Bændablaðið - 10.03.2004, Blaðsíða 20
20 Miðvikudagur 10. mars 2004
Ost-
bitar
Offituvandi meðal danska barna
Mejeriforeningen í Danmörku hefur í sam-
ráði við heilbrigðisyfirvöld og neytendasam-
tök gefið út leiðbeiningar til hjálpar börnum
sem eiga við offitu að stríða, en offituvandi
meðal danskra barna hefur aukist eins og
víða annars staðar í hinum vestræna heimi.
Um er að ræða leiðbeiningar sem varða
mataræði og líkamsrækt og lífsstílinn í
heild. Börnin setja sér markmið í samráði við
foreldra og skólahjúkrunarkonu, ákveða
hvað þau ætla að léttast mikið á ákveðnu
tímabil og skrá það í meðfylgjandi bók.
Fylgst er reglubundið með árangrinum.
Samstarf við stórnotendur
Fimm stórfyrirtæki í danska matvælaiðnað-
inum, þar á meðal mjólkurfyrirtækið Arla
Foods, stofnuðu nýlega Catering Forum, þar
sem umsjónarmenn stóreldhúsa geta fengið
faglegar upplýsingar og nýjar hugmyndir
varðandi mat og matargerð. Fólk borðar í æ
ríkara mæli tilbúinn mat í vinnu, skóla og
víðar, og matarinnkaup færast æ meir frá
heimilum til stórnotenda. Það er því mjög
mikilvægt fyrir matvælafyrirtæki að eiga
gott samstarf við þá.
Hrun ítalska mjólkurrisans
Hrun ítalska mjólkurrisans Parmalat og
hneykslið því samfara er mikið áfall fyrir
ítalskt efnahagslíf og sjálfsmynd ítölsku
þjóðarinnar. Parmalat var áttunda stærsta
fyrirtæki Ítalíu og hið sjöunda í röðinni með-
al mjólkurfyrirtækja í heiminum. Velta þess
var um 680 milljarðar íslenskra króna á ár-
inu 2002 og starfsmenn voru 36 þúsund í 30
löndum. Um 5000 mjólkurframleiðendur
lögðu inn mjólk hjá Parmalat; þeir hafa ekki
fengið greitt fyrir mjólkina síðustu sex mán-
uðina og ramba því flestir á barmi gjald-
þrots. Skuldin við bændur nemur um 9 millj-
örðum króna. Ítalska ríkið hefur sótt um
undanþágu hjá ES til að aðstoða bændurna
með ódýrum lánum auk þess sem þeir verða
undanþegnir greiðslu ýmissa gjalda næstu
tólf mánuðina. Calisto Tanzi, eigandi
Parmalat, tók við litlu matvælafyrirtæki föð-
ur síns árið 1961. Hann tók brátt að kaupa
hrámjólk og vinna úr henni mjólkurvörur,
einkum jógúrt, en smátt og smátt jukust um-
svif hans og hann keypti hvert mjólkurfyrir-
tækið á fætur öðru, fyrst á Ítalíu en síðan
víðar í Evrópu og Bandaríkjunum. Hann sit-
ur nú á bak við lás og slá sakaður um gríðar-
leg fjársvik.
Mjólkurvörur eru grennandi
Jyllandsposten vitnar í rannsókn, sem
danski landbúnaðarháskólinn vinnur að, og
bendir til þess að kalk í mjólkurafurðum
dragi úr myndun fitu í þörmunum og sé því
grennandi. Bandarískar rannsóknir, til
dæmis Cardia-rannsóknin og rannsóknir dr.
Zemel við háskólann í Tennessee, benda í
sömu átt. Sambandið á milli mjólkur og
offitu er talið býsna flókið, en þessi nýja
uppgötvun er vissulega uppörvandi fyrir
mjólkurframleiðendur.
