blaðið - 27.05.2005, Qupperneq 12
12 veiði y^J
föstudagur, 27. maí 2005 I blaðið
Svavar Sölvason með vænan fisk úr Laxá í Dölum en stórfiski fækkar með hverju árinu í veiðiánum.
Stórlaxinn:
Honum ffé&fcftr
Stórlaxinum hefur fækkað stórlega í
laxveiðiánum hin síðari árin. Það má
sjá í veiðibókum þegar þeim er flett
fram og til baka.
„Jú, stórlaxinum hefur fækkað
hérna í Laxá í Dölum eins og annars
staðar. Við sjáum það ef við kíkjum í
bækumar hin síðari árin,“ sagði Jón
Egilsson, formaður Veiðifélags Lax-
dæla, þegar stórlaxinn bar á góma
fyrir skömmu, og fleiri hafa áhyggjur
af stórlaxinum.
Hann hefur veitt marga stórlaxa í
gegnum árin hann Þórarinn Sigþórs-
son og þeim hefur fækkað hjá honum
líka eins og öðrum veiðimönnum.
Fyrir þremur árum árum veiddi
Þórarinn 22 punda lax í Víðidalsá í
Húnavatnssýslu. Hann sá stærri fisk
en fékk hann ekki til að taka.
Já, það er Ijóst að stórlaxinum hef-
ur fækkað verulega, eins og í Norð-
urá í Borgarfirði, þar sem það telst
til stórtíðinda að veiða stórfisk um 20
pund. Sífellt færri sögur heyrast af
stórlöxum en áður. Veiðimálastofnun
hefur hvatt veiðimenn til að sleppa
stórfiski og það er alveg hægt að taka
undir það. í stórlaxánni Laxá í Aðal-
dal hefur stórfiski snarfækkað hin
síðari ár, þar sem var mikið af hon-
um fyrir nokkrum tugum ára. Það
jti arinu
hefur breyst og þetta er bara gangur-
inn í veiðinni. Færri stórfiskar á færi
veiðimanna.
Laxinn er kominn í Laxá í Kjós en
fiskurinn sést vel vegna þess að
það er ekki mikið vatn í ánni. Eitt-
hvað hafa menn kíkt í Norðurá en
lítið séð af laxi ennþá en hann gæti
alveg verið kominn samt. Miklar
framkvæmdir hafa verið við veiðihús-
ið við Norðurá og ganga þær vel.
Eftir að hlýna tók aðeins hefur verið
betri veiði í vötnum eins og Elliða-
vatni og Vífilsstaðavatni. Veiðimað-
ur, sem var í Vífilsstaðavatni fyrir
fáum dögum, veiddi fimm fallegar
bleikjur.
Varmá:
11 punda bleikja á land
GLæsilegt úrvaL
Sisal oq Kókos
góLfteppa
HeimiLisgóLfdúkar
Tilboðsverð
frá kr. 900 á m2
Teppamottur
40% afsláttur
Teppi horn í horn
Jón Hugi Ríkharðsson með 11 punda bleikju úr Varmá en fín bleikjuveiði hefur verið þar síðustu daga.
Eitt kort
20 vatnasvæði
Stigateppi
Níðsterk og létt í þrifum
GOLFBUNAOUR
KJARAN EHF • SÍÐUMÚU 14 • 108 REYKJAVÍK
SlMAR 510 5510 • 510 5500
OPIÐ VIRKA DAGAKL. 8-18.
Það hefur verið bullandi veiði í
Varmá og þá sérstaklega í bleikjunni
síðustu daga. Ríkharður Hjálmars-
son lenti heldur betur í góðri veiði
í ánni fyrir fáum dögum með Jóni
Huga, syni sínum.
„Við fengum þennan 11 punda
bolta á miðsvæðinu í Varmá og sú
bleikja tók fluguna Bleikt og blátt,“
sagði Ríkharður Hjálmarsson, sem
var að koma af veiðislóðum fyrir fá-
um dögum.
„Þessar bleikjur fengum við á veiði-
stað sem kallast Stíflan og þar fyrir
neðan. Veiðimaðurinn sem veiddi
fiskinn heitir Jón Hugi Ríkharðsson
og var honum aðeins hjálpað við að
landa eftir mikil hlaup á eftir henni.
Það hefur verið rólegt yfir sj óbirtingn-
um en bleikjuveiðin hefur verið fín og
það var mikið af henni þarna,“ sagði
Ríkharður ennfremur.
Aðrir veiðimenn sem voru voru
þarna nokkrum dögum seinna veiddu
vel af bleikju og margar voru vænar.
Einn daginn getur síðan bleikja verið
horfin af svæðinu.