blaðið - 28.06.2005, Blaðsíða 12
þriðjudagur, 28. júní 2005 I blaðið
12 ne
Getur borgað
sig að nota
kreditkort?
Heildarfjöldi greiðslukorta í notkun í
lok maí var 622.566, að því er fram
kemur í Vegvísi Landsbankans. Sam-
kvæmt hagtölum Seðlabanka íslands
nam heildarvelta debet- og kredit-
korta 53,8 milljörðum króna í maí síð-
astliðnum, miðað við 46,9 milljarða í
maí í fyrra. Aukningin er tæp 15% á
milli ára. Mest varð aukningin í notk-
un greiðslukorta í útlöndum en hún
hækkaði um tæpan fjórðung á milli
ára.
Kortavelta var 252,5 milljarðar
króna frá upphafi árs og fram í maí
og er aukningin um 14%
frá því á síðasta ári. Aukn-
ingin er sögð eiga rætur
sínar að rekja til aukinnar
einkaneyslu en hún hefur
aukist um 9,4% miðað við
fyrsta árfjórðung í fyrra.
Ef tekið er tillit til verð-
hækkana á tímabilinu
jókst neyslan um 12,1%.
Neytendum, sem nota
yfirdráttarviðskipti í
miklum mæli, getur reynst
hagkvæmt að nota kredit-
kort fremur en debetkort.
Virkni og fríðindi debet- og kredit-
korta eru háð úrvali útgefandans en
kreditkort hafa þó engin færslugjöld.
Þar sem greiðsla á sér stað 45 dögum
eftir úttekt er greiðslufrestur vaxta-
laus. Mörg kreditkort gefa neytend-
um kost á ferðafríðindum og ýmsum
hlunnindum tengdum vildarkerfum
en ferða-, slysa-, farangurs- og bíla-
leigutryggingar eru háðar kortateg-
und. Við einstaka úttektir bjóðast
öllu jafnan greiðslulausnir á borð
við létt- og boðgreiðslur og áskriftir.
Kreditkort auðvelda einnig verslun
á netinu, t.d. við bókanir hótela, bíla-
leigubíla og farseðla, auk þess sem
vefverslanir á borð eBay kreíjast
greiðslukortanúmers.
Þar sem ekkert færslugjald er á
kreditkortaviðskiptum
getur það til lengdar borg-
að sig að nota kreditkort
við almenna verslun. Að
vísu eru árgjöld kredit-
korta hærri en árgjöld de-
betkorta en sé kreditkort
t.d. notað einu sinni á dag
í heilt ár borgar það sig
frekar en að greiða færslu-
gjöld og árgjald af debet-
korti í jafnmikilli notkun.
Heildarhagkvæmni veltur
þó á því hve mikið einstak-
lingur skuldar af debet-
eða kreditkortaviðskiptum því ávallt
er hagkvæmast að eiga fyrir vörunni
sem versluð er og þurfa þar með ekki
að borga vexti af lánum.
Mest varð
aukningin
í notkun
greiðslu-
korta í
útlöndum
ín—Ko rta g j öl d viðskiptavinum býðst án nokkura annara viðskipta við viðkomandi banka
, Almennt debetkort Almennt Visakort Almennt Masterkort
iNamsmanna W debetkort
Ársgjald 375 kr 375 kr 2600 kr 5500 kr
Stofngjald O kr 0 kr 1200 kr 1000 kr
Færslugjald 13 kr 13 kr 0 kr 0 kr
^spron
Ársgjald 275 kr 275 kr 2600 kr 2800 kr
Stofngjald 0 kr 0 kr 1200 kr 0 kr
Færslugjald 13 kr 13 kr 0 kr Okr
K B BANKI
Ársgjald 275 kr 275 kr 2600 kr 2500 kr
Stofngjald 0 kr 0 kr 1200 kr 1000 kr
Færslugjald 6 kr 12 kr 0 kr 0 kr
ÍSLAN DSBANKI
Ársgjald 280 kr 280 kr 2600 kr 2500 kr
Stofngjald 0 kr 0 kr 1200 kr 1200 kr
Færslugjald 13 kr 13 kr 0 kr 0 kr
Farsímanotkun í útlöndum
- nokkur mikilvæg atriöi
Það getur margborgað sig að kynna
sér kjörin á verði farsímanotkunar í
útlöndum. Á erlendri grundu greiðir
farsímanotandinn bæði fyrir þau sím-
töl sem hann hringir og þau sem hon-
um berast.
