blaðið - 27.05.2005, Blaðsíða 20
pfekjp'íi Qý kynjanna
föstudagur, 27. maí 2005 I blaðið
Tíu ráð til betra samband
1. Eyðið tíma
ein saman.
Finnið ykkur tíma á
hveijum degi þar sem
þið deilið hugsunum
ykkar og tilfinning-
um varðandi litla sem
stóra hluti. Setjið ykk-
ur ákveðinn dag í viku
sem þið notið til þess
að gera eitthvað sem
þið hafið bæði áhuga
á. Gaman er að gera
skemmtilegt kvöld út
úr því og fara út að
borða eða skiptast á að
elda góðan mat.
2. Aætlið framkvæmdir
fjölskyldunnar í sameiningu.
Það getur verið gaman að setjast saman inni í
stofu og skipuleggja ferðir fjölskyldunnar, deila
hugmyndum um afmælisgjafir eða skipuleggja
næsta íjölskyldufagnað.
3. Deilið vonum ykkar og draumum.
Þannig getið þið komið með skemmtilegar
vangaveltur um lífið almennt og komist í meiri
nánd við hvort annað.
4. Taiið um tilfinningar ykkar.
Það geta komið tímar þar sem öðru finnst það
vera utanveltu, en það getur verið þegar við-
komandi er mikið írá vegna vinnu eða annarra
mála og missir þar af leiðandi af hinum ýmsu
stundum á heimilinu, t.d. þegar bamið byrjar
að ganga eða tala. Talið um þetta og gerið ráð-
stafanir þess efnis að báðir séu vel í takt við
það sem er að gerast og séu viðriðnir heimilis-
haldið.
5. Talið um peninga.
Gerið raunhæf markmið sam-
an og sjáið hvað hægt er að
gera, hveiju má safna fyrir
og hver íjárhagsleg staða fjöl-
skyldunnar er.
6. Hlægið saman.
Það er ekkert eins skemmti-
legt og þegar maður hlær
með maka sínum en það kitl-
ar svo sannarlega ástartaug-
amar og gerir okkur ánægð-
ari með sambandið. Að segja
hvort öðm brandara eða fynd-
in tilvik frá því sem gerðist í
vinnunni eða með vinunum lífgar upp á sam-
bandið og þá birtir til í hjarta okkar.
7. Segið frá vonum ykkar og þrám.
Þar sem við erum ekki enn þannig af Guði
gerð (flest a.m.k.) að við getum á einn eða
annan hátt lesið hugsanir hvort annars er
mjög mikilvægt að við tölum saman um vænt-
ingar okkar og þrár. Talið um þá hjálp sem
þið þarfnist hvort frá öðm og látið ykkur ekki
standa á sama um þarfir hins aðilans.
8. Kyssist alltaf góða nótt.
Það að fara að sofa í sátt og samlyndi er mikið
atriði svo að öllum líði sem best. Því er ekki
vitlaust að smella einum kossi á hann/hana
þegar lagst er til hvílu.
9. Hleypum
barninu
í okkur út.
Leikið ykkur sam-
an á heimilinu og leyfið ykk-
ur að láta eins og böm af og til. Það hefur
góð áhrif á samband ef fólk er ekki of hátíðlegt
alla daga.
10. Komið hvort öðru á óvart.
Hægt er að gera hina ýmsu hluti til þess að
gleðja makann en litlir hlutir sem krefjast ekki
mikils gera oft mikið fyrir viðkomandi. Til dæm-
is er hægt að kaupa litlar gjafir, elda góðan
mat án fyrirvara, keyra óvænt á rómantískan
veitingastað og fleira. Um að gera að leyfa hug-
myndafluginu að blómstra.
NAUÐ
lúbbanna fótboltagláps karlmanna
Konur þurfa
tíma með
vinkonum til
þess að tjá sig
Þeir era reyndar ekki margir karl-
mennimir sem gagnrýna sauma-
klúbbskvöld konu sinnar eða þegar
þær hitta vinkonur sínar en kynin
era misjöfn og það sest yfirhöfuð
ekkert rosalega á taugarnar á karl-
mönnum þegar konan er víðs fjarri
í nokkrar klukkustundir. Þó er mik-
ilvægt að allir geri sér grein fyrir
nauðsyn þessa kvölda fyrir konuna
en þar fær hún tækifæri til þess að
uppljóstra um vandamál heimilis-
lífsins frammi fyrir vinkonunum og
þannig hreinsa út. Þá fá konur ráð
frá vinkonunum og þær koma mun
glaðari heim, enda búnar að pústa
og fá útrás fyrir gremjuna, nú eða að
tala um hversu hamingjusöm hún er.
