru hver öðrum skemmtilegri. Þeirra á meðal voru póstar eins og rötun, að þekkja fjöll, steinagreining, veð- urathugun, vatnasafarí, skyndi- hjálp, súrringar, líflínukast, straumhraðamælingar, meta- p>óstar og margir fleiri. En vin- sælasti pósturinn var vatna- hlaup þar sem flokkurinn átti að bera einn meðlim flokksins yfir drullu og vatn og var þessi með- limur í tilbúnum sjúkrabörum. Hlaupa átti svo með hann yfir net sem var fest yfir vatni og þegar það var búið átti að láta „sjúklinginn” í spelkur og fara með hann upp tröppur. Póstur- inn endaði svo með því að allir í flokknum áttu að hlaupa í ís- köldum læknum og skulfu flest- ir er þeir komust á leiðarenda - allir þó með bros á vör! Pósta- leikjadagskránni, sem var í höndum dróttskáta, lauk svo um sexleytið og fóru þá flestir að huga að grillum sínum því þá um kvöldið var haldin grillveisla og brögðuðust réttimir ákaflega vel. Smúskútar málaöir í framan Um kvöldið var kvöldvaka þar sem miláð var sungið og boðið var upp á skemmtiatriði frá fé- lögunum. Að lokum fengu allir kakaó og kex áður en þeir gengu til náða. Það var vaknað snemma á sunnudagsmorgnin- um því von var á smáskátum í heimsókn. Það voru eldri skátar sem undirbjuggu þennan skemmtilega heimsóknardag. Nokkrir eldri skátar fóru einnig í gönguferð upp að Heklu og var mjög gaman að sjá fjallið í ná- vígi. Þegar gönguskátar komu úr gönguferðinni voru smáskát- ar að klára sína dagskrá sem fólst í póstaleik sem var mjög vinsæll. T.d. voru allir skátamir málaðir í framan. Þegar leið á seinni htuta dagsins var kveiktur varðeldur þar sem viðurkenn- ingar voru afhentar fyrir tjald- búð, póstaleiki, þema mótsins og mótssöng. Snæuglur Foss- búum fengu viðurkenningu fyr- ir mótssönginn, Skröltormar Fossbúum fengu viðurkenn- ingu fyrir þema mótsins: „Guffi í Galtalæk” og Birkibeinar á Eyr- arbakka fengu tjaldbúðaverð- laun fyrir báða dagana. Fyrir póstaleik smáskáta fengu Álfa- böm Fossbúum viðurkenningu og fyrir póstaleiki eldri fengu Blágrýti Birkibeinum viður- kenningu. Vel heppnað skátamól Mótsstjóri var Þórarinn Olafs- son, Guðbjörg Dóra Sverris- dóttir var dagskrárstjóri, varð- eldastjóri var Agnes Snorradótt- ir, Hanna Kr. Sigurðardóttir, Hafdís Sæmundsdóttir og Guð- jón S. Jónsson vom varðelda- stjórar. Gæsla á svæðinu var í höndum Hjálparsveitar skáta Hveragerði og hún sá einnig um skyndihjálparp>óst. Að lokum vil ég segja að þetta var mjög skemmtilegt og vel heppnað mót og ekki skemmdi fyrir sá góði skátaandi sem þar ríkti og átti sinn þátt í að skapa góða stemmningu. 10 - SKÁTAFORINGINN

x

Skátaforinginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátaforinginn
https://timarit.is/publication/909

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.