Bændablaðið - 06.07.2004, Blaðsíða 9

Bændablaðið - 06.07.2004, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 6. júlí 2004 9 Þegar ekið fram hjá Brjánsstöð- um í Skeiða- og Gnúpverja- hreppi blasir við óvenju glæsi- legt hótel og fáni Ferðaþjónustu bænda blaktir við hún. Þarna ráða ríkjum mæðgurnar Hilde- gaard Durr og Sigrún Hauks- dóttir sem er hótelstjóri. Hún segir að þær hafi tekið við hótelinu um páska árið 2003 og að reksturinn hafi gengið mjög vel síðan. Í vetur hafi verið mikið um ráðstefnur og fundi á hótelinu en það er vel í stakk búið til að taka við slíkum samkomum, með tvo fundarsali. Annar er fyrir 40 manns en hinn 80 manns og eru salirnir búnir öllu sem til þarf til ráðstefnuhalds. Hótelherbergin eru 37. Hótel Hekla er sem fyrr segir innan Ferðaþjónustu bænda. Sigrún segir að það skipti hótelið öllu máli að vera innan FB. Sigrún segist leggja mikið upp úr góðum mat og býður upp á fiskrétti úr glænýju hráefni og kjötrétti úr lambakjöt sem hún segist fá víðs vegar að af landinu bara eftir því hvar besta kjötið sé að fá. Hún segir erlenda gesti mjög ánægða með lambakjötið en jafnvel enn ánægðari með fiskinn vegna þess hve nýtt hráefnið er. Sigrún segir Íslendinga geta verið stolta af matnum sem hægt er að bjóða erlendum gestum upp á. Hagyrðinga- mót á Hvols- velli í ágúst Landsmót hagyrðinga 2004 verður haldið á Hvolsvelli laugardagskvöldið 21. ágúst. Dagskrá verður kynnt nánar í blöðum þegar nær dregur. Fyrri mót á Suðurlandi voru haldin á Laugalandi 1999 og Flúðum 1994 en síðasta mót, landsmót 2003 var haldið á Djúpa- vogi og heppnaðist vel með heið- ursgestinum Vilhjálmi frá Brekku. Þessi árlegu mót, sem hófust með kvöldstund nokkurra kunn- ingja norður á Skagaströnd 1989, hafa fetað sig kringum landið, kveikt marga vísu og spunnið vinarþræði yfir firði og jökla. Ólafur Ólafsson á Hvolsvelli stýrir undirbúningi mótsins. Mótið verður í Félags- heimilinu Hvoli en Hótel Hvols- völlur sér um alla þjónustu og veitingar þ.á.m. gistingu á mjög hagstæðu verði. Þátttaka í mótinu og pantanir á gistingu tilkynnist til hótelsins í síma 487-8050. Hagyrðingaritin með vísur frá mótunum eru unnin í Víkurprenti á Dalvík og eru einnig til sölu í Húnaveri. Ferðaþjónusta bænda skiptir okkur öllu máli Óvenju glæsilegt hótel er að finna í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. T.v. er Sigrún Hauksdóttir hótelstjóri. Þjónustu- miðstöð fyrir Massey Ferguson og Fendt dráttarvélar Viðgerðir og varahlutaútvegun Smíðum glussaslöngur í allar gerðir landbúnaðarvéla. MF Þjónustan ehf Grænumýri 5b, 270 Mosfellsbæ Sími: 566-7217, fax: 566-8317 Netfang: traktor@isl.is

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.