Bændablaðið - 06.07.2004, Síða 25

Bændablaðið - 06.07.2004, Síða 25
Þriðjudagur 6. júlí 2004 25 bændur. Eina skilyrði Úrvinnslusjóðs er að sá aðili sem sveitarfélagið semur við sé skráður þjónustuaðili hjá Úrvinnslusjóði. VOG 1 er til að sjá hvað berst til þjónustuaðila frá bændum í hverju héraði. Ekki er ætlunin að vigta plast frá hverjum bónda heldur einungis plast af heilum svæðum. VOG 2 sýnir hve miklu þjónustuaðili skilar til ráðstöfunar- aðila. Úrvinnslusjóður greiðir þjónustuaðilanum gegn vigtarseðli og móttökuyfirlýsingu frá skráð- um ráðstöfunaraðila. Hvorki sveitarfélag né bóndi fá greiðslu frá Úrvinnslusjóði en sveitarfélagið gæti lækkað sorp- hirðugjöld bænda, vegna greiðslu Úrvinnslusjóðs til þjónustuaðila. LEIÐ 3 SVEITARFÉLÖG REKA SÖFNUNARSTÖÐVAR SEM BÆNDUR SKILA TIL - VERKTAKAR SÆKJA PLAST TIL SÖFNUNARSTÖÐVA Sveitarfélög reka söfnunar- stöðvar víðs vegar um landið. Þar er tekið á móti úrgangi frá ein- staklingum og lögaðilum sam- kvæmt nánari reglum þar um. Stöðvarnar eru ýmist mannaðar eða ómannaðar. Sveitarfélögin hafa þá skyldu á herðum að taka við heyrúlluplasti frá þeim bænd- um sem óska eftir að losna við plastið í söfnunarstöð. Á söfnunar- stöðvum er mótteknu heyrúllu- plasti haldið til haga flokkuðu frá öðru sorpi og geymt uns þjónustu- aðili Úrvinnslusjóðs tekur það. Hugsanlega verður þar gerður greinamunur á endurnýtanlegu plasti og ekki endurnýtanlegu. "Þjónustuaðili" er hver sá sem safnar plasti og kemur því til end- urnýtingar eða förgunar. Dæmi- gerður þjónustuaðili gæti verið gámaþjónustufyrirtæki, sorphirðu- fyrirtæki eða verktaki sem hefur yfir að ráða flutningatækjum. Þjónustuaðilinn semur við söfnun- arstöðvar sveitarfélaga, sér um flutning heyrúlluplasts frá þeim, flokkar, (for)vinnur og kemur síðan (for)unnu heyrúlluplasti til ráðstöfunaraðila sem endurnýtir plastið eða urðar ef það er ekki hæft til endurnýtingar. Þjónustuaðili vigtar plast frá söfnunarstöð(vum) hvers sveitar- félag (VOG 1). Þessi vigtun er grundvöllur greiðslu Úrvinnslu- sjóðs til sveitarfélagsins fyrir þjónustu þess í söfnunarstöðinni. Þjónustuaðilinn forvinnur hugsanlega plastið, t.d. með því að bagga það, og kemur því til ráð- stöfunaraðila sem endurnýtir það. Ráðstöfunaraðilinn gefur úr mótttökukvittun og vigtarnótu (VOG 2) sem þjónustuaðilinn framvísar hjá Úrvinnslusjóði - og fær þjónustuaðilinn þá greiðslu fyrir. Þjónustuaðilinn greiðir ráð- stöfunaraðilanum fyrir móttökuna. Úrvinnslusjóður greiðir sveit- arfélaginu fyrir aðstöðu í söfnun- arstöð samkvæmt upplýsingum frá þjónustuaðila (VOG 1) Bóndinn ber kostnað af sinni heimavinnu og af flutningi plastsins til söfnunarstöðva sveitarfélags. ÝMIS ÁKVÆÐI OG SKYLDUR - ÓHÁÐ HVAÐA LEIÐ ER VALIN Allir þjónustuaðilar, allir ráð- stöfunaraðilar og þeir bændur, sem vilja skila beint til ráðstöfunar- aðila, sækja um til Úrvinnslusjóðs og undirgangast tilheyrandi skil- mála. Umsóknin og afgreiðsla hennar hjá Úrvinnslusjóði er um- sækjendum að kostnaðarlausu. Vogir 1 geta verið hjá þjónu- stuaðilum og vogir 2 hjá ráð- stöfunaraðilum. Einnig geta þessar vogir verið næsta hafnarvog eða önnur löggilt vog sem aðilar verða ásáttir um að nota. Bændur sem notendur/kaup- endur heyrúlluplasts greiða úr- vinnslugjald sem innifalið er í verði plastsins (opinberum gjöld- um af því). Það er því hagur bænda að kostnaður við förgun plastsins haldist sem lægstur þar sem úrvinnslugjaldinu