Tónlistin - 01.03.1942, Side 26

Tónlistin - 01.03.1942, Side 26
,‘58 TÓNLISTIN 1803. ^819 var þaö flutt frá Innrahólmi o" í ViSeyjar-kirkju, þar sem á þafi var leikið við guðsþjónustur fram til ársins 1827, er Magnús andaðist. Er helzt svo að sjá, sem hljóðfærið hafi verið flutt utan aftur, þar sem enginn kunni með það að fara, og segir þó Jón Espólín, að Magnús hafi kennt öðrum meðferð þess (Ara Sæmundsen umboðsmanni á Akureyri?). Auk Melstaðarkirkju kem- ur snemma stofuorgel að Arnarbæli og að Möðruvöllum, og 1881 er talið, að til séu um 30—40 hljóðfæri í íslenzkum kirkjum. Mjög mikill munur er á hinum ýmsu sóknum að viðbragðsflýti, er um svo mikið framfaramál var að ræða sem hljóðfærastuðning og -forystu í kirkju- söng. Um 1890 kemur fyrsta kirkju- orgelið að Borg á Mýrum, og höfðu þá ýmsir ýmugust á hinu nýja tiltæki; og haft er eftir bónda einum þar i sveitinni, að honum hafi likað miður, þá er farið var „að troða guðsorðið með fótunum". í Setbergskirkju i Eyrarsveit mun fyrst hafa komið hljóðfæri (harmóníum) um 1920. Fyrsta orgelið i Dómkirkjunni í Reykjavik var pípuorgel; var það sett upp árið 1840, og hefir siðan verið leikio þar á orgel við allar kirkjuathafnir, að undanteknum þeim tima, er orgelverkið var sent utan til aðgerðar, 1859—iSðo. Nesjakarl. Norðurland hefir löngum haft sér- stakt orð á sér fyrir allálitlega söng- rækt, eins og hinn fyrsti íslenzki söng- skóli Jóns biskups Ögmundssonar á Hól- um staðfesti þegar á öndverðri 12. öld. Akureyri hefir og löngum staðið fram- arlega i söngviðleitni landsmanna; þar var stofnaður söngskóli 1863, og 1923 rís þar upp músíkskóli, undir forystu Kurts llaesers frá Dortmund í Þýzka- landi. En Sunnlendingar hafa heldur ekki látið sitt eftir liggja. Síðastliðið sumar flutti Gunnar Bene- diktsson erindi um Eyrarliakka. Hafði hann þau orð um Eyrbekkinga, sam- kvæmt heimild séra Ólafs Magnússonar i Aruarliæli, að þeir myndu fyrir og eftir síðustu aldamót hafa alið með sér blóm- legast tónlistarh'f á landinu, en á Eyrar- bakka höfðu margir niðjar Bergs i Brattholti gegnt forsöngvarastörfum um langan aldur og gera enn. Fyrir 34 árum var ég tvo vetur kenn- ari í Gaulverjabæjarhreppi i Árnessýslu og spilaði einnig við Bæjarkirkju. Ég kenndi meðal annarra liæja á Loftsstöð- um, en þar bjó, og býr enn, sönghneigt fólk af Bergsætt. Við húslestra þar á bænum var sungiS þríraddað og leikið með á fiölu; fiðluleikiun annaðist roskin kona á heimilinu, dóttir bóndans, en ég lék á smáorgan, er ég átti og hafði meö- feröist. Litlu síðar útvegaði ég heimili þessu stofuorgel og kenndi þremur ung- lingum að leika á það. Siðan hefir verið haldið uppi söng við Bæjarkirkju frá þessu heimili, og oftast nær hefir organ- istinn líka verið þaðan. Er tæplega hægt að hugsa sér öllu ákjósanlegri heimilis- söng, þríraddaðan með fiölu-undirleik og organspili. Að sjálfsögðu vann allt heimilisfólk á T-oftsstöðum venjulega erfiðisvinnu, eins og gerist til sveita, en sönghneigðin var samt svo máttug, að hún náði að dafna við lítt örvandi skil- yröi.------Og bréfritarinn lýkur oröum sínum á þessa leið : Við erum íslendingar og eigum að hlúa að öllu, sem íslenzkt er. Hinir, þ. e. útlendingarnir, sjá um sig og sína menn. Ef við sjálfir leggjum ekki neina rækt við tónlistarviðleitni okkar, er naumast að vænta þess, að aðrir geri það. Þó er "sjálfsagt að viðurkenna, að útlendingar hafa skrifað hlýlega um við- leitni vora. Hafnfirðingur. Heiöraði ritstjóri! í fyrsta hefti tímarits yðar liafið þér tekið til umræðu tónlistarlíf Reykjavík- ur og gert þar nokkrar athugasemdir, sem mér finnst ástæða til þess að ræða nánar, og þykir mér það vissulega vera í anda hins nýja rits að taka mál þetta til athugunar.

x

Tónlistin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tónlistin
https://timarit.is/publication/922

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.