Bændablaðið - 06.07.2004, Blaðsíða 23

Bændablaðið - 06.07.2004, Blaðsíða 23
Þriðjudagur 6. júlí 2004 23 Ingunn Stefánía Svavarsdóttir, sálfræðingur, fagurlistaverka- kona og fyrrum sveitarstjóri í Öxarfjarðarhreppi, hefur komið sér upp sérstæðu myndlistar- sýningarhúsi og vinnustofu. Þetta er í gömlum bragga sem hún keypti og gerði upp en hann hafði verið notaður sem fjárhús. Húsið hefur fengið nafn og heitir Bragginn. Ingunn býr ásamt fjölskyldu sinni á bænum Vin í Núpasveit í Öxarfirði. Bragginn stendur á túni sem er í beinu framhaldi af eignar- lóð þeirra og þau keyptu túnið og Braggann. Þar var opnuð mjög sérstæð myndlistarsýning 3. júlí sl. og mun vera opin í tvær vikur. Eftir að Ingunn hætti af- skiptum af sveitarstjórnarmálum segist hún hafa söðlað um og hafið myndlistarnám í Mynd- listarskólanum á Akureyri, þaðan lauk hún námi eftir fjögurra vetra nám árið 2002. Síðan þá hefur hún verið að gera Braggann upp og koma honum í það horf að vera vinnustofa hennar og sýningarsalur. Það fólk sem útskrifaðist frá Myndlistarskólanum á Akureyri með Ingunni og þrír af kennurum skólans hafa hist mánaðarlega yfir veturinn síðan 2002, fengið sér súpu og rabbað saman. Hópurinn kallar sig enda Súpuna og það er þetta fólk sem sýnir myndir sínar í Bragganum en þær eru afrakstur vetrarstarfsins. Síðastliðið haust var ákveðið að stefna á sýninguna og að þema sýningarinnar yrði hei- lög María. Öll verkin á sýningunni eru innan þessa þema og eru sýnd í fyrrum fjárhúsi. Vegna þess rifjaði Ingunn upp að hér á landi hafi verið 7 Maríu- messur haldnar hátíðlegar fram á miðja 16. öld en þá voru þrjár þeirra lagðar niður og hinar fjórar árið 1770. Alveg fram til 1880 notuðu kúasmalar eftirfarandi Maríubæn: Hott, hott í haga kýrnar vilja naga, farið hvorki í mitt tún né annarra tún, farið hvorki í mínar engjar né annarra engjar. Sánkti Jóhannes vísi ykkur veginn þangað sem grasið er. Sæl María guðsmóðir sestu nú á stein og gáðu vel að kúnum mínum meðan ég fer heim. Sérstæð myndlistarsýning í Bragganum í Öxarfirði

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.