blaðið - 27.05.2005, Síða 11
blaðið i föstudagur, 27. maí 2005
Ekki
Nýtt tölublað
„Orðlaus“
kemur út
á morgun
Þetta er nú bara nokkuð gott hjá
þeim, hugsa ég um leið og ég fletti síð-
asta tölublaði tímaritsins „Orðlaus"
meðan ég bíð eftir að ná sambandi
við önnum kaína starfsmenn blaðs-
ins. Eg sé strax að umfjöllun um
tónlist og tísku er fyrirferðarmikil í
blaðinu og er markhópur þess konur
á aldrinum 16-25 ára. Það sem kem-
ur kannski á óvart er að þar er enn-
fremur að finna umfjöllun um pólitík
og meira að segja er þar grein sem
tengist fótbolta - eitthvað sem blaða-
maður ímyndaði sér að ungar konur
væru ekki að velta sér of mikið upp
úr.
„Þetta á að vera hugsandi blað fyr-
ir hugsandi konur,“ er það fyrsta sem
þær Hrefna Björk Sverrisdóttir, Ema
María Þrastardóttir og Steinunn Jak-
obsdóttir segja þegar ég næ loksins
sambandi við þær. Tímaskorturinn
og biðin er tilkomin af þeirri einfóldu
ástæðu að næsta tölublað „Orðlaus"
kemur út á morgun og því í mörg
hom að líta svona rétt áður en blaðið
fer í prentsmiðjuna.
„Við viljum hafa ákveðið jafnvægi
í efnistökum, ekki hafa eingöngu
einhveija froðu, enda hafa lesendur
blaðsins áhuga á fleiri hlutum en
fræga fólkinu, tísku og úthti. Okk-
ur fannst á sínum tíma ákveðið gat
í flölmiðlamarkaðnum hér á landi
- hér vom eingöngu gefin út það sem
við viljum kalla „kerlingablöð“ fyrir
konur hér á landi, t.d. Mannlíf, Hús-
freyjan, Nýtt h'f og fleiri. Þessi blöð
em ekki slæm en þau höfða ekki til
þeirra sem við viljum vera að skrifa
fyrir.“
Hrefha, Ema og Steinunn hafa
nú gefið út 21 tölublað af „Orðlaus"
- tölublað morgundagsins ber því
hið virðulega númer 22. Þetta blað
er það fyrsta sem gefið er út eftir að
samkomulag um samstarf náðist við
Ár og dag, sem meðal annars gefur
út Blaðið.
„Það náðist mjög þægilegt sam-
komulag við fyrirtækið," segja þær
stöllur. „Við samnýtum ýmislegt með
Blaðinu, svo sem intemet, hönnum,
ljósmyndara og fleira. Við fáum engu
að síður að vera algerlega sjálfstæð
eininginnan fyrirtækisins. Það er eng-
inn sem skiptir sér af efhisinnihaldi
eða öðm, ritstjómin er sjálfstæð og
við sjáum ennþá um fjármál og aug-
lvsingaöflun. Með samstarfinu við
Ar og dag sjáum við einfaldlega fram
á að koma „Orðlaus" reglulega út og
efla blaðið - og að sjálfsögðu gripum
við það tækifæri fegins hendi.“
Þær stöllur hófu útgáfu þegar þær
vom nýskriðnar út úr menntaskóla.
Að sögn hefur blaðinu verið mjög
vel tekið og þær taka sérstaklega
ffarn að fjölmargir strákar lesi blaðið
spjaldanna á milli. Hvað ffamtíðar-
sýn varðar segjast þær ekki ætla að
vera í þessu endalaust.
„Við viljum ekki að blaðið eldist
með okkur. Við verðum væntanlega
með puttana í útgáfunni næstu ár-
in en við viljum að „Orðlaus" höfði
áffam til unga fólksins. Við erum
þegar að leita að ungum stelpum á
aldrinum 18-20 ára til að skrifa sem
lausapennar fyrir okkur í blaðið.
Kannski tekur einhver af þeim við af
okkur, svona þegar við erum orðnar
of gamlar fyrir þessa útgáfu."
Að þeim orðum sögðum lokar
blaðamaður minnisbók sinni, kveður
og yfirgefur ritstjóm „Orðlaus", hugs-
andi um það hvemig fjallað verði um
pólitík og íþróttir í næsta tölublaði
- en engin svör fást við því fyrr en
á morgun.
ísland - Ungverjaland 4. júní og ísland - Malta 8. júní
Frábært tilboð — Einn miði sem gildir á báða leikina! ... Forsala á Netinu 25. maí-2. júní Forsala hjá ESSO 3. júní Sala á leikdag 4. júní
^/Sæti í nýju stúkunni 1.500 kr. 1.500 kr. 2.000 kr.
Forsala er hafin á ksi.is og esso.is - tryggið ykkur miða tímanlega!
Undankeppni HM 2006 er aftur komin á fullan skrið og strákamir þurfe þinn stuðning gegn Ungverjalandi
og Möltu dagana 4. og 8. júní. Af því tilefni verður hægt að kaupa einn miða á báða leikina á frábæru
verði. Leikirnir fara fram á Laugardalsvelli og hefjast báðir kl. 18:05. Áfram ísland!
Miði á ísland - Ungvefjaland 4. júní
Forsala á Netinu 25. maí-2. júní Forsala hjá ESSO 3. júní Sala á leikdag 4. júní
Sæti í gömlu stúkunni 2.000 kr. 2.000 kr. 2.500 kr.
Miði á ísland - Malta 8. júní
Forsala á Netinu 25. maí-6. júní Forsala hjá ESSO 7. júní Sala á leikdag 8. júní
Sæti í gömlu stúkunni 2.000 kr. 2.000 kr. 2.500 kr.
50% afsláttur fyrir 16 ára og yngri