blaðið - 27.05.2005, Side 24
föstudagur, 27. maí 2005 I blaðið
brilljant
tökur
Á morgun verður 50. sýning á leikritinu
„Alveg brilljant skilnaður" í Borgarleik-
húsinu. Á tæpum þremur mánuðum
hafa sýningar orðið 50 og sýnt hefur
verið fjórum til sex sinnum í viku. Upp-
selt hefur verið á allar sýningamar.
Þijár sýningarhelgar eru eftir áður en
sumarfrí leikhússins skellur á.
„Auðvitað er ég gríðarlega montin
yfir árangrinum, sem er nokkuð ein-
stakm-,“ segir Edda Björgvinsdóttir
leikkona, sem fer með eina hlutverk
leikritsins. Hún leikur Ástríði Jónu
Kjartansdóttur sem verður fýrir
því áfalli að eiginmaðurinn yfir-
gefur hana vegna yngri konu.
,Ég skil hvert einasta
augnablik hjá þessari konu,“
segir Edda. ,Annars held ég
að í átökum milli kynjanna
séum við konumar refsigl-
aðari og hefhigjamari en
karlamir, auk þess sem við
höfum meiri hugmyndaflug
þegar kemur að refsiaðgerðum.“
Konur em í meirihluta sýningar-
gesta leikritsins og Edda segir það
ekki koma á óvart: „Konur halda uppi
leikhúslífinu. Þær era mátt-
arstólpar Hstalífsins í hinum
vestræna heimi. Það hefur
þó komið mér á óvart hversu
gaman karlmenn hafa af
þessu leikriti, þeir virðast
skemmta sér konunglega."
Kolbrun@vbl.is
gáfa. Ein besta
gamanleikkona
heims, Dawn
French, lék
hlutverk-
ið
sviði
Edda Björgvinsdóttir. „Núna, eftir að
hafa fengið allar athugasemdirnar, er ég
mjög stolt af sýningunni. Mér finnst hafa
verið farin rétt leið að þessu verki."
Fallegur sársauki
Höfundurinn, Geraldine Ar-
on, kom hingað til lands og
sá 40. sýninguna. Edda lýsir
Geraldine sem óborganlega
skemmtilegri konu. „í viðtöl-
um sagði hún, og ég apaði
það upp eftir henni: „This
is not my divorce." Svo trúði
hún mér fyrir því að skilnað-
ur hennar hefði verið nauða-
líkur þeim í leikritinu, hún
hefði bara logið öðra.
Eg kveið því nokkuð að henni
myndi ekki líka þessi íslenska út-
London. Ég er einlæg-
ur aðdáandi hennar og
fannst ekki spennandi
að vera borin saman við
hana. Geraldine sagði
hiklaust hvað henni
fannst að sýningunni og
var mjóg heiðarleg. Svo
sagði hún við mig: „Það
sem mér finnst fallegra
við þessa sýningu en
Lundúnarsýninguna era
sársaukafulluaugnablik-
in.“ Hún sagðist hafa
farið að gráta í þeim at-
riðum. Eg var næstum
farin að gráta þegar hún
sagði þetta. Ég varð svo
innilega glöð. Það era
svo margir sem líta svo á að leiki mað-
ur í gamanleik sé maður ekki að leika
Konur
halda uppi
leikhúslíf-
inu. Þær
eru mátt-
arstólpar
listalífsins
í hinum
vestræna
heimi.
drama. En það er stutt á milli grát-
urs og hláturs."
Engin léttúðug hopp
Þórhildur Þorleifsdóttir er leikstjóri
sýningarinnar og Edda ber mikið lof
á hana: „Ég lá í henni að leikstýra
sýningunni og vissi að hún myndi
ekki láta mig komast upp með að
gera hlutina á auðveldan hátt. Hún
gerði miklar kröfur um að ekki væri
hoppað léttúðlega yfir neitt.
Þegar sýning er komin á fjalimar
sér maður hvað er að og hvað hefði
átt að gera öðravísi, þótt maður sé
ekkert að ræða það úti í bæ. Maður
sér sýninguna með augum gagnrýn-
enda, áhorfenda og allra sem hafa
gert athugasemdir. Núna, eftir að
hafa fengið allar athugasemdimar,
er ég mjög stolt af sýningunni. Mér
finnst hafa verið farin rétt leið að
þessu verki."
