blaðið - 27.05.2005, Qupperneq 23
blaðið I föstudagur, 27. maí 2005
hefur fengið á sig er vegna sendinga
og meðferðar með knöttinn en ég
er búinn að sjá hann spila tvo leiki
með Brann í vetur og sá einn leik í
sjónvarpi. Hann hefur staðið sig vel
og sýndi það í leiknum á móti Start
á dögunum og okkur Ásgeiri fannst
hann báðum rólegri með boltann.
Hann er náttúrlega að vinna að þess-
um veikleika sínum sýknt og heilagt
alla vikuna í sínu liði. Hann hefur ótví-
ræða hæfileika sem vamarmaður að
vinna bolta. Þegar hann nær tökum
á tækninni held ég að við verðum svo
komnir með mjög sterkan leikmann."
Veikir það okkar lið mikið að missa
Hermann, Heiðar og Jáhannes KarH
„Jú, það gerir það ugglaust. Þetta
eru ekki bara góðir fótboltamenn held-
ur hafa þeir reynslu sem þeir sem eru
að koma inn hafa ekki. Hermann hef-
ur verið eins og kóngur í vörninni hjá
okkur og Heiðar frammi á vellinum
og er hann afar sterkur þar. Málefni
Jóhannesar Karls eru þess eðlis að
hann hefur sjálfur ákveðið að vera
ekki með og það er hans ákvörðun,
Tveir nýliðar hjá Loga og Ásgeiri
- viðtal við Loga Ólafsson landsliðsþjálfara um valið á landsliðinu
Þú ert með nokkra unga stráka
í liðinu núna. Ertu að byggja til
framtíðar?
„Já, unga og ekki unga. Jóhannes
Harðarson er ekki mjög ungur þann-
ig lagað sem knattspyrnumaður.
Hann var svolítið í felum í Gronin'gen
í Hollandi á sínum tíma en hefur ver-
ið að standa sig afar vel með liði sínu,
Start í Kristiansand.
Haraldur Guðmundsson hefur
einnig staðið sig mjög vel með Ála-
sundi. Ég sá Harald til dæmis leika
gegn Válerenga gegn manni eins og
Steffan Iverssen, sem er mjög sterk-
ur leikmaður og þið þekkið ugglaust.
Þar var Haraldur að standa sig mjög
vel og hann fær góða dóma.
Síðan hef ég séð Jóhannes spila í
sjónvarpi. Hann var því miður í banni
þegar við Ásgeir sáum leik Start og
Brann. Sá hugur og andi sem er gagn-
vart Jóhannesi í Kristiansand er að-
dáunarverður og hann er talinn einn
af betri mönnum liðsins.
Ástæðan fyrir þessu vali, fram yfir
að taka menn sem hafa verið að leika
í 1. deildinni í Englandi, er að það
verður tæpur mánuður síðan deild-
inni lauk í Englandi þangað til þessi
leikur er. Meðan þessir menn eru að
spila vel finnst mér sjálfsagt að skoða
það.“
Við höfum ekkert séð Jóhannes
spila hérna á Islandi. Hvernig leik-
maðurer hann?
„Jóhannes er teknískur miðjumað-
ur sem er mjög duglegur. Hann get-
ur bæði spilað boltanum vel frá sér,
hann getur unnið boltann og er með
góðar sendingar fram völlinn. Það er
svolítið sem við höfum verið að baks-
ast með í okkar liði - að við höfum
ekki verið nógu góðir í að halda bolt-
anum - og Jóhannes er liður í því að
styrkja hópinn hvað það snertir."
Talandi um leikmenn sem hafa ver-
ið að spila vel. Tryggvi Guðmundsson
er kominn ( hópinn eftir að hafa spil-
að frábærlega hér heima.
„Já, þegar við Ásgeir tókum við
liðinu á sínum tíma ræddum við
við Tryggva, sem og aðra leikmenn,
og gerðum þeim grein fyrir því með
hvaða hætti þeir yrðu notaðir í okk-
ar liði. Við sögðum Tryggva að hann
myndi nýtast okkur þegar við værum
að fara í leiki þar sem við sækjum
meira en minna, og hugsanlega gegn
veikari þjóðum.
Hann afgreiddi leik okkar gegn
Færeyjum á sínum tíma svo við vit-
um að hann er mjög marksækinn,
hann veit hvar markið er og er í góðu
formi núna. Hann skorar mörg mörk
og það þurfum við að fá. Svo er þetta
kannski svolítil ábending til fótbolt-
ans að það er enginn dauðadómur að
koma til íslands og spila fótbolta."
Hvað með Auðun Helgason? Nú er
hann ekki í hópnum.
„Nei, en hann kom mjög vel til
greina. Við veltum honum mikið
fyrir okkur en þá hugsuðum við
hann sem bakvörð eða hafsent. Við
erum með tvo menn í þeirri stöðu
sem við tökum fram yfir hann að
þessu sinni. Það eru Kristján Örn
Sigurðsson og Grétar Rafn, sem
hefur leikið þessar stöður báðar.“
Nú hefur Kristján Orn fengið smá-
gagnrýni á sig í Noregi.
