Bændablaðið - 10.03.2004, Page 27
Miðvikudagur 10. mars 2004 27
Fram-Ræktun,
hrossaræktarráðstefna
Í tilefni 100 ára afmælis Hrossaræktarfélags A-Landeyja
hefur stjórn félagsins ákveðið að boða til opinnar
ráðstefnu um sögu og þróun hrossaræktar föstudaginn 19.
mars í Gunnarshólma, A-Landeyjum.
Kl. 13.00
Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra, setur
ráðstefnuna.
Kl. 13.15
Bergur Pálsson, formaður Hrossaræktarfélags A-Landeyja
flytur erindi sem hann nefnir Saga og þróun starfs
Hrossaræktarfélags A-Landeyja.
Kl. 13:45
Um sögu töltsins. Björn Kristjánsson, forstöðumaður
söguseturs íslenska hestsins.
Kl. 14.15
Þróun dómsaðferða og dómsskala kynbótahrossa í
gegnum tíðina Kristinn Hugason, fyrrv. landsráðunautur í
hrossarækt.
Kl. 14.45
Ættfeður íslenska hestakynsins. Þorvaldur Kristjánsson,
kynbótadómari og M.sc. nemi við LBH.
Kl. 15.15
Kaffihlé
Kl. 15.45
Stiklur úr landsmótum frá upphafi
Kl. 16.15
Horft til framtíðar. Ágúst Sigurðsson, landsráðunautur í
hrossarækt.
Kl. 16.45
Ráðstefnuslit.
Skipuleggjendur ráðstefnunnar biðja áhugasama um að
skrá sig til þáttöku sem fyrst, en það má gera á tvo vegu: Á
veraldarvefnum með sérstöku skráningarformi á
heimasíðu Búnaðar-sambands Suðurlands, slóðin
www.bssl.is. Með tölvupósti eða símtali við Berg í síma
894-0491 (holmahj@bakkar.is) eða Pétur Halldórsson,
ráðstefnustjóra í síma 862-9322 (petur@bssl.is)
Ráðstefna föstudaginn 19. mars
í Gunnarshólma, A-Landeyjum
Landbúnaðarráðuneytið gekkst
í síðustu viku fyrir ráðstefnu um
framfarir og þróun í hrossarækt
og hestamennsku þar sem horft
var til ýmissa átaksverkefna á
vegum ráðuneytisins undanfarin
fjögur ár.
Guðni Ágústsson, land-
búnaðarráðherra, setti ráðstefnuna,
en síðan tóku til máls fulltrúar
hinna ýmsu verkefna. Sveinbjörn
Eyjólfsson, stjórnarformaður, og
Ingimar Ingimarsson, fram-
kvæmdastjóri Hestamiðstöðvar Ís-
lands í Skagafirði gerðu grein fyrir
verkefnum HmÍ og röktu stærstu
mál er það verkefni varðar, auk
þess sem Björn Kristjánsson frá
Sögusetri íslenska hestsins kynnti
setrið. Einnig tók til máls Anna
Karólína Vilhjálmsdóttir frá
Íþróttasambandi fatlaðra sem
talaði um samstarf ÍF og HmÍ og
sagði hún stuðning Hestamið-
stöðvarinnar við reiðþjálfun
fatlaðra hafa skipt sköpum og
komið þeim málum á góðan rek-
spöl sem nauðsynlegt væri að
fylgja eftir. Árni Gunnarsson frá
Leiðbeiningarmiðstöðinni ehf. á
Sauðárkróki sagði HmÍ hafa
áorkað miklu og tvímælalaust haft
jákvæð áhrif á atvinnulíf á
svæðinu. Lítillega var rætt um
næstu skref þar sem þessu verkefni
lýkur á árinu og kynnti Ingimar
m.a. hugmyndir um svokallaðan
“hestafulltrúa Skagafjarðar.”
Ágúst Sigurðsson kynnti svo
starfsemi átaksverkefnis í hesta-
mennsku og gagnagrunninn
WorldFeng í forföllum Jóns Bald-
ur Lorange. Jónas Kristjánsson
fjallaði um rekstur og ritstjórn
tímaritsins Eiðfaxa en þar hefur
orðið viðsnúningur í rekstrinum á
einu ári, frá tugmilljóna tapi yfir í
hagnað upp á u.þ.b. fjórar
milljónir. Víkingur Gunnarsson
kynnti knapamerkjakerfið svo-
kallaða, sem er stigskipt námsefni
í reiðmennsku og að lokum tók
Ágúst aftur til máls og sagðist telja
átaksverkefnið hafa komið miklu
til leiðar, en enn væri þó fjöldi
brýnna verkefna sem biði og
hestamenn mættu ekki slá af.
Umboðsmaður íslenska hests-
ins, Jónas R. Jónsson, var for-
fallaður, en í hans stað kynnti
Hákon Sigurgrímsson úr land-
búnaðarráðuneytinu starf umboðs-
mannsins og þar á eftir kynnti
Skúli Skúlason skólameistari Há-
skólans á Hólum stefnu skólans og
framtíðarsýn á sviði hrossaræktar
og hestamennsku.
Nokkrar umræður spunnust um
verkefnin og voru flestir á því að
þau hefðu skilað góðum árangri og
tók landbúnaðarráðherra undir það
og sagði þau hafa skilað mun
meiru en hann hefði þorað að láta
sig dreyma um. Að lokum tók
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra til máls þar sem hann
hvatti hestamenn til dáða á öllum
sviðum, þeir skyldu leitast við að
vera sjálfstæðir og láta einka-
framtakið njóta sín. /HGG
Umtalsverður árangur af
átaksverkefnum í hrossarækt
og hestamennsku
Jónas Kristjánsson, ritstjóri Eiðfaxa, sat á milli þingmannanna Önnu
Kristínar Gunnarsdóttur (t.v.) og Drífu Hjartardóttur. Á fundinum kom
fram að rekstur Eiðfaxa undir stjórn Jónasar gengur nú vel. /Bbl. HGG
Sturtuvagnar
og stálgrinda-
hús frá
WECKMAN
Sturtuvagnar
Einnig þak-
og veggstál.
Stálgrindahús.
Margar gerðir,
hagstætt verð.
H. Hauksson ehf
Suðurlandsbraut 48
Sími: 588 1130
Fax: 588 1131