Bændablaðið - 10.03.2004, Side 25
Miðvikudagur 10. mars 2004 25
Í apríl opnar Hótel Saga 125 nýuppgerð herbergi. Í tilefni af því bjóðum við íslenskum
bændum að vera fyrstir til að gista á nýju herbergjunum. Til að fagna þessum áfanga bjóðum
við páskakokkteil í kaupbæti!
Tilboðin gilda bæði á Hótel Sögu og Hótel Íslandi allan aprílmánuð.
Bændaverð á Hótel Sögu:
Tveggja manna herbergi með morgunverði kr. 7.740
Bændaverð á Hótel Íslandi:
Tveggja manna herbergi með morgunverði kr. 5.900
Til að fá ofangreind verð þurfa bændur að framvísa Bændakorti
sem fæst á skrifstofu Bændasamtaka Íslands.
Hótel Saga og Hótel Ísland: Tilboð til bænda
Radisson SAS Hótel Saga, Hagatorgi, 107 Reykjavík
Sími 525 9900 / info.saga.rek@radissonsas.com
Radisson SAS Hótel Island, Ármúla 9, 108 Reykjavík
Sími 595 7000 /
info.island.rek@radissonsas.com
www.radissonsas.com
Þann 19. mars n.k. verður
haldin málstofa á Hótel Lof-
tleiðum um erfðaauðlindir í
landbúnaði. Skipuleggjandi
málstofunnar er erfðanefnd
landbúnaðarins.
Í kjölfar samnings Sameinuðu
þjóðanna um líffræðilega
fjölbreytni, sem samþykktur var í
Ríó fyrir rúmum áratug, skuld-
bundu þjóðir heims sig til að
vernda og viðhalda erfðaauð-
lindum, bæði í villtum og ræktuð-
um tegundum. Litið er á líf-
fræðilega fjölbreytni sem sam-
eiginlega auðlind alls mannkyns
en jafnframt er lögð áhersla á um-
ráðarétt þjóða yfir eigin erfðaauð-
lindum og þar með ábyrgð á
verndun þeirra ef þörf krefur.
Hefðbundinn landbúnaður hér á
landi byggist fyrst og fremst á
nýtingu gamalla búfjárkynja. Með
aukinni alþjóðavæðingu og opnun
markaða er brýnna en oft áður að
tryggja varðveislu þessara bú-
fjárkynja. Erfðanefnd landbúnað-
arins er ætlað það hlutverk að
vinna að varðveislu og sjálfbærri
nýtingu erfðaauðlinda í land-
búnaði. Í starfi sínu á hún ekki ein-
göngu að sinna búfé heldur einnig
nytjajurtum, skógarplöntum og
ferskvatnsfiski.
Á málstofunni verður fjallað
um stöðu þessa málaflokks hér á
landi. Einnig verður gerð grein
fyrir því starfi sem unnið er á nor-
rænum og alþjóðlegum vettvangi.
Loks verður fjallað um einstök
rannsóknarverkefni sem unnin
hafa verið í tengslum við erfða-
breytileika í dýrum og plöntum.
Deginum lýkur með móttöku í
boði landbúnaðarráðherra.
Málstofan er öllum opin.
Þátttaka er ókeypis en óskað er
eftir því að menn skrái sig eigi
síðar en 18. mars í síma 591-1500
eða með tölvupósti (anna@rala.is)
og tilkynni jafnframt hvort þeir
hafi áhuga á því að snæða hádegis-
verð á Hótel Loftleiðum (< 2000
kr).
Málstofa um erfða-
auðlindir í landbúnaði
Málstofan er tileinkuð Stefáni
Aðalsteinssyni, fyrrum sérfræð-
ingi á Rannsóknastofnun land-
búnaðarins og fyrsta forstjóra
Norræna genbankans fyrir húsdýr
í virðingarskyni vegna starfa hans
á þessu sviði í áratugi. Myndin
sem er úr safni Freys var líklega
tekin laust eftir 1980.
Árið 1998 hannaði og smíðaði
Agnar Jónsson í Stykkishólmi
rúllubaggaskera sem bændum líki
svo vel að hann hefur vart undan
að framleiða þá. Hann segir að sig
hafi vantað svona áhald þar sem
hann er tómstundabóndi eins og
hann orðar það og eftir nokkra
umhugsun varð útkoman þessi
skeri.
Hann segist vera búinn að selja
mikið magn eftir að hann auglýsti
rúllubaggaskerann í
Bændablaðinu. Til að mynda
bárust honum yfir 30 pantanir eftir
að auglýsing birtist 27. janúar sl.
Agnar segist vera búinn að selja
einhver hundruð af þessu tæki og
að hann hafi vart undan að
framleiða. Rúllubaggaskerinn er
mjög léttur eða 2,2 kg. Í skaftinu
er hálf tommu rör og
Badenhnífablöð soðin á.
Agnar fæst við ýmislegt fleira
en að smíða rúllubaggaskera.
Hann rekur tjaldvagnaleigu yfir
sumarið og þá er hann líka með
ferðaþjónustu í félagsheimilinu
Skildi við Stykkishólm. Þar eru
tjaldstæði og aðstaða fyrir
ættarmót og fleiri samkomur.
Á haustin hefur Agnar ferðast
um og aðstoðað bændur við
heimaslátrun. Hann kaupir af þeim
gærur, verkar þær og selur. Í haust
segist hann hafa verkað á fjórða
þúsund gærur. Það er því sitt af
hverju sem þessi uppfinninga- og
handverksmaður fæst við. Ef
bændur vantar rúllubaggaskera er
síminn hjá Agnari 438-1510 og
893-7050.
Guðrún Bergmann, dóttir Agnars, situr hér á heyrúllu með
rúllubaggaskerann góða í fanginu.
Hannaði rúllubaggaskera og
hefur vart undan að framleiða
Um tvö tonn af folaldakjöti
hafa verið flutt út í
tilraunaskyni til Ítalíu til Heinz
fyrirtækisins en það hefur
mikinn hug á því að fara að
framleiða barnamat fyrir
ungabörn úr folaldakjötinu.
Fyrst og fremst er verið að
sækjast eftir hreinleika kjötsins.
Það eru Kjötframleiðendur sem
hafa séð um útflutninginn en að
sögn Guðmundar Lárussonar
stjórnarformanns er miklar
vonir bundnar við að samningar
náist við Heinz. Þá hefur
fyrirtækið einnig áhuga á að fá
íslenskt dilkakjöt í framleiðslu
sína. Tveir sérfræðingar á
vegum Heinz hafa verið hér á
landi og skoðað sláturhúsið á
Hvammstanga og hjá SS á
Selfossi en uppfylla þarf nokkur
tæknileg atriði í þessum húsum
áður en slátrun getur hafist af
alvöru.
Folalda- og dilkakjöt í Heinz
barnamat fyrir ungabörn