blaðið - 28.06.2005, Page 2
þriðjudagur, 28. júní 2005 i blaðið
Jafnréttis-
áætianir fátíðar
Þörf er á því að minna fyrirtæki og
stofnanir á að vera með virka jafn-
réttisáætlun eins og getið er um í
lögum. Fyrir rúmu ári sendi Árni
Magnússon félagsmálaráðherra bréf
til forsvarsmanna fyrirtækja og stofn-
ana þar sem starfa fleiri en 25 starfs-
menn. í bréfinu voru aðilar beðnir
um að svara ákveðnum lista og skila
gögnum. „Svör við bréfinu voru ekki
alltof góð en gáfu þó vísbendingu um
hvað þyrfti að gera betursegir Sig-
uijón Öm Þórsson, aðstoðarmaður
ráðherra. Hann sagði að jafnframt
hafi Árni hugsað sér að fylgja bréfinu
eftir á næstunni, enda sé ekki van-
þörf þar á.
Engar reglur eru til um það hvem-
ig lögum um jafnréttisáætlun skal
fylgt eftir og að sama skapi em eng-
in refsiákvæði ef ekki er farið eftir
þeim. ■
Landakotsskóli:
Enn óvissa
um næsta ár
Enn er óvíst hvernig skólastarf
Landakotsskóla verður á næsta ári
eftir mikið fjaðrafok í byijun mán-
aðarins. Björg Thorarensen, sem
nýlega var kjörin formaður stjóm-
ar Landakotsskóla, segir að málin
standi í stað og beðið sé eftir um-
sóknum í starf skólastjóra. Eins og
vitað er hefur séra Hjalti Þorkelsson
lýst því yfir að hann vilji ekki halda
áfram starfi sínu sem skólastjóri en
ráðningarsamningur hans rennur út
í ágúst. Björg segir að engin lending
sé komin í þeim málum sem snúa að
kennurum skólans en þeir skiptu sér
í tvær fylkingar þegar málin stóðu
sem hæst, leitað sé að nýjum skóla-
stjóra og málin verði könnuð þegar
þau mál komast á hreint.
Kínversku ungmennin:
Staða enn óljós
Mál kínversku ungmennanna, sem
reynt var að koma til Bandaríkjanna
í síðasta mánuði, eru enn óljós en þau
em komin úr höndum sýslumanns-
ins í Keflavík til Útlendingastofnun-
ar. Þar er beðið eftir ákvörðun ung-
mennanna um hvort þau óski eftir að
vera áfram hérlendis. Ljóst þykir að
þau fái ekki að halda áfram fór sinni
til Bandaríkjanna en þangað var ferð-
inni heitið þegar þau vom handtekin
í Leifsstöð í lok maí. Maðurinn, sem
fylgdi ungmennunum, var dæmdur
til hálfs árs refsingar fyrir að reyna
að smygla þeim í gegnum landið.
Mikið um afbókanir á hótelum
Mjög mikið er um afbókanir á hótel-
gistingu þetta sumarið. Þetta segir
Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri
Samtaka ferðaþjónustunnar. Ástæð-
una rekur hún til sterkrar stöðu
krónunnar og til aukinnar ásóknar
ferðamanna til Bandaríkjanna og
Eystrasaltsríkjanna, sem og landa í
Austur-Evrópu. Hún segir ennfrem-
ur að öfluga markaðssetningu þurfi
á komandi misserum til að snúa þró-
uninni við.
Hópum og ráðstefnugestum
fækkar
Hefð er fyrir því að ferðaskrifstofur
bóki fjölmörg hótelherbergi með löng-
um fyrirvara. Ef skrifstofumar nái
ekki að selja þessi herbergi neyðist
þær til að afbóka. Slíkar afbókanir
hafi verið óvenjulega miklar á þessu
vori. Ástæðan liggur aðallega í því að
færri hópar hafa bókað sig nú en áð-
ur, sem og að ráðstefnugestum hefur
verið að fækka. Erna bendir þannig á
að ekki þyrftu mörg dæmi um að 300
gestir mættu á ráðstefnu þar sem
áætlanir hefðu gert ráð fyrir 500 gest-
um, til að það færi að skipta máli.
Um fjölþættan vanda er að ræða.
Til að mynda hefur sterk staða krón-
unnar um þessar mundir það í fór
með sér að Island er orðinn ákaflega
dýr áfangastaður. Ennfremur hafa
aðrir áfangastaðir styrkt stöðu sína,
svo sem Eystrasaltsríkin og lönd í
Austur-Evrópu, sem ennþá eru mjög
ódýr kostur fyrir ferðamenn. Á sama
tíma hefur smám saman dregið úr
hræðslu ferðamanna við Bandaríkin
eftir árásirnar 11. september.
Peninga þarf í kynningarstarf
Erna bendir ennfremur á að ferða-
munstur í heiminum hafi verið að
breytast. Þannig færist það sífellt í
aukana að ferðamenn skipuleggi ferð-
ir sínar lítið fram í tímann. Vegna
þessa eru aðilar í ferðaþjónustu hér
bjartsýnir fyrir sumarið, enda standa
vonir til þess að ferðamenn sem ferð-
ast á eigin vegum, vegi upp á móti
umræddum afbókunum.
Hins vegar bendir Ema á að stjórn-
völd hafi í ár lagt af 170 milljóna
króna framlag sem ætlað var til styrk-
ingar ferðaþjónustunnar eftir áfallið
sem hún varð fyrir við árásirnar 11.
september.