„Já, helsta gagnrýnin sem hann
sem við virðum, og við vitum að það
kemur maður í hans stöðu. Við erum
með efnilega og góða leikmenn þarna á
miðjunni, sem geta komið í hans stað.“
Hafið þið rætt við hann?
„Nei, ekki við, en Geir Þorsteins-
son hefur rætt við hann.“ Gunn-
ar Heiðar Þorvaldsson hefur
líka spilað mjög vel í Svíþjóð
„Já, Gunnar kom aðeins í okkar hóp í
fyrra og var með okkur úti í Króatíu
og á Ítalíu. Ég hef líka séð hann spila í
Svíþjóð og mér finnst hann hafa tekið
miklum framfórum. Hann er orðinn
hraðari, vinnusamari og hefur alltaf
verið öflugur fyrir framan markið.
Hann mun spila með 21 árs liðinu.
Hann varð fyrir því óláni úti í Noregi
að lenda í samstuði við Frode Kippe
og kollegar ykkar þarna í því landi
hafa nánast afhausað hann þannig
að honum hefur ekki verið ýtt inn á
völlinn nema að litlu leyti eftir það.
Þess vegna teljum við að það sé gott
fyrir Hannes að fara að spila þennan
U-21 leik og svo sjáum við til. Ef eitt-
hvað gerist í okkar hópi með leikbönn
eða meiðsli er aldrei að vita nema við
kippum Hannesi yfir.“
Eiður Smári hefur verið að spila
aðrar stöður hjá Chelsea en eingöngu
í framlínunni. Hafið þið íhugað að
færa hann aftur hjá ykkur?
„Já, við höfum gert það. Hann hef-
ur reyndar spilað þessa stöðu hjá
okkur áður, reyndar á móti Englandi,
og það minnti nú lítið á fótboltaleik
nema að það voru mörg mörk skoruð.
Að vísu var þetta þannig að þegar
Rúnar Kristinsson var í liðinu hj á okk-
ur að þeir voru mikið að skipta um
stöður þannig að Eiður þekkir þetta
mjög vel. Hann er góður í að koma til
baka og fá boltann. Það gladdi okkur
og við höfum reyndar alltaf vitað að
Eiður getur leikið þessa stöðu. Ástæð-
an fyrir því að hann hefur ekki gert
það fyrr er kannski sú að vinnusemi
hans og hlaup án bolta og hlaup í
varnarleik hafa tekið miklum stakka-
skiptum og það finnst okkur hafa ver-
ið til bóta.“
Er hann leiðtoginn sem vantar á
miðjuna eftir að Rúnar fór?
„Éiður Smári er leiðtogi, hvort
sem Rúnar er með eða ekki. Það er
mjög þýðingarmikið fyrir okkur að fá
Eið Smára inn í þennan hóp. Knatt-
spyrnugeta hans er engum vafa und-
irorpin og ekki bara geta hans á vell-
inum heldur mun hann færa öðrum
leikmönnum sjálfstraust, sem ég held
að sé mjög mikilvægt."
Munum við sjá sóknarbolta í leikj-
unum tveimur?
„Það var nú einhver sem var svo
skemmtilegur í svona viðtali að hann
sagði: Við sækjum þegar við höfum
boltann. Við erum að fara að spila á
móti sterkri þjóð, sem er Ungveijar,
og einbeitum okkur að því fyrst til að
byija með. Við vitum að grunnurinn
að því að við sigrum í leikjum er að
við höldum okkar marki hreinu. Við
vitum að við munum skapa okkur
færi en grunnurinn er að halda mark-
inu hreinu og síðan gerum við okkur
grein fyrir því að við verðum að fara
ögn fleiri í sóknina en við höfum gert
áður.“
Eigum við einhverja von í riðlin-
um?
„Við verðum bara að einbeita okk-
ur að þessu eina verkefni og svo sjá-
um við til. Það verða einhverjir sem
verða fáanlegir til að telja til einhver
stig ef við fáum þau.“
Viðtal við Harald Frey Guðmundsson
Haraldur Freyr Guðmundsson var í
gær valinn í A-landslið karla í knatt-
spyrnu í fyrsta sinn. Þessi 23 ára
varnarmaður gekk til liðs við Aale-
sund FK í janúar en vakti verðskuld-
aða athygli með Keflavík síðasta sum-
ar. Við heyrðum í Haraldi sem var að
vonum ánægður með að vera kominn
í íslenska landsliðið.
Kom þér á óvart að vera valinn í
landsliðið á þessum tímapunkti?
„Ég vissi að ef ég stæði mig héma í
Noregi þá ætti ég möguleika á sæti í
liðinu en auðvitað kom þetta skemmti-
lega á óvart.“
Voru landsliðsþjálfararnir búnir
að kíkja á leik með þér svo þú vitir
til?
„Nei, ekki svo ég viti til. Ég veit
að minnsta kosti þá ekki hvaða leik
þeir komu á en heyrði af einhverjum
þvælingi hjá þeim héma í Noregi um
daginn."
