blaðið - 28.06.2005, Síða 1
Hive.is Þjónustusími 414 1616
Hiveute
Þráðlaust internet
4GB niðurhal
8Mb tenging
3.990
ÁMÁNUÐI*
i
Fjöldi Islendinga
þátt í útsendingu
uá - bls. 27
á netinu
út í heim
- bls. 25
að nota kreditkort?-ws.
með augum
- bls. 18
Ritstjórnar- og augiýsingasími: 510 3700 • biadid@vbl.is
36. TBL . 1. ARG.
ÓKEYPIS
Bæjarlind 14-16,
201 Kópavogur
SímiS10-3700
bladid@vbl.is
ISSN 1670-5947
FRJALST OG OHAÐ
ÞRIÐJUDAGUR, 28. JUNI. 2005
í gær gáfu í sameiningu flest þau félög, sem koma að réttindum kvenna á íslandi, Alþingi gjöf í tilefni 90 ára afmælis kosninga-
réttar kvenna. Halldór Blöndal, forseti þingsins, tók við gjöfinni sem erfrá Femínistafélagi Islands, Kvenréttindafélagi islands,
Kvenfélagasambandi íslands, Kvennasögusafni íslands, Kvennakirkjunni, Rannsóknarstofu í kvenna- og kynjafræðum, Samtökum
um kvennaathvarf, Stígamótum og UNIFEM á íslandi. Gjöfin er verk eftir listakonuna Kolbrúnu Björgólfsdóttur, Koggu, og nefnist
kvennakraftur.
Tugþúsunda yfirdrátt-
ur á reikningi íbúa
Upp komst um 14 ára langan fjárdrátt starfskonu á vist-
heimili geðfatlaðra fyrir tilviljun. Aðstandendur gáttaðir
á eftirlitsleysi yfirvalda.
Nammigrís borgar
sekt
- bls. 2
/
Forsetinn stjórnar
ekki utanríkis-
stefnunni
- bls. 2
Ingunn í efsta sæti
- bls. 6
ísland vinsælt hjá
erindrekum
- bls. 4
Sarapova líkleg til
afreka
- bls. 22
ókeypis til
Bnxiiina
heimila og fyrirtækja
alla virka daga
blaóió
í ljós er nú komið að bankareikning-
ur íbúa á heimili fyrir geðsjúka að
Krummahólum í Reykjavík er kom-
inn með tugþúsunda króna yfirdrátt.
Starfsmaður heimilisins hafði um
áraraðir greitt fyrir vörur og þjón-
ustu til eigin nota með peningum
heimilismanna. Aðstandandi íbúa
á heimilinu segist hafa fengið sjokk
þegar hann var upplýstur um málið,
sem fullyrt er að hafi komist upp fyrir
tilviljun.
„Eins ósanngjarnt og hægt er“
Um áraraðir höfðu íbúar heimilis-
ins, sem voru að jafnaði fjórir, lagt
ákveðna upphæð inn á bankareikn-
ing, og umræddur starfsmaður sá
um að kaupa í matinn fyrir heimil-
ið. Starfsmaðurinn hafði hins vegar
lengi stundað að kaupa einnig vörur
og þjónustu til eigin nota fyrir fjár-
muni heimilismanna.
Þegar málið komst upp voru að-
standendur vistmanna kallaðir á
fund með forráðamönnum Velferð-
arsviðs Reykjavíkurborgar, lögfræð-
ingi borgarinnar og fleiri aðilum.
Einn aðstandandi, sem sat fundinn
og Blaðið ræddi við í gær, sagði að
upplýsingarnar sem þar komu fram
hefðu verið mikið reiðarslag. Heimil-
ismenn hefðu lengi þekkt starfsmann-
inn og treyst honum - þessu trausti
hefði viðkomandi brugðist. Þeir gerðu
sér allir grein fyrir hvað gerst hafði
og þetta væri erfitt fyrir þá. Viðkom-
andi aðstandandi sagði að þama væri
verið að stela af fólki sem hefði lítil
fjárráð, eða einungis örorkubætur.
Þetta væri því eins ósanngjarnt eins
og það gæti orðið.
Komst upp fyrir tilviljun
Á fundinum var samþykkt að málið
yrði sent til innri endurskoðunar borg-
arinnar, sem fyrir helgi sendi málið
áfram til lögreglu. Ekkert hefur verið
haft samband við aðstandendur íbúa
frá umræddum fundi.
