blaðið - 27.05.2005, Side 18
föstudagur, 27. maí 2005 I blaðið
á Hrc
ernak@vbl.is
Nú fer hver að verða síðastur að
tryggja sér miða á Hróarskelduhá-
tíðina en von er á síðustu miðunum
í hús nú í lok maí. AUt flug sem Stúd-
entaferðir áttu frátekið vegna hátíðar-
innar er löngu uppselt en fólk getur
sjálft séð um flugþáttinn með Iceland
Express eða Icelandair.
Talið niður
„Við erum bara farin að telja niður,“
segir Hrund Þorgeirsdóttir, þjónustu-
fulltrúi Stúdentaferða, en von er á síð-
ustu sendingu af miðum nú í lok maí.
Hún segir að salan hafi farið mun
fyrr af stað en áður en kann engar
aðrar skýringar á því en að hátíðin sé
sífellt vinsælli. „Við settum stefnuna
á að selja fleiri miða en í fyrra en þá
seldum við 670 miða. Nú þegar höf-
um við selt um 650 miða svo þeir sem
ætla sér að fara verða að hafa hraðar
hendur því það eru einungis um 40
miðar eftir."
Margar grúppur
Hróarskelduhátíðin er að venju þétt-
setin alls kyns hljómsveitum og uppá-
komum. Aðaláherslan verður lögð á
skemmtun, útilegu, afþreyingar og
uppákomur fyrstu fjóra dagana fyrir
hátíðina og í kjölfarið verða svo íjórir
dagar þéttskipaðir tónlistaratriðum.
Þar ber hæst Ozzy Osboume með
gömlu hljómsveitinni sinni Black Sab-
bath, Brett Anderson með hljómsveit-
inni The Tears, Snoop Dogg og Green
Day. Þá verður þama einnig gamli
Beach Boys forsprakkinn Brian Wil-
son Foo Fighters með Dave Grohl,
fyrrverandi trommara Nirvana í far-
arbroddi, eighties-bandið Duran Dur-
an og Audioslave, sem er samblanda
af meðlimum Rage Against the Mac-
hine og Soundgarden.
Ódýr skemmtun
Hmnd segir að margir sem kaupa
miða líti svo á að þar með séu þeir
að tryggja sér ódýran miða til að sjá
fjölda hljómsveita. Hún segir að marg-
ar þeirra verði á íslandi í sumar en
margir vilji sjá þær á báðum stöðum.
„Auðvitað em margar skemmtilegar
hljómsveitir að spila á Hróarskeldu
og margar þeirra munu einnig spila
á íslandi í sumar. Margir sjá sér leik
á borði og vilja tryggja sér miða á
Hróarskeldu fyrir 15.500 krónur og
geta þá fengið mun meira fyrir pen-
inginn því þar kemur saman íjöldi
frægra hljómsveita eins og Foo Figt-
hers og Duran Duran. Svo eigum við
auðvitað okkar fulltrúa, Mugison
og Brúðarbandið." Tjaldstæði Hró-
arskelduhátíðarinnar verður opnað
sunnudaginn 26. júm' og hátíðin hefst
fimmtudaginn 30. júní. Meira um
hátíðina á www.roskilde-festival.is
Á sportbíl um
Suður-Ítalíu
- öðruvísi sumarfrí
Sænska ferðaskrifstofan Fritidsre-
sor býður í sumar upp á vikulanga
ökuferð um Kalabríu-hérað á Suður-
Ítalíu. Ökutækið er hvorki meira né
minna en glæsilegur Triumph Spitfire
forn-sportbíll og fyrirhugaður er hóp-
akstur á nokkram slíkum um þetta
fallega hérað við Miðjarðarhafið.
Hver bíll rúmar tvo farþega og innifal-
ið í pakka ferðaskrifstofunnar er flug
frá Svíþjóð til S.-Ítalíu, kennsla á bíl-
inn, gisting á fimm fjögurra og fimm
stjömu hótelum, fullt fæði, bensín á
bílinn og leðurslá fyrir ökumanninn.
Lagt verður upp í ferðina frá Club
Belmonte á Miðjarðarhafsströndinni
og stansað verður á áfangastöðum
þar sem ferðalanga bíða uppbúin
borð utandyra með hvítum dúkum,
postulíni og kristal. Enskumælandi
leiðsögumaður segir ferðalöngum af
stöðum og staðháttum en leiðsögnin
fer fram með heyrnartækjum. Ferðin
kostar um 140.000 krónur og nán-
ari upplýsingar um ferðina má fá á
www.fib.is
Pestir
og T(
- hverju þarf að huga að?
■ i
Ekki er ástæða til að fresta skipulögð-
um ferðalögum til Suðaustur-Asíu
vegna fuglaflensunnar en fulltrúar
Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar
(WHO) vöruðu við því fyrr í mánuð-
inum að mikil hætta væri á að fugla-
flensan, sem kostað hefur 45 manns
lífið í Asíu, verði að heimsfaraldri.
Mikilvægt er þó á ferðalögum að sýna
almenna aðgát.
Hreinlæti mikilvægast
Haraldur Briem sóttvamalæknir
segir að ferðamenn á þessum slóðum
þurfi ekki að gera neinar sérstakar
ráðstafanir en gott sé að hafa varann
á sér varðandi matvæli og borða ekk-
| ert nema það sé vel soðið eða steikt.
„Við höfum ekki gefið út neinar sér-
; stakar viðvaranir en höfum ráðlagt
| fólki sem fer til Suðaustur-Asíu að
| forðast fuglamarkaði og þvo sér vel
um hendumar og forðast hrámeti."
Haraldur segir að ef maturinn er rétt
og vel matreiddur sé ekki ástæða til
að sniðganga fuglakjöt og egg. Þeir
; sem hafa smitast eru í beinu sam-
bandi við lifandi fugla, umönnun og
slátmn.
Litlar líkur á hermannaveiki
Hermannaveikin er almennt eitthvað
sem menn þurfa ekki að vera hræddir
við en hún skýtur upp kollinum reglu-
lega. „Erfitt getur reynst að grípa til
ráðstafana vegna hennar því ómögu-
legt er að segja fyrir um hvar henn-
ar getur orðið vart. Hermannaveiki
sprettur út frá jarðvegsbakteríu sem
oft er í grunnvatni en mikil áhersla
er lögð á að fylgst sé vel með öllum
vatnskerfum." Upp kom frægt mál í
Hollandi fyrir tveimur árum þegar
fjöldi manns sýktist út frá gosbrunni
í verslanamiðstöð en Haraldur segir
afar litlar líkur á því að fólk smitist
afhermannaveiki.
Iðrapestir algengastar
Það fer eftir því hvert fólk er að ferð-
ast hvaða ráðstafanir og vara það
þarf að hafa á sér. „Almennt hrein-
læti er alltaf gott, að þvo sér oft um
hendur og forðast hráan mat og salöt,
sem hafa staðið frammi lengi en iðra-
sýkingar era algengustu kvillar ferða-
manna. Það era hundrað manna sem
koma heim með slíkar sýkingar eftir
ferðalög erlendis. Það eru gömul og
góð ráð þegar ferðast er að borða ein-
ungis það sem er vel steikt eða soðið
og ef menn velja sér ávexti þá ættu
þeir að vera þannig að hægt sé að af-
hýða þá, það er öraggast. Gott er að
tala við sinn lækni áður en ferðast er
og fá bólusetningar þegar við á og fá
góð ráð,“ segir Haraldur.