blaðið - 27.05.2005, Page 6
föstudagur, 27. maí 2005 I blaðið
Ríkið seilist í fleiri
þúsundir hektara lands
Fjögurra daga máltaka fram undan
Eins og fram hefur komið í fréttum
að undanfórnu hefur óbyggðanefnd
birt allar kröfur sem lýst hefur ver-
ið vegna meðferðar þjóðlendumála á
Norðausturlandi. Annars vegar eru
áður birtar kröfur fj ármálaráðherra
um þjóðlendur og hins vegar kröfur
annarra um eignarréttindi á sömu
svæðum.
Málið verður tekið fyrir við Hér-
aðsdóm Austurlands í næstu viku
og verður haldið sérstakt íjögurra
daga dómsþing vegna málsins.
Að sögn Ólafs Björnssonar, sem
er einn af þremur verjendum land-
eigenda í málinu, er það mikið og
flókið.
„Óbyggðanefnd á ekki beina aðild
að málinu heldur er ríkið að deila
beint við landeigendur. Málið snýst
um að ríkið sættir sig ekki við nið-
urstöðu óbyggðanefndar og fer fram
á að taka stærri hluta af jörðum
landeigenda undir þjóðlendur en
óbyggðanefnd leggur til. Ennfrem-
ur hafa nokkrir landeigendur sjálf-
ir gert athugasemd við niðurstöðu
nefndarinnar, og finnst hún hafa
gengið of langt. Það eru þúsundir
hektara sem verið er að deila um.“
Að sögn Ólafs er þetta að hluta til
land sem ríkið hafi í raun samþykkt
eignarrétt á árum saman.
„Landeigendur hafa greitt fast-
eignaskatta af sínu landi árum sam-
an og með því lítum við svo á að rík-
ið hafi samþykkt eignarrétt. Það er
furðulegt að láta menn borga eigna-
skatt af landi en véfengja síðan að
eignarrétturinn sé raunverulega til
staðar," sagði Ólafur að lokum.
Kjörstjórn landsfundar
segir kosningar í lagi
Kjörstjórn landsfundar Samfylking-
arinnar sendi frá sér yfirlýsingu í
gær þar sem áréttað var að öll störf
hennar á landsfundinum hefðu ver-
ið lögmæt og í samræmi við reglur
flokksins.
Ingvar Sverrisson, framkvæmda-
stjóri Samfylkingarinnar, ítrekaði
í samtali við Blaðið í gær að ffam-
kvæmd kosninga á landsfundi flokks-
ins, afhending kjörgagna og eftirlit
með kosningunum hefði verið með
eðlilegum hætti, en undanfarna daga
hefur verið nokkuð efast um fram-
kvæmd þeirra í tengslum við varafor-
mannskjör Samfylkingarinnar. Hann
staðfesti jafhffamt fyrri ummæli sín
um að einhver brögð hafi verið að því
að fólk reyndi að kjósa fyrir aðra en
sjálft sig. „En ég fullyrði að þetta hafi
verið í lagi.“
í gær náðist enn ekki í Ágúst Ólaf
Ágústsson, nýkjörinn varaformann
Samfylkingarinnar.
Landspítalinn
kvartar yfir DV
Magnús Pétursson, forstjóri Land-
spítala háskólasjúkrahúss, segir
að umfjöllun fjölmiðla um tilfelli af
hermannaveiki, sem greinst hefur
hér á landi, hafi verið mjög fagleg og
yfirveguð. Hann nefnir þó eina und-
antekningu sem birtist á forsíðu DV
í gær. í yfirlýsingu ffá honum segir
að „í samfélagi okkar ríkir almenn
sátt að virða ffiðhelgi einkalífs hjá
fólki sem þarf að dvelja á sjúkrahúsi
vegna veikinda sinna. Heimildarlaus
birting á nafni sjúklings í blaðinu,
svo ekki sé minnst á að birta líka
mynd af honum án leyfis, er gróft virð-
ingarleysi við þennan einstakling og
fjölskyldu hans. Starfsmenn sjúkra-
hússins leggja sig fram um að virða
sjúklinga og réttindi þeirra. Sjúkra-
húsið gerir um leið kröfur til þess að
fjölmiðlar sýni sjúklingum nærgætni
og virðingu, DV eins og aðrir." Ekki
fengust viðbrögð ffá Jónasi Krist-
jánssyni, ritstjóra DV, vegna þessa
í gær. ■
Skartgripir fjallkonunnar
Skartgripir a heimsmælikvarða
Eru þeir eftir Dorrit?
