Bændablaðið - 06.07.2004, Blaðsíða 1

Bændablaðið - 06.07.2004, Blaðsíða 1
Auglýsingasíminn er 563 0300 Netfang bbl@bondi.is Næsta blað kemur út 31. ágúst en við mætum til starfa 16. ágúst SÖFNUN OG ENDURNÝTING HEYRÚLLUPLASTS 24 Upplag Bændablaðsins 11.500 Þriðjudagur 6. júlí 2004 13. tölublað 10. árgangur Blað nr. 200 Grasmaðkur hefur eytt gróðri um mestalla Landbrotsafrétt í Skaftárhreppi langt fram á heiðar. Landið er allt hvítt yfir að líta nema örfáir mýrarflákar en þar þrífst grasmaðkur ekki. Allt valllendi er gersamlega gróðurlaust. Bændur hafa orðið að fresta því að reka fé á afrétt vegna þessa því þar er enga beit fyrir það að hafa eins og sakir standa. Hilmar Jónsson, bóndi í Þykkvabæ III í Landbroti, sagði í samtali við Bændablaðið að vissulega hefðu bændur á þessum slóðum séð grasmaðk áður eyða gróðri. Hins vegar væri þetta svo stórt svæði sem hann hefði lagst á núna að menn hefðu aldrei séð annað eins og aldrei fyrr séð grasmaðk svona innarlega. Hér væri um tugi ferkílómetra að ræða. ,,Þetta er svo ótrúlegt að það líkist helst náttúruhamförum. Landið er alveg hvítt eins og um hávetur væri og ekki stingandi strá á svæðinu. Sigurgeir Ólafsson, forstöðumaður plöntueftirlits RALA, segir að grasmaðkur sé gamalt vandamál í aldanna rás og að á ákveðnum svæðum á landinu sé alltaf hætta grasmaðki. Geir Gígja gerði ítarlegar rannsóknir á grasmaðki um 1950 og voru niðurstöður hans gefnar út hjá Atvinnudeild Háskólans. Þar kemur fram að einkum tvö svæði á landinu séu viðkvæm fyrir grasmaðki. Það sem hann kallaði svæði númer eitt er þetta svæði þar sem maðkurinn herjar nú eða sveitin milli Mýrdalssands og Skeiðarársands sem kölluð er Sveitin milli sanda. Hitt svæðið er í Landssveit. Hins vegar hefur orðið vart við grasmaðk um allt land. Sigurgeir segir að með betri ræktun bænda verði grasmaðkurinn meira vandamál í úthaga eins og nú er í Landbrotsafrétti en í túnum. Maðkurinn herjar frá því seinnihluta maí og til júníloka. Nú er kominn sá tími að hann fer að púpa sig og þá hættir maðkurinn að gera skaða. Sigurgeir segir það fara eftir gróðrinum hve langan tíma hann sé að jafna sig eftir maðkinn. Hann segist hafa séð tún jafna sig að mestu á einum mánuði en það fari eftir tíðarfari og rigning flýti fyrir að gróðurinn jafni sig. Grasmaðkur herjar á Landbrotsafrétt Hagstætt að flýta sauð- fjárslátrun Í ár voraði óvenju snemma og gróður var mun fyrr á ferðinni en í meðalári. Svipað gerðist í fyrra en þó mun þetta vor hafa vinn- inginn. Þegar svo snemma vorar er hætt við að grös sölni snemma, það sýnir reynslan. Próteininni- hald fer að falla snemma, jafnvel á miðju sumri. Nú má gera ráð fyrir líkt og þá að ekki verði mikill munur á næringargildi gróðurs eftir hæð yfir sjávarmáli. Sam- kvæmt mælingum á grasþroska á nokkrum stöðum á landinu virðast túngrös þroskast fyrr en vorið 2003. Þegar árferði og gróðurfar er svona og prótein fer að verða tak- markað í fóðri lambanna um og upp úr miðju sumri er hætta á að þau fari að safna fitu meir en