blaðið - 27.05.2005, Síða 22
I I ■>
föstudagur, 27. maí 2005 1 blaðið
VANTAR RAFVIRKJA
UPPL í SÍMA.
-8991993-
straumver@isl.is
Samkvæmt fréttum frá höfuðstöðv-
um Knattspymusambands Evrópu
eru nánast engar líkur á að Liverpo-
ol, sem í fyrradag fagnaði sigri í
Meistaradeildinni, fái að verja titil-
inn á næstu leiktíð. Mál eru þannig
með vexti að England fær fjögur sæti
í Meistaradeildinni ár hvert til handa
liðunum í fjórum efstu sætunum í
úrvalsdeildinni. Chelsea, Arsenal,
Manchester United og Everton urðu í
fjórum efstu sætunum og samkvæmt
nýjustu reglum UEFA verður lið að
ávinna sér þátttökurétt í gegnum
landstitil en Evrópumeistarar fá
ekki lengur sjálfkrafa þátttökurétt á
næstu leiktíð.
Enskir ætla að beita þrýstingi
David Davies hjá Enska knatt-
spymusambandinu ætlar að reyna að
setja þrýsting á UEFA (Knattspymu-
samband Evrópu). William Gaillard,
talsmaður UEFA, lét hafa eftir sér
enn og aftur í gær að sambandið
hyggðist ekki breyta reglum sínum
og því væri ljóst að Liverpool kæmi
ekki til með að veija Evrópumeistara-
titilinn á næstu leiktíð. „Þessi regla
hefur þegar verið notuð einu sinni.
Það var leiktíðina 2000-2001 þegar
Real Madrid varði titil sinn en varð
í fimmta sæti í spænsku deildinni.
Real Zaragoza varð í fjórða sæti og
spænska sambandið ákvað að láta
Real Madrid fá sætið," sagði Gaillard
í viðtali á BBC 5 útvarpsstöðinni í
gær. „Þetta er hörð og erfið ákvörð-
un en reglur era reglur og eftir þeim
verður að fara.“ Það er því nokkuð
ljóst, eins og staðan er í augnablik-
inu, að Liverpool verður í Evrópu-
keppni félagsliða á næstu leiktíð en
félagið vann sér þátttökurétt þar en
ekki í Meistaradeildinni.
Rýmum fyrir nýjum vörum - aðeins í fáa daga!
RYMINGARSALAI G0LFDEILD
allt að 70% afsláttur
Heilt golfsett í poka, verð frá kr. 18.750. (Fæst einnig vinstri handar).
Golffatnaður allt að 70 % afsláttur.
Golfpokar 25 - 40 % afsláttur.
Rafmagnsgolfkerrur verð frá kr. 24.900,-
Golfboltar í heilum kössum 20 % afsláttur.
Barnagolf, golfsett í poka frá kr. 8.900,-
Hippo og Howson járnasett 20 ~ 40 % afsl.