Fjallað um„Hannesarmálið“
í Berlingske
6.888'
Nilfisk ALTO Compact
Þrýstingur: 100 bör
Vatnsmagn: 300 l/klst
í hinu danska Berlingske
Tideme var fjallað ítarlega
um réttarhöldin yfir Hann-
esi Hólmsteini Gissurarsyni
vegna brota á höfundarrétti
við ritun íyrsta bindis ævisögu
hans um Halldór Laxness. Til
stóð að réttarhöldin hæfust í
dag en þeim hefur verið frest-
að til 1. júní. Höfundurinn er
Sören Kassebeer. Hann hefur
greinina á orðunum: „Er íslenski rit-
höfundurinn, Nóbelsverðlaunahaf-
inn og sósíalistinn Halldór Laxness,
fómarlamb nornaveiða sjö árum eftir
dauða sinn? Eða eru það þvert á móti
hægri sinnaðir gagnrýnendur hans
sem era ofsóttir?"
Höfundur greinarinnar ræddi við
Guðnýju Halldórsdóttur, dóttur Lax-
ness, og Hannes Hólmstein Gissurar-
son. Guðný segir að tilkynning Hann-
esar á sínum tíma, um ritun ævisögu
föður hennar, hafi komið á óvart og
sér hafi ekki litist á blikuna þar sem
Hannes sé einn af hugmyndasmið-
um hægri sinnaðs stjómmálaflokks
(Sjálfstæðisflokksins) og aðdáandi
Margaretar Thatcher. í
greininni kemur fram að
Björn Bjamason dóms-
málaráðherra hafi skrifað
um mál Hannesar á heima-
síðu sína, þar sem hann
heldur fram sakleysi hans
í málinu. „Fólk á íslandi
efast um að réttlætið nái
fram að ganga þegar vinir
ríkisstjórnarinnar hafa af-
skipti fyrir hönd Gissurarsonar," hef-
ur greinarhöfundur eftir Guðnýju.
Hannes Hólmsteinn segir hins
vegar að málið snúist um hugmynda-
fræði. „Róttæka vinstra liðið reynir
- að koma glæpastimpli á aðrar skoð-
anir en þeirra eigin og flæma fólk,
sem ekki fylgir pólitískri rétthugs-
un þeirra, út úr Háskólunum," segir
Hannes. Hann segir að enginn vafi
leiki á að Laxness hafi verið einn af
merkustu rithöfundum Islands á 20.
öld og bætir við: „En það er óþolandi
að einungis innvígð klíka vinstri
manna, sem íjölskylda hans er hluti
af, hafi einkarétt á að skrifa um
hann.“ m
15.888'
Nilfisk ALTO Compact
Þrýstingur: 120 bör
Vatnsmagn: 440 l/klst
28.888'
Nilfisk ALTO Excellent
Þrýstingur: 135 bör
Vatnsmagn: 500 l/klst
Tæki sem auðvelda vorverkin
ALTO háþrýstidælur
Rekstrarvörur
- vinna meö þér
Réttarhálsi 2*110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Ri
Kór og unglingakór Grafarvogskirkju
flytja vorlög og kirkjulega tónlist í
Grafarvogskirkju sunnudaginn 29.
maí kl. 16.
Unglingakórinn er í vináttusam-
bandi við bandarískan drengjakór
„Land of Lakes Choirboys“ frá Elk
River Minnesota. Drengjakórinn
hefur tvívegis komið í heimsókn til
íslands og haldið tónleika í Grafar-
vogskirkju, síðast 30. júní 2004 þar
sem Unglingakórinn söng ásamt hon-
um. Nú í sumar mun kórinn leggja
upp í langa og mikla söngferð til
USA og á Islendingaslóðir í Kanada.
Hann mun endurgjalda heimsókn
Drengjakórsins og halda ásamt hon-
um þrenna tónleika í nágrenni Elk
River Minnesota og syngja við messu
í Central Lutheran Church í Elk Ri-
ver.
í Kanada heldur kórinn tónleika
í Winnipeg og Gimli og mun syngja
við messu í Árborg. Einnig mun hann
heimsækja elliheimili og gleðja eldri
borgara með íslenskri tónlist. Á eínis-
skrá kórsins er að finna nær eingöngu
íslenska tónlist og verkefnið kallast
„íslensk tónlist vestur um haf“.
Aðgangseyrir að tónleikunum gj