góðu hófi gegnir miðað við nútíma markaðskröfur. Því er ráðlegt að flýta sauðfjár- slátrun í haust til þess að ekki komi til verðfellingar vegna fitu sem getur eytt ávinningi vegna meiri fallþunga. Til þess að hægt sé að flýta slátrun í haust gæti þurft að flýta göngum og réttum sums staðar á landinu. Slíkt krefst nokkurs undir- búnings og því er rétt að fara að skoða þau mál áður en langt um líður. Í því sambandi getur þurft að gera a.m.k. tímabundnar breytingar á fjallskilasamþykktum, t.d. ef göngum og réttum er flýtt um viku. Þá ber að virða sjónarmið ferða- þjónustunnar í landinu því að í vax- andi mæli eru skipulagðar ferðir í réttir og jafnvel göngur líka, bæði fyrir hópa og einstaklinga. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið. /Ó.R.D. “Uppbygging nýrrar kennsluað- stöðu á Hvanneyri fyrir naut- griparæktina var tímabær og með sameiginlegri stefnumörkun Landbúnaðarháskólans og Rann- sóknastofnunar landbúnaðarins sköpuðust nýir möguleikar á að tengja saman allt kennslu og rann- sóknastarf nautgriparæktarinnar og tryggja sameiginlegt fræðastarf í greininni. Með tilkomu þessa nýja fjóss er möguleiki til þess að hér geti risið þróunarsetur naut- griparæktarinnar með náinni aðkomu atvinnuvegarins og fræðasamfélagsins. Nautgripa- ræktin mun um ófyrirsjánlega framtíð verða öflugasta búgrein hefðbundinnar búvöruframleiðslu og mun þurfa á sífellt öflugra fræðastarfi og stoðþjónustu að halda,” sagði Magnús B. Jónsson rektor LBH. “Þegar þessu verkefni er um það bil að ljúka er ánægjulegasta tilfinn- ingin sú hversu mikil samvinna og samstaða hefur verið milli allra þeirra sem málið varðar. Undirbún- ingur var unninn í samstarfi margra aðila. Fjármögnunin er sameiginleg ríkisins og Framleiðnisjóðs og síðan hafa margir aðilar veitt okkur margháttaðan stuðning við að ljúka verkinu. Þegar er farið að ræða um sameiginleg verkefni sem unnin verða í fjósinu. Það verður því með mikilli ánægju sem við tökum fjósið formlega í notkun þann 6. ágúst n.k. kl. 13.00, en þá munum við hafa opið hús og kynna nýja fjósið og eru allir kúabændur og aðrir velunnarar Landbúnaðarháskólans velkomnir til þeirrar samverustundar,” sagði rektor. Sjá líka bls. 21. Nýtt fjós á Hvanneyri Nú hillir undir að nýja kennslu- og rannsóknafjósið á Hvanneyri verði tekið í notkun Magnús B. Jónsson í nýja fjósinu á Hvanneyri. Tímamót hjá Bændablaðinu Með útgáfu þessa tölublaðs hefur Bændablaðið náð ákveðnum tímamótum, en hér er á ferð 200. blaðið sem kemur út frá því að Bændasamtökin hófu útgáfuna. Tveir starfs- menn hafa fylgt blaðinu frá upphafi; þeir Áskell Þórisson, ritstjóri, og Eiríkur Helgason, auglýsingastjóri. Blaðamaður er Sigurdór Sigurdórsson.Meira um málið á blaðs. 28 og 29. 31 Málaði eina mynd á dag 16 Landsmót hestamanna var haldið á Hellu um síðustu helgi. Á blaðsíðu 26 eru nokkrar svipmyndir frá mótinu en hér má sjá Daníel Jónsson á Þór- oddi frá Þóroddsstöðum sem stóð sig afburða vel á mótinu.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.