er ætlað að standa undir þessum kostnaði. Til að gera endurnýtingu mögulega er mikilvægt að bændur gangi vel um plast sem fellur til hjá þeim. Mikilvægt er að hreinsa plastið sem best (hrista vel) eftir að það hefur verið tekið utan af heyinu og lágmarka þannig það hey sem eftir verður í plastinu. Allir aðskotahlutir, svo sem jarð- vegur, timburbútar, málmhlutir eða baggabönd, gera endurvinnslu dýrari. Flutningur og öll með- höndlun á leið frá bónda til ráð- stöfunaraðila verður ódýrari ef búið er að setja notaða heyrúllu- plastið í t.d. áburðarsekki eða ef búið er að rúlla því saman og binda það inn eins og hey í heyrúlluplast. Þjónustuaðili sér um að taka plast sem safnast hefur á söfnunar- stöðvum sveitarfélaga og koma því til viðurkennds ráðstöfunar- aðila. Hann undirgengst skilmála Úrvinnslusjóðs þar sem m.a. kem- ur fram hvaða landssvæði hann hyggst þjóna. Hann hefur þær skyldur að losa að lágmarki árlega hjá hverri söfnunarstöð viðkom- andi landssvæðis en einnig ef óskað er tíðari losunar vegna mikils magns af plasti. Heyrúlluplast frá hverri söfnunarstöð skal vigta á löggiltri vog. Þessi vigtun er grundvöllur söfnunarstöðvagjalds sem Úr- vinnslusjóður greiðir viðkomandi söfnunarstöð/sorpsamlagi, beint og án milligöngu þjónustuaðila, fyrir meðhöndlun og geymslu. Þjónustuaðili hefur með höndum þessa vigtun fyrir hönd Úrvinnslu- sjóðs. Þjónustuaðilinn sér um flutn- inga frá söfnunarstöðvum til ráð- stöfunaraðila og samninga við þá. Gegn kvittun frá ráðstöfunaraðila, um móttekið magn, fær þjónustu- aðilinn greitt [kr/kg] frá Úr- vinnslusjóði. Sú greiðsla er fyrir hans vinnuframlag og til greiðslu förgunarkostnaðar hjá ráðstöfunar- aðilanum. Þjónustuaðilinn gerir upp vð ráðstöfunar- aðila. Ráðstöfunaraðilar sjá um endurnýtingu plastsins. Endur- nýtingin getur t.d. falist í endur- vinnslu eða brennslu til orkunýt- ingar. Vigtun inn til ráðstöfunar- aðila á löggiltri vog er grundvöllur greiðslu til þjónustuaðila. Þessi vog getur verið hvort sem er löggilt vog í starfsstöð ráðstöfun- araðilans eða önnur löggilt vog t.d. hafnarvog, sem samningsaðilar verða fyrirfram ásáttir um að nota. Ráðstöfunaraðili fær aldrei greitt beint frá Úrvinnslusjóði. Sóttvarnayfirvöld hafa ekki enn sett reglur um flutning plasts milli landssvæða, en málið er í athugun. Hér að neðan eru fyrstu tillögur yfirdýralæknis um reglur til að fyrirbyggja eða draga úr smithættu þegar verið er að flytja smitmengað efni eða hugsanlega smitmengað efni eins og rúlluplast af heyi sem ætlað er til endur- nýtingar. 1. Plasti frá mismunandi stöðum sé ekki safnað heim á staði þar sem búfé hefur aðgang að. Því skal t.d. alls ekki að safnað heima við sveitabæi. 2. Flutningstæki séu þrifin reglulega á viðurkenndum stöðum til slíks til að minnka hættu á smitburði. Passa skal að ekkert hrynji af tækjunum eða sé skilið eftir þar sem flutningstækin koma. 3. Hlífðarföt starfsmanna séu þrifin reglulega með viðeig- andi sótthreinsandi efnum. 