Dagsbrún - 01.11.1975, Side 22
4 hús, eins og skýrt hefur verið frá í fjölmiðlum,
og eiga tvö húsanna að fara til Vestmannaeyja, en
tvö húsanna í Olfusborgir. Við í stjórn Olfusborga
höfum mikinn áhuga á að fá annað húsanna sem að-
setur fyrir umsjónarmann, svo að hann geti búið
inni á svæðinu allt árið og veitt alla nauðsynlega
þjónustu árið um kring.
- Hver var leigan í sumar?
- Vikuleigan var 5 þúsund krónur, en helgarverð
á veturna er 3 þúsund krónur frá föstudegi til sunnu-
dags. Ef menn vilja dvelja lengur, þá borga þeir 1000
krónur fyrir sólarhringinn.
Næstu verkefni
- A að byggja meira á svæðinu?
- Það eru þegar komin 36 hús, og við teljum að
svæðið sé fullbyggt hvað þessar húsagerðir snertir,
en það hefur alltaf verið á dagskrá að byggja að
auki kjarnahús, eða sameiginlega miðstöð, þar sem
fundir geta farið fram. Þá er hugmyndin að hafa í
þessu húsnæði einstaklingsherbergi fyrir þá, sem
finnst of mikið að taka heilt hús á leigu. Ennþá hef-
ur engin ákvörðun verið tekin hvenær byrjað verð-
ur á þessari byggingu.
- Er þá ekki í bígerð kaujD á fleiri orlofshúsum
hjá Dagsbrún?
- Jú, við viljum gjarnan eignast hús alls staðar
þar sem verkalýðshreyfingin er að skijmleggja or-
lofsheimilasvæði. Við höfum lagt drög að því að
eignast hús á Einarsstöðum á Héraði, en það er af-
ar vinsæll staður, og standi okkur til hoða að reisa
hús í samvinnu við félögin á Vestfjörðum, munum
við gera það. Þá höfum við einnig augastað á svæð-
inu við Svignaskarð og höfum verið að velta fyrir
okkur að eignast eitt hús þar.
- Er orlofssjóður sæmilega stæður núna hvað
lausafé snertir?
- Já, það má segja það, og það byggist fyrst og
fremst á því, að við höfum ekki staðið í neinum
framkvæmdum á síðustu árum. I upphafi keypti
félagssjóður húsin, en síðan yfirtók orlofssjóður
eignirnar og greiðir allan kostnað við rekstur og
viðhald umfram það sem kemur inn í leigugjöld.
Leigugjöldin eru miðuð við að standa straum af dag-
legum rekstrarkostnaði, þ. e. rafmagns- og hitakostn-
aði, þvottum, umsjón og þessháttar, en allt viðhald
húsanna, afborganir og annað er greitt úr orlofs-
sjóði.
- Hafa Dagsbrúnarmenn getað notfært sér í ein-
hverjum mæli orlofsferðir til útlanda?
- Já, með tilkomu Alþýðuorlofs er augljóst, að
okkar félagsmenn hafa sýnt meiri áhuga á ferðum
til útlanda. Það fer að sjálfsögðu eftir efnum og á-
stæðum hvers og eins hvaða ásókn er í slíkar ferðir,
en við höfum gefið all margar tilvísanir vegna þess
afsláttar, sem félagsmönnum innan ASÍ er gefinn hjá
Alþýðuorlofi - Landsýn. Það er þó ljóst, að það er
miklu frekar yngra fólkið en það eldra, sem fer til
sólarlanda.
Svo við víkjum aftur að Olfusborgum, þá höfum
við komið þar upp nokkuð sæmilegri aðstöðu fyrir
yngsta fólkið, en nú langar okkur að gera betur,
gera svæðið vistlegra með gróðursetningu, koma
upp gufuböðum, sundlaug, lítilli golfbraut og fleira
til ánægjuauka fyrir dvalargesti. Þetta þarf allt sinn
undirbúning, og mun kosta verulegt fé. Við byggjum
þetta þannig upp, að það þarf að leggja slíkar ráða-
gerðir fyrir hvert félag fyrir sig og fá samþykki fé-
laganna fyrir fjárveitingum. Aftur á móti er BSRB
með einn sameiginlegan orlofssjóð þannig að á-
kvarðanatekt gengur hraðar fyrir sig hjá þeim en
okkur.
Frekari leit aS heitu vatni
Þá var einnig til umræðu á síðasta aðalfundi Ólf-
usborga að halda áfram að bora á svæðinu. Fyrir
nokkrum árum var boruð 600 metra djúp hola, en
en úr henni kom ekkert vatn, aðeins gufa. Nú eru
komnir jarðborar, sem ná miklu lengra niður í jörð-
ina og við gerum okkur vonir um að geta hitt á
hitavatnsæð. Ef þær vonir rætast munum við í kjöl-
farið koma upp sundlaug og gufuböðum. sj
Töluverð brögð eru að því að Dags-
brúnarmenn tilkynni ekki breytingar á
heimilisfangi. Nauðsynlegt er að til-
kynna nýtt heimilisfang vegna heim-
sendingar kauptaxta og blaðsins í fram-
tíðinni. Vinsamlegast hafið samband við
skrifstofuna og tilkynnið nýtt heimilis-
fang þegar þið flytjið.
22
DAGSBRÚN