Skátaforinginn - 01.12.1991, Qupperneq 26
SPENNANDI
ALÞJÓÐASTARF
TEXTI: HULDA GUÐMUNDSDÓTTIR
Haffiö þið einhvern
tímann leitt hug-
ann aö því að
taka má þátt í
spennandi alþjáða-
starffi án þess aö
ffara af landl
brett? Ekki það?
En staðreyndin er
nú samt sú að það
er mjög einfalt.
Til dæmis má skriff-
ast á við erlenda
skáta eg hægt er
að eignast vina-
flokka eða sveitir
erlendis ffrá. Auk
þess er á mjög
skemmtilegan
hátt hægt að setja
upp spennandi
ffundi með mat,
verkefnum og
þjáðlegum siðum
ffrá öðrum löndum.
I samband við
íslenska slcála
A hverju ári kemur fjöldinn allur
af erlendum skátahópum hing-
að til lands, ýmist til þess að taka
þátt í íslenskum skátamótum
eins og þau gerast best eða til að
ferðast um landið á eigin vegum
og kynnast landi og þjóð. Marg-
ir þcssara hópa hafa mildnn
áhuga á því að komast í sam-
band við íslenskar skátasvcitir tíl
að skrífast á við fyrir ferð og hitta
þegar þeir koma svo loks til
draumalandsins. í sumum til-
fcllum er bara um að ræða að
hittast t.d. eina kvöldstund á
kvöldvöku eða einhverju slíku.
Sumir viLja fá tslenska skáta til að
fara með sér í styttri eða lengri
ferðir. Og enn aðrir hafa nokk-
urs konar skiptí í huga, þ.e. við
tökum á mótí þeim og í staðinn
taka þeir á móti okkur í sínu
heimaLandi.
26 - SKÁTAFORINGINN
Erlendir skálahópar
á leiðinni
ÓUkt okkur íslendingum skipu-
leggja margir erlendis ferðir af
þessum toga Langt fram í tímann
og nú þegar hafa borist upplýs-
ingar um nokkra hópa sem
hyggjast Leggja land undir fót og
ferðast um ísland næsta sumar.
Sumir þessara hópa hafa ítrekað
borið fram óskir um að komast
í samband við íslenskar skáta-
sveitír. Má þar t.d. nefna sveit
frá Svíþjóð sem býður íslenskri
sveit tíl síns heima næsta sumar
gegn því að sú hin sama sveit
tald á mótí þeim á sömu skilmál-
um sumarið 1993. Önnur sveit
frá Þýskalandi hefúr áhuga á
sams konar skiptum nema hvað
hún kemur hingað tíl Lands
næsta sumar og í staðinn er
möguleild á að íslensk sveit sæld
Þjóðverja heim síðar. Að lokum
má nefna sveit frá Bretlandi sem
hyggur á íslandsför næstkom-
andi sumar og hefur rnikinn
áhuga á að hitta íslenska skáta í
þeirri heimsókn.
Grípið
tsekifærlð!
Samskipti af þessum toga geta
verið mjög fróðleg og skemmti-
leg. Við hvetjum því aliar sveitir
tíl að hugsa nú málið, athuga
hvort þetta sé ekld eitthvað fyrir
þær og hafa svo samband við
Huidu í síma 91-671228 eða
skrifstofu BÍS, sími 91-23190, til
skrafs og ráðagerða. Grípið
tækifærið tíl að Lífga upp á skáta-
starfið á meðan það gefst og tak-
ið þátt í öðruvísi alþjóðastarfi.
FRA FORINGJAÞJALFUNARRAÐI:
RÍFANDI AÐSÓKN Á
NÁMSKEIÐIN
TEXTI: JÚLÍUS AÐALSTEINSSON
Aðsókn
skátaffélaganna
á námskeið
foringjaþjálfun-
arráðs heffur
verið með besta
máti það sem af
or haustinu.
Nýtt fyrirkomulag
Það nýja fyrirkomulag sem
foringjaþjálfunarráð er nú að
reyna virðist falla vel í kramið
hjá skátafélögunum þvf að-
sókn hefur verið mjög góð á
öll námskeið. Þetta nýja fyr-
irkomulag byggir á því að
dagsetningar námskeiðanna
eru ákveðnar með löngum
fyrirvara og taldst allt sem
skyldi verður þeim dagsetn-
ingum ekki breytt héðan í frá.
Þannig geta félögin gengið að
því sem vísu að t.d. Fiokksfor-
ingjanámskeið 2 er alitaf í
boði þriðju heLgina í október,
hugmyndanámskeið fyrir
sveitarforingja fyrstu helgina
í nóvember o.s.frv.
Byr|unarörðugleikar
Nokkur vandamál hafa þó
skapast sökum þess hve seint
félögin skrá þátttakendur á
námskeiðin. Vogabúar í
Reykjavík hafa komið sér upp
ágætu fyrirkomulag en félag-
ið hefur skipað einn foringja
úr félaginu sem umsjónar-
mann foringjaþjálfunar.
Hann hefúr það verkefni með
höndum að kynna námskeið-
in fyrir foringjum og foringja-
efnum og sér um að skrá þá
tilþátttöku. Þetta hefur gefist
ágætlcga og ættu fleiri félög
að taka þennan sið upp.
Félögunum er ekki nokkur
vorkun í því að ákveða hvaða
skátar fari á hvaða námskeið
með a.m.k. tveggja vikna fyr-
irvara.
140 á námskeið í
október
Eins og fyrr sagði hefur þátt-
taka verið mjög góð og má
sem dæmi um það nefna að í
október sóttu 140 skátar
flokksforingja- og sveitarfor-
ingjanámskeið. Þetta er frá-
bær þátttaka og mjög jákvætt
í alla staði því undirstaða
skátastarfsins eru jú vel þjáif-
aðir foringjar. Það er von
okkar í foringjaþjálfunarráði
að aðsóknin verði jafn góð í
framtíðinni.