Símtölin fara öll í gegnum síma-
gátt þjónustufyrirtækisins á íslandi,
einnig ef hringt er í íslenskan ferða-
félaga á sama erlenda svæði, jafnvel
þótt þeir deili vinaáskrift hjá sama
íslenska símafyrirtækinu. Gjaldskrá
þess erlenda símafyrirtækis sem
íslenska fyrirtækið hefur gert sam-
skipta/reikisamning við, gildir fyrir
alla símanotkun að viðbættu 20%
þjónustugjaldi og 24,5% virðisauka-
skatti, sem þýðir að það kostar ein-
faldlega miklu meira að hringja frá
útlöndum til íslands heldur en það
kostar að hringja innanlands.
Það jafngildir millilandasímtali að
klakavelar
Verð
28.000 kr. 0
ÍS-hÚSÍÖ 566 6000
hringja í íslenskt talhólf þegar dval-
ist er erlendis, auk þess sem það kost-
ar jafnan meira að senda textaskila-
boð frá útlöndum.
Það getur því komið sér vel fyrir far-
símanotendur að velja sér sjálfir það
erlenda símafyrirtæki sem þeir vilja
nota meðan á utanlandsferð stendur.
Það er þó háð því að íslenska símafyr-
irtækið hafi gert fleiri en einn reiki-
samning við mismunandi aðila í við-
komandi landi. Því getur það reynst
hagkvæmt að kynna sér reikisamn-
inga við fleiri en eitt símafyrirtæki í
því landi sem ferðast er til.
Ferðafélögum gæti verið hagkvæmt
að stofna eigin reikning í viðkomandi
landi vilji þeir hringjast á, en í flest-
um löndum er tiltölulega auðvelt að
stofna símafrelsisreikninga. í Dan-
mörku er t.d. nóg að fara út í næstu
verslun og kaupa startpakka án þess
að þurfa að sýna skilríki eða skrá sig
sérstaklega hjá ákveðnu fyrirtæki.
Bensínverð
áfram hátt
Litlar lækkanir hafa orðið á verði 95
oktana bensíns í sjálfsafgreiðslu hjá
dýrustu söluaðilum eftir hækkanirn-
ar í síðustu viku.
í könnun síðustu viku vakti at-
hygli að Atlantsolía, Orkan og ÓB
seldu öll ódýrasta bensínið á 106,20
kr. Þau hafa nú öll hækkað verðið
sem er nú ódýrast í Orkunni þar sem
lítrinn kostar 107,80 kr.
Dýrastur er lítrinn hjá Esso, Olís
og Shell á 109,20 kr. í síðustu könn-
un var bensínið dýrast hjá Olís.
Dýrasta matarkarfan
kostar tvöfalt meira
Nýmjólk 1L
770 g Heimilisbrauð
1 kg. tómatar* í lausu
ms skyr - 500gr
1/2 L Kók í plasti
1 kg Bananar
10-11 Bónus Hagkaup Nettó Nóatún Krónan
Lágmúli Smáratorg Skeifan Mjódd Smáralind Skeifan
89.- 43.- 87.- 66.- 87.- 59.-
259.- 97.- 189.- 176.- 199.- 168.-
275.- 127.- 259,- 206.- 249.- 198.-
134.- 97.- 128.- 115.- 129.- 108.-
129.- 36.- 119.- 95.- 120.- 37.-
228.- 145,- 199.- 156.- 199.- 146.-
Bónus kom best út úr verðkönnun
á matvælum, sem Blaðið gerði í sex
matvörubúðum á höfuðborgarsvæð-
inu í gær. Bónus var ódýrast í öllum
þeim sex vöruflokkum sem kannaðir
voru en 10-11 dýrast.
Matarkarfan kostaði í Bónus 545
kr. en í síðustu könnun kostaði hún
698 kr. í 10-11 kostaði matarkarfan
1.114 kr.
Athygli vakti að verðmerkingar
voru víða illfinnanlegar en Hagkaup,
Nóatún og 10-11 voru með mjög vel
verðmerktar vörur.
Verslanir voru valdar af handa-
hófi.
*Ekki var gerður greinamunur á íslenskri og erlendri vöru.
AO spsr
6>eGO Hsr
<© 108,7 kr.
olís Hafnarfjörður 108,3 kr.
ORKAN Grafarvogur 107,8 kr.
03 Arnarsmári 107,9 kr.
0 Gýffaflöt 108,7 kr.
Hverjir eru ódýrastir?
Samanburður á verði 95 oktana bensíni
Kópavogsbraut Óseyrarbraut
107,9kr. 107,9 kr.
Vatnagarðar
107,9 kr.
Smáraiind
107,9 kr.