Aðstandandi fullyrti að málið hefði
komist upp fyrir hreina tilviljun. Það
hefði verið starfsmaður sem bæri
enga fjárhagslega ábyrgð á rekstr-
inum sem hefði komið upp um það.
Aðstandandinn segir að furðu veki að
ekkert eftirlit skuli vera með svona
hlutum. Ennfremur lýsti viðkomandi
efasemdum um að hægt væri að fá
nákvæmar upplýsingar um hversu
viðamikill fjárdrátturinn væri, þar
sem erfitt væri að greina á milli þess
sem starfsmaðurinn keypti til heim-
ilisins annars vegar og til eigin nota
hins vegar.
Ekki náðist í Steinunni Valdísi
Óskarsdóttur borgarstjóra vegna
málsins í gær.
Sparisjóöur Hafnarfjarðar:
Sóttað
stofnfjárhöfum
að upplýsa um
kauptilboð
Fjármálaeftirlitið ítrekaði í tilkynn-
ingu í gær að stofnfjárhöfum í Spari-
sjóði Hafnarfjarðar væri skylt að lög-
um að veita eftirlitinu hvers konar
gögn eða upplýsingar um hugsanleg
kauptilboð eða annars konar sam-
komulag um kaup á stofnfjárhlutum.
Stjórn Sparisjóðsins átelur á hinn
bóginn Fjármálaeftirlitið fyrir að fara
á svig við sig, hún sé fulltrúi stofnfjár-
eigenda út á við.
Tilkynning Fjármálaeftirlitsins
var svar við bréfi stjórnar Sparisjóðs
Hafnarfjarðar frá 25. júní, en þar
gagnrýndi stjómin það að Fjármála-
eftirlitið hefði snúið sér til einstakra
stofnfjárhafa en ekki stjómarinnar.
Með því telur stjórn Sparisjóðsins að
Fjórmálaeftirlitinu hafi orðið á í mess-
unni þar sem hún sé lögformlega rétt-
ur aðili málsins og að tilkynninga- og
upplýsingaskylda vegna hugsanlegr-
ar sölu stofnfjórhluta liggi hjó sér en
ekki þeim sem hugleiði sölu á stofn-
fjárhlutum sínum.
Minnt á möguleika á húsleit
Fjármálaeftirlitið vísar hins veg-
ar á lög um fjórmálafyrirtæki þar
sem eftirlitið fær rúmar heimildir
til upplýsingaöflunar vegna hugsan-
legra eignabreytinga á fjármálastofn-
unum. Er um leið minnt á að því sé
heimilt að beita dagsektum til þess
að fá nauðsynlegar upplýsingar eða
leita að gögnum og leggja hald á þau
ef þörf krefur.
Fjórmálaeftirlitið óréttar að heim-
ildin taki ekki aðeins til þeirra, sem
fara með virkan eignarhlut, heldur
allra sem fari með eignarhlut, hversu
stór sem hann annars sé. Aðeins
þannig geti Fjármálaeftirlitið metið
hvort minni hluthafar í fjármálafyr-
irtæki mynda saman aðila sem líta
beri á sem einn virkan eiganda. Á
hinn bóginn sé stjórn Sparisjóðsins
hreint ekki aðili að slíku máli.
Fjármálaeftirlitið hefur nú til skoð-
unar hvort fyrirætlanir séu um sölu
stofnfjár í Sparisjóðnum eða hvort
slík sala hafi átt sér stað.
Forsaga málsins er sú að í apríl síð-
astliðnum var þáverandi stjóm Spari-
sjóðs Hafnarfjarðar felld í kosningum
á aðalfundi með 23 atkvæðum gegn
22, en stofnfjárhafar em alls 47, einn
skilaði auðu og einn var fjarverandi.
Þá þegar var um það rætt að nýja
stjórnin hygðist selja Sparisjóðinn og
koma hlutum stofnfjárhafa þannig í
verð. Síðan virðist meirihlutinn hafa
aukist því fregnir herma að 30 hlut-
hafar hafi þegar gert samkomulag
um sölu á hlutum sínum. Hver hlut-
ur er 200.000 krónur að nafnverði
en sagt er að 48 milljónir hafi verið
goldnar fyrir hvern þeirra. Þetta hef-
ur þó ekki fengist staðfest með nein-
um hætti og hafa fréttir gengið á víxl
að salan sé um garð gengin og að hún
sé orðrómur einn.