Hafa þeir rætt eitthvað við þig um
valið á þér? Veistu hvort þú fáir að
spila?
„Nei, það verður örugglega bara
gert þegar hópurinn kemur saman en
ég er staðráðinn í að nýta mitt tæki-
færi ef ég fæ það.“
Er þetta ekki gríðarlega stórt stökk
fyrir þig að fara í atvinnumennsku og
verða valinn í landsliðið á rétt rúm-
lega hálfu ári?
„Jú, kannski, en vissulega hef ég
tekið framfóram með því að geta ein-
beitt mér 100% að boltanum héma
úti. Ég fæ að kljást við betri leikmenn
og boltinn er hraðari þannig að mað-
ur tekur framfórum."
Hvernig hefur þér gengið síðan þú
gekkst í raðir Aalesund?
„Það hefur gengið mjög vel hjá mér
persónulega. Klúbburinn er lítill og
heimilislegur og það hefur ekki verið
mikið mál að koma sér fyrir hérna.
Reyndar hefur okkur ekkert gengið
alltof vel að plokka inn stig það sem
af er móti en ég hef fulla trú á að það
fari að koma hjá okkur.“
Þú hefur fengið frábæra dóma í
Noregi með liðinu. Er þetta ekki að
ganga vonum framar?
„Jú, vissulega hefur gengið vel.
Þetta er bara eitthvað sem maður
stefndi á - að komast í liðið og svo
er bara að halda áfram. Hvort ég fæ
góða dóma í blöðunum skiptir mig
ekki miklu máli, maður veit alltaf
best sjálfur hvort maður spilar vel
eða illa.“
Hvernig hafa stuðningsmennirnir
tekið á móti þér?
„Þeir hafa tekið mér mjög vel og
emm við án nokkurs vafa með bestu
stuðningsmenn í Noregi. Það er góð
tilfinning að ganga inn á völlinn okk-
ar fyrir framan stuðningsmenn okk-
ar. Bærinn hérna er með einhvers
konar fótboltaveiki og gjörsamlega
elskar fótboltaliðið sitt. Það snýst allt
um boltann hér í þessum bæ.“
Hvernig er að vera atvinnumaður
í Noregi? Er þetta eintómur dans á
rósúm?
„Það er bara ágætt. Ég hef það
a.m.k. mjög gott en að sjálfsögðu er
þetta ekki bara dans á rósum. Það
er æft stíft og þá sérstaklega á und-
irbúningstímabilinu. Núna þegar að
tímabilið er byijað þá er minna um
erfiðar æfingar en á móti er leikja-
álagið meira.“
Hvernig hefur þér gengið að aðlag-
ast?
„Það hefur í raun gengið mjög vel.
Strákamir í liðinu hafa tekið mér
vel og eins stuðningsmennirnir. Ég
er búinn að koma mér vel fyrir og
mér líður bara vel hérna í Álasundi.“
Er mikill munur á aðstöðunni hjá
Aalesund og Keflavík, þar sem þú
varst áður?
„Já, ég myndi segja það. Umhverf-
ið er allt annað. Það sem skilur mest
á milli almennt heima og svo það
sem gerist í atvinnumennskunni er
að í kringum liðið og klúbbinn eru
menn á fullum launum en eru að
gera þetta í sjálfboðavinnu heima,
a.m.k. hjá Keflavík. Þar er samt
staðið vel að málum og reyna þeir
að gera þetta eins faglega og þeir
geta. Þeir menn sem standa í þess-
ari sjálfboðavinnu eiga hrós skilið."
Fylgistu með íslenska boltanum eft-
ir að þú fórst út?
„Já, ég fylgist mikið með boltan-
um heima í gegnum netið. Maður
sér fótboltakvöld og les svo þess-
ar helstu fréttir á fotbolta.net."
Hvað finnst þér um stöðu mála hjá
þínugamla félagi, Keflavík?
„Mér finnst staðan ágæt þar. Liðið
hefur misst marga leikmenn frá því í
fyrra. Eftir var samt góður kjami og
hefur liðið svo fengið marga góða leik-
menn til sín. Ég hef engar áhyggjur
af því að Keflavík standi sig ekki vel.
Eigum KR á morgun heima og þeir
vinna þann leik eins og vanalega þeg-
ar KR kemur í heimsókn."
Hvers saknarðu mest frá Islandi?
„Ég sakna vina minna og fjöl-
skyldu mest.“
Við höfum heyrt af áhuga hol-
lenskra liða á þér. Hefur þú heyrt eitt-
hvað af því?
„Já, ég hef eitthvað heyrt af því. Ég
einbeiti mér bara að því að spila og
ef eitthvað annað kemur upp á borðið
í sumar eða seinna þá skoðar maður
það þá.“
Hefðirðu áhuga á að fara í hol-
lenskt lið?
„Ég er alltaf tilbúinn að skoða allt
og Holland er örugglega mjög góður
kostur."
Hver eru framtíðarmarkmið þín?
„Að vera heill heilsu, bæta mig
sem knattspyrnumaður og gera
það sem mér finnst skemmti-
legast - að spila fótbolta."