Matreiðslukeppni
mjólkurframleiðenda
Svensk Mjölk stendur fyrir árlegri keppni
matreiðslumeistara í Svíþjóð og hefur gert
það síðan árið 1983. Keppnin vekur jafnan
athygli og fjölmiðlar fylgjast með henni. Í ár
var aðal verkefni úrslitakeppninnar að mat-
reiða kjúkling og máttu þátttakendur nota
mjólkurafurð að eigin vali í réttinn. Forrétt-
urinn átti að vera úr sjávarfangi en ostur
skyldi vera hluti af honum. Forráðamenn
Svensk Mjölk telja mikilvægt fyrir ímynd
mjólkurafurða að tengjast slíkri keppni og
hún geti haft stefnumótandi áhrif varðandi
matargerð.
Ostadagar í Smáralind
Ostadagar verða haldnir 1., 2. og 3. október
næstkomandi og verða að þessu sinni ekki í
Perlunni heldur Smáralind í Kópavogi. Vetr-
argarðurinn þar býður upp á mikla mögu-
leika, og standa vonir til að Ostadagarnir í
ár verði glæsilegri en nokkru sinni fyrr.
Vatnsskortur í heiminum
Vatnsskortur er að verða eitt mesta vanda-
mál mannkyns. Talið er að 2/3 hlutar þess
muni lifa við skort á hreinu drykkjarvatni
eða skorti á nægu magni vatns til áveitu í
landbúnaði upp úr 2025. Vatn mun því
hækka í verði vegna umfram eftirspurnar og
hafa áhrif á verð landbúnaðarafurða þegar
til lengri tíma er litið.
ið tókum í notkun fyrir
nokkru nýjar pökkunar-
vélar sem stuðla í ríkum mæli
að bættri nýtingu á hráefni og
umbúðum,“ sagði Snorri Ev-
ertsson mjólkurbússtjóri hjá
Mjólkursamlagi Skagfirðinga á
Sauðárkróki, þegar Mjólkur-
fréttir slógu á þráðinn til hans í
leit að fréttum. „Hér er bæði
um að ræða endurnýjun gam-
alla véla og nýjung varðandi
pökkun á smjörva sem við höf-
um ekki annast fyrr.
2500 dósir á klukkustund
Við keyptum vélasamstæðu,
sem pakkar osti bæði í
geymslu- og neytendapakkn-
ingar, og einnig vél sem pakk-
ar smjörva og afkastar liðlega
2500 dósum á klukkustund.
Eftir að hún var tekin í notkun
hefur smjörvi verið fluttur frá
Mjólkursamlaginu á Blönduósi
og honum pakkað hér hjá okk-
ur. Kostnaður við vélakaupin
nam um 15 milljónum króna,
en þau eru aðeins einn þáttur í
stöðugri endurnýjun á tækja-
búnaði sem staðið hefur yfir í
nokkur ár og hófst með mark-
vissu átaki í byrjun tíunda ára-
tugarins. Tækjakostur okkar er
nú í hæsta máta nútímalegur
og hefur átt sinn þátt í bættri
afkomu mjólkursamlagsins síð-
ustu ár.“
Ferskur Mozzarella-ostur
„Mig langar til að minnast á
Mozzarella-ostinn okkar en við
höfum lagt mikla vinnu í fram-
leiðslu á honum,“ sagði Snorri
ennfremur. „Sérstaklega hefur
ferski Mozzarella-osturinn átt
velgengni að fagna. Nýlega
hófst hjá okkur framleiðsla á
slíkum osti sem er eins og litlar
kúlur í laginu og við stefnum
að því að hann komi á markað
í neytendaumbúðum þegar líð-
ur á árið. Við erum líka farnir
að framleiða ost í laginu líkt
og slöngur eða pylsur. Það er
stöðugt vaxandi sala í
Mozzarella-ostinum, sérstak-
lega hinum ferska. Pizzustað-
irnir kaupa aðallega hinn sí-
gilda Mozzarella-ost en ferska
ostinn kaupa neytendur til
jafns við veitiungastaði og aðra
stórnotendur.“ •
N ý j a r p ö k k u n a r v é l a r
á S a u ð á r k r ó k i
Bætt
nýting á
hráefni og
umbúðum
Snorri Evertsson
Nýju pökkunarvélarnar hjá Mjólkursamlagi Skagfirðinga á Sauðárkróki.
„V