Fróbært kaffi og meðlæti
Café Presto
Hlíðarsmára 15, Kóp
H USGAGNA
Bæjarlind 14-16, Kópavogi
LINDIN
10.000 MÖGULEIKAR - fyrir fólk með
sjálfstæðan smekk
þú velur sófa
þú velur stól
þú velur áklæði
þú velur lit
þú hannar
Hornsófi
Áklæði frá kr 72.000
Leöurkr 134.000
Sófasett 3+1+1
Áklæði frá kr 86.000
Leður frá kr 204.000
Borðstofustólar
Áklæöi frá kr 7.200
Leðurkr 12.500
Sessalong
Áklæði frá kr 37.000
Leðurkr 81.000
Sófasett - sófar - hægindastólar - boröstofustólar - borðstofuborð - skápar
Bensínverð lækkar hraðar á ómönn-
uðum sjálfsafgreiðslustöðvum en á
bensínstöðvum með þjónustu, sam-
kvæmt úttekt FÍB á bensínverði á
bilinu janúar 2003-2005. Töluverð
lækkun álagningar á bensíni á sjálfs-
afgreiðslustöðvum vekur athygli
en hagnaður olíufélaga á slíkum
stöðvum hefur lækkað um 19% á
umræddu tímabili. Til samanburðar
segir í úttekt FÍB að álagning á bens-
ínverði á þjónustustöðvum hjá Esso,
Olís og Shell lækki hægar, þrátt fyrir
miklar sveiflur á tímabilinu. í sam-
tali við Blaðið segir Rimólfur Ólafs-
son, ábyrgðarmaður FÍB-blaðsins, að
merkja megi breytt neyslumynstur
hjá bíleigendum, sem virðast sífellt
hlynntari því að dæla sjálfir á bílana
sína. Af þessu leiðir að starfssvið
starfsmanna á bensínstöðvum bein-
ist meira að almennri afgreiðslu og
frá því að dæla á bíla. Þá má sjá að
með tilkomu sjálfsafgreiðslustöðv-
anna er áþreifanleg lækkun á bensín-
verði staðreynd.
Samningaviðræðum
frestað
Samkeppni
lækkar bensínverð
Samningaviðræðum milli Starfs-
greinafélags íslands og launanefndar
sveitarfélaga hefur verið frestað um
viku, en unnið er að endurnýjun kjara-
samnings rúmlega 2.000 starfsmanna
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
og landsbyggðinni. Samkvæmt heim-
ildum Blaðsins liggur fyrir tilboð frá
LN upp á um 20% launahækkun á
íjögurra ára samningstíma og munu
fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar
ætla að fara yfir það á næstu dögum.
Vegna þess hafa formenn stéttarfé-
lága verið kallaðir á fund sem hefjast
átti klukkan níu í morgun. ■
Lionsmenn gáfu
13 sjónvörp
Lionsmenn í Lionsklúbbnum Nirði
færðu deild R-3 að Grensási að gjöf
13 United-sjónvarpstæki með inn-
byggðum DVD-spilara og einnig fest-
ingar á veggi. Formaður Lionsklúbbs-
ins Njarðar, Hörður Sigurjónsson,
afhenti gjöfina 24. maí 2005 í athöfn
í skála á deildinni. Með gjöf Lions-
Umsóknarfrestur í
framhaldsskóla
Nemendur í 10. bekk grunnskóla
geta sótt um skólavist í framhalds-
skólum á haustönn 2005 fram til 14.
júm'. Þeir fá bréf með leiðbeiningum
og veflykli, sem opnar þeim aðgang
að innrituninni á www.menntagatt.
is, en þar eru einnig upplýsingar um
nám í framhaldsskólum. Aðrir um-
sækjendur þurfa að senda skriflegar
umsóknir í framhaldsskólana.
manna verða komin sjónvarpstæki á
allar sjúkrastofur deildarinnar. Við
þetta tækifæri söng Gerðubergskór-
inn nokkur lög og færði deildinni að
gjöf fjóra geisladiska. Ingibjörg S.
Kolbeins, hjúkrunardeildarstjóri á R-
3, veitti gjöfunum viðtöku.
Styrkir
til Noregs
Skólahljómsveit Kópavogs, 9. og 10.
bekkur Höfðaskóla á Skagaströnd,
Skíðadeild Víkings og samtökin
Landsbyggðin lifir, hlutu í gær styrki
úr sjóðnum „Þjóðhátíðargjöf Norð-
manna“. Styrkirnir voru fyrst veittir
úr sjóðnum árið 1976 og fór nú fram
28. úthlutun. 14 styrkumsóknir bár-
ust en hlutu ofangreindir aðilar þær
600.000 krónur sem í boði voru. ■
ókeypis til
heimila og fyrirtækja
alla virka daga
blaóió