Þetta hafa konur þörf fyrir, þó svo að
karlmenn eigi í mestu erfiðleikum
með að skilja það, enda era þeir ekki
margir sem ræða ástarmál sín og kon-
unnar með tug karlmanna fyrir fram-
an sig. Karlmenn - reynið að skilja
þarfir kvenna því hjá þeim er afar
mikilvægt að fá að deila hamingju
eða óhamingju sambandsins með vin-
konunum. Þetta er ekkert væl og eng-
in dramatík, eingöngu eitthvað sem
konum er nauðsynlegt.
A1fablóm
Á1 fheimum
Sýnið skilning þegar mannsefnið þarf
að sniðganga kvöldmatinn af og til
Áhugamál karlmanna geta oft sett sinn
svip á heimilishaldið en konur geta átt
það til að verða óþreyjufullar þegar þær
bíða eftir manninum sínum sem fór með
vinunum eftir vinnu. Fótboltaleikir tróna
á toppnum yfir þá afþreyingu sem hvað
mestan tíma tekur hjá karlmönnum.
Það eiga margar konur eiga erfitt með að
skilja, sérstaklega þegar leikir era á mat-
artíma og makinn fer á næsta bar með
vinunum.
Það er samt mikilvægt að konur geri sér
grein fyrir að þama er á ferðinni málefni
sem á hug og hjarta flestra karlmanna og
það þýðir ekkert að tjónka við það - menn-
imir verða að fá sinn tíma til þess að fá
útrás fyrir karlmennskuna en bjór í góðu
vinasamsæti yfir leiknum er þar tilvalinn
kostur. Konur ættu því að sýna þessu til-
litsemi og þakka fyrir að maðurinn sé þó
a.m.k. heilbrigður. Verra væri það nú ef
hann færi aldrei út úr húsi. Einhverjar
yrðu nú pirraðar á því að hafa mannsefn-
ið alltaf yfir sér og myndu þá líklega óska
þess að hann gæti fundið sér eitthvert
skemmtiefni og bragðið sér af bæ.
Karlmenn hafa þörf fyrir afþreyingu af
þessu tagi og því ættu konur að sýna því
skilning og finna sér eitthvað skemmtilegt
til þess að gera sjálfar, en nóg er um úrval-
ið fyrir konur.
Ertu góður hlustandí fyrir maka þinn?
þykir leiðinlegt í ákveðinn tíma, en ef
við breytum hugarfarinu og verðum
jákvæð hvort í annars garð þá breyt-
ist það fljótlega. Þá finnst
okkur allt í lagi þó svo
að makinn tali um
einhveija vitleysu
- á meðan hann/
hún hefur gaman
af því þá líður
okkur vel.
Þar sem sambönd ganga að mörgu
leyti út á samræður hvers konar er
mikilvægt að við temjum okkur að
hlusta af athygli og sýna skilning
séum við beðin um að ræða einhver
mál, burtséð frá því hvort við höfum
áhuga á téðu málefni eður ei.
•Gefðu makanum tíma til þess að
greina frá máli sínu án þess að grípa
fram í.
•Slepptu því að gefa ráð nema eftir
þeim sé innt. Yfirleitt vill viðkom-
andi eingöngu segja þér söguna frá
sínu sjónarhorni án þess að fá tiltek-
in ráð.
•Gakktu úr skugga um að þú skilj-
ir maka þinn með því að endurtaka
það sem hann segir. Til dæmis:
„Ertu að meina að þér finnist
þú vera í öðra sæti?“ eða
„Mér sýnist þú vera
mjög spennt/ur fyr-
ir afmæli móður
þinnar...?“ Þetta kemur í veg fyrir
misskilning og sýnir fram á að þú haf-
ir hlustað af ákefð.
•Sýndu múlefninu áhuga, jafhvel
þótt þú hafir ekki nokkum áhuga.
Það sést á fólki ef það er áhugasamt
og eins ef það gerir það bara fyrir ein-
hvem annan að hlusta. Þetta skiptir
miklu máli - reyndu að minnsta kosti
að sýnast mjög spennt/ur fyrir sam-
ræðunum.
•Vertu jákvæð/ur og hugsaðu sem
svo að allir þurfi sína útrás. Fólk
verður eðlilega óþreyjufullt ef það er
knúið til að sinna einhveiju sem því