4. Þeir sem starfa að söfnun plasts frá mismunandi stöðum fari ekki inn í gripahús til að taka plastið heldur hafi bændur áður því komið fyrir utan dyra. Gert er ráð fyrir að skilmálar Úrvinnslusjóðs fyrir söfnun og endurnýtingu heyrúlluplasts verði auglýstir í ágústmánuði 2004. Ari Teitsson hefur í umboði BÍ starfað með forsvarsmönnum Úr- vinnslusjóðs að mótun þeirra starfsaðferða og reglna sem gilda munu um meðferð og nýtingu úrvinnslugjalds sem lagt hefur verið á heyrúlluplast. Bændablaðið bað hann að gera stuttlega grein fyrir sínum viðhorf- um til þeirra ferillýsinga sem birtar eru hér í blaðinu. Frá 1. janúar 2004 er lagt gjald á innflutt heyrúlluplast samkvæmt lögum um úrvinnslugjald. Markmið laganna, sem taka til nokkurra flokka úrgangs, er m.a. að skapa hagræn skilyrði fyrir endurnotkun og endurnýtingu. Heyrúlluplast hefur ýmsa eigin- leika sem gera það frábrugðið öðrum úrgangi: Orkugildi plastsins er mjög mikið, sama orka á þyngdareiningu og í olíu. Efnið mjög varanlegt, þ.e. breytist ekki við geymslu jafnvel í mörg ár. Notkun plastsins mjög einsleit og því auðvelt að halda því að- skildu frá öðrum efnum eftir notkun. Allt eykur þetta möguleika á að halda plastinu til haga og endurnýta það. Eigi að síður hefur gengið illa að finna plastinu farvegi sem skila tekjum og þar með áhuga á endur- nýtingu og því er úrvinnslugjaldið sett á. Hér í blaðinu er lýst þremur leiðum sem plastið getur farið en skilyrði fyrir greiðslum úr Úr- vinnslusjóði vegna heyrúlluplasts er að það fari til nýtingar eftir viður- kenndum farvegi (endurvinnsla, bruni þar sem orkan er nýtt). Frá sjónarhóli bænda er æskilegast að þeir fái hlutdeild í greiðslum Úrvinnslusjóðs fyrir söfnun og endurnýtingu á plasti því þeir þurfa að hrista úr plastinu óhreinindi, halda því til haga og jafnvel pakka því. Slíkt gerist þó tæplega nema bændur á afmörkuð- um svæðum taki sig saman um að pakka eigin plasti og koma því síðan sameiginlega í úrvinnslu- farveg. Erfitt er að spá um hvernig möguleikar á afsetningu þróast en að jafnaði hefur verð á hráefni til framleiðslu heyrúlluplasts fylgt orkuverði og því líklegt að val- kostur sé að pakka plastinu til geymslu og sjá til með afsetningar- möguleika. Tæplega verður þó greitt út á plast í slíkum geymslum (gætu verið sameiginlegar geymsl- ur, t.d. malargryfjur eða rúllustæður heima á búum). Annar valkostur er að sveitar- félög eða aðrir aðilar sjái um söfnun og afsetningu en bændur geta þá tæplega vænst þess að fá greiðslu fyrir plastið. Þótt ferill plastsins hafi verið skilgreindur er eftir að ákveða hvernig greiðslum Úrvinnslusjóðs verður háttað. Einnig er eftir að semja við þá aðila sem taka plast til endurnýtingar um hvort og þá hvaða meðgjöf þeir fá með plastinu sem gæti verið breytileg eftir hreinleika plastsins og í hvaða formi því verður skilað, þar kann einnig að skipta máli hvernig áformað er að nýta plastið. Kjósi bændur á afmörkuðum svæðum að standa saman að söfnun plasts af sínu svæði kemur væntan- lega í þeirra hlut að finna því plasti hagkvæman endurvinnslufarveg. Hér eru kynntar hugmyndir um mögulega ferla plastsins, bændum og öðrum sem málið varðar gefst nú kostur á að koma með athugasemdir og ábendingar um hvað betur megi fara. Gert er ráð fyrir að í ágúst nk. verði kallað eftir áhuga þeirra sem vilja taka þátt í söfnun og endur- nýtingu heyrúlluplasts og þá munu jafnframt liggja fyrir hugmyndir um þær upphæðir sem greiddar verða úr Úrvinnslusjóði á hverja þyngdareiningu. Með álagningu úrvinnslugjalds er heyrúlluplastið orðið "verð- mæti". Gildi þess til endurvinnslu fer þó að nokkru eftir hreinleika og ástandi. Mikilvægt er því af mörgum ástæðum að bændur leitist við að halda plastinu vel til haga, eins hreinu og unnt er. Úrvinnslugjaldið gerir heyrúlluplast að verðmætum

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.