Bændablaðið - 06.07.2004, Qupperneq 11
Þriðjudagur 6. júlí 2004 11
Upp við Gullfoss er veitingastaður sem heitir
Gullfoss-kaffi og þar ræður ríkjum Svavar
Njarðarson. Fyrir ári byrjaði Svavar að bjóða
gestum upp á íslenska kjötsúpu með brytjuðu kjöti út
í. Hann segir að þetta hafi slegið rækilega í gegn hjá
erlendum ferðamönnum. Í Gullfoss-kaffi er aðeins
boðið upp á íslenska mat. Hamborgarar, pizzur og
annað "jukkfæði" er ekki boðið þar.
,,Við leggjum mikið upp úr kjötsúpunni og það er
vel í hana lagt. Við sjóðum hana daginn áður en farið
er að selja hana. Eftir að hún hefur staðið yfir nótt er
hægt að veiða fituna ofan af súpunni. Menn kalla
þessa súpu ,,Uppsveitabombuna" og uppskriftin mun
ekki leka út," sagði Svavar í samtali við
Bændablaðið.
Hann segist vera stoltur af því að bjóða bara
íslenskan mat, kindakjöt, íslenskt grænmeti frá
Flúðum og Reykholti og kartöflurnar ræktaðar á
Skeiðum. Hann segist líka verða var við að erlendum
ferðamönnum líki þessi stefna hans vel.
Auk kjötsúpunnar er boðið upp á heimabakaðar
kökur og samlokur sem eru smurðar á staðnum og
þeir fáu sem ekki vilja kjötsúpuna geta fengið
aspassúpu.
Gullfoss-kaffi
Íslensk kjötsúpa vinsæl hjá erlendum ferðamönnum
Sauðfjárbændur
geta gert samning
um áframhaldandi
beingreiðslur
Rétt er að vekja athygli
sauðfjárbænda á þeim
möguleika að gera samning
um áframhaldandi bein-
greiðslur í sauðfé, sbr.
samþykt Alþingis í lok sl.
árs, en eftirfarandi
lagagrein búvörulaga
hljóðar svo: "Landbúnaðar-
ráðherra er heimilt að gera
samninga við
sauðfjárbændur, sem hafa
náð eða ná 64 ára aldri á
tímabilinu 2004–2007, um
að eiga hvorki né halda
sauðfé til og með 31.
desember 2007 en halda
óskertum beingreiðslum á
sama tíma á meðan
greiðslumark sauðfjár er í
eigu hlutaðeigandi bænda
og áfram skráð á lögbýli.
Þeim er þó heimilt að halda
eftir allt að tíu vetrar-
fóðruðum kindum, enda séu
afurðir þeirra til eigin nota.
Ráðherra er jafnframt
heimilt að kveða svo á um í
samningunum að þeir
bændur sem hyggjast hefja
sauðfjárrækt að nýju megi
koma sér upp bústofni frá 1.
september 2007.
Samningunum skal þinglýst
sem kvöðum á viðkomandi
lögbýli sem gilda til 31.
desember 2007. Verði
eigendaskipti að greiðslu-
marki eða lögbýli fellur
samningurinn niður og hin
þinglýsta kvöð."
Þess má geta að
ráðuneytið er byrjað að
gera samninga við bændum
skv. framangreindri
heimild.
Þessi ungumenni hafa þann starfa
á Hvanneyri að laga til og hreinsa.
Þau voru að vinna hjá nýja fjósinu
þegar Bændablaðið fékk góðfús-
legt leyfi til myndatöku. F.v. Aða-
lheiður, Orri, Álfheiður, Jónas,
Sigurður Óskar og fremstur er
Gunnar ingi.
fjölnota
gripaflutningakerrur
4 - 5 hesta kerrur á hagstæðu verði
Lágmúla 7
S: 588 2600
og 893 1722
Eigum einnig kerrur sem rúma tvo til þrjá
hesta á aðeins kr. 438.660- án/vsk.
Ný
send
ing!