„Sú ákvörðun rfkisstjórnarinnar
að taka höndum saman við greinina
reyndist mjög árangursrík og höfum
við bent á að nauðsynlegt sé að halda
þessu samstarfi áfram, bæði til að
verja greinina áfóllum við þetta geng-
isstig, auk þess sem menn eru í mun
erfiðari samkeppni en síðstu árin,“
segir Ema.
„Ríki sem eru í samkeppni við
ísland leggja að jafnaði gríðarlega
fjármuni í markaðssetningu, og sú
staðreynd að þau eru ódýrari kostur
en ísland hjálpar ekki til. Því þarf
nauðsynlega að setja aukið fjármagn
í þessa hluti hér á landi.“
Nammigrís dæmdur til að greiða sekt
Árni Emanúelsson var í Héraðsdómi
Austurlands í gær fundinn sekur
um ólöglegan innflutning á gotteríi.
Hann var dæmdur til að greiða 12.000
króna sekt fyrir að reyna að flytja til
Hægt hefði verið að Ijúka málinu með
7.500 kr. sekt. Þess í stað þarf Ámi að
greiða 12.000 kr. sekt, sem og máls-
kostnað upp á 80.000 kr.
landsins 7,3 kg af ýmis konar nammi,
5,45 kg af skinku í tveimur dósum og
20 stk. af 0,33 lítra dósum af pepsi
gosdrykk. Ennfremur þarf hann að
greiða allan sakarkostnað upp á um
80.000 krónur.
Strax boðið að klára málið
með sekt
Forsaga málsins er að Árni kom til
landsins með bílferjunni Norrænu
30 nóvember síðastliðinn. Hann var
ásamt fleirum farþegi í húsbíl sem,
þegar á bryggjuna á Seyðisfirði var
komið, var keyrt að rauðu tollhliði.
Þar hafi hann verið spurður að því
hvort hann hafi einhvern tollskyld-
an vaming meðferðis. Árni bar við
að svo væri ekki, enda hafi hann á
þeim tíma ekki vitað að aðeins væri
leyfilegt að flytja inn til landsins þrjú
kíló af sætindum í einu. Við leit í bif-
reiðinni fannst hins vegar nokkuð af
nammi fram yfir leyfilegt magn, og
var Áma þegar gefinn kostur á að
ljúka málinu með því að greiða sekt
upp á 7.500 krónur. Við það undi Árni
ekki en bauðst þegar til að greiða toll
af gotteríinu.
Nammið lá fyrir allra augum
Ámi kvaðst í samtali við Blaðið aldr-
ei hafa ætlað að brjóta lög, en viður-
kenndi mistök sín. Niðurstaða dóm-
ara Héraðsdóms Austurlands var að
Árni hefði klárlega aldrei upplýst
tollverði um hin ólöglegu sætindi, og
þau hafi því fundist við leit í bifreið-
inni sem Árni ferðaðist í. Hann hafi
því gerst brotlegur við tollalög og því
dæmdur til áðurnefndrar sektar.
Árni var mjög ósáttur við niður-
stöðu dómsins, enda hefði hann klár-
lega aldrei verið að reyna að smygla
einu eða neinu - gotteríið hafi legið á
miðju gólfi húsbílsins. Aðspurður að
því hvort ekki hefði verið viturlegra
að borga einfaldlega sektina sagði
hann að svo væri ekki - hann héldi
fast við að hann hefði ekkert rangt
gert. Árni hyggst áfrýja dómnum,
sem og að krefjast þess að vera við-
staddur þegar „góssinu" verður eytt.
Forseti
stjórnar
ekki utan-
ríkisstefnu
Athugasemdir herra Ólafs Ragnars
Grímssonar, forseta íslands, á fundi
í Bandaríkjunum hafa vakið nokkra
athygli, en þar vék hann að þeim
mun sem væri á Bandaríkjunum og
Evrópusambandinu og taldi íslend-
inga eiga meiri samleið með grönn-
um sínum vestanhafs, sérstaklega
að því leyti sem sneri að efnahagsum-
hverfinu.
Einn leiðtoga stjórnarandstöðunn-
ar sagði að þessi ummæli forsetans
væru frekar sérstök en sagði ástæðu-
laust að tjá sig frekar um þau að svo
stöddu. „Forsetinn stjórnar ekki ut-
anríkisstefhunni."
Ekki var hægt að fá afrit af ræðu
forsetans, enda flutti hann hana
blaðalaust. „Þessi fundur var með
málfundarbrag og þessar athuga-
semdir hafa að einhverju leyti áður
komið fram í máli forseta,“ segir Stef-
án Lárus Stefánsson forsetaritari.
„í sinni einfóldustu mynd sner-
ist málið um þá skoðun forsetans
að hin einsleita reglugerðasmíð
Evrópusambandsins fyrir aðildarríki
sambandsins öll væri ekki endilega
jafnheppileg ög það kerfi sem menn
búa við vestra. Þar gilda vitaskuld
margvísleg sameiginleg lög og regl-
ur, að ógleymdum gjaldmiðlinum,
en að hans mati hafa einstök ríki
Bandaríkjanna mun meira svigrúm
og frelsi á margvíslegum sviðum en
gerist í Evrópusambandinu."
Háttsettur embættismaður í Utan-
ríkisráðuneytinu sagði að forsetinn
hefði ekki ráðfært sig við ráðuneytið
um þetta efni, enda væri afar fátítt
að forseti fjallaði um mál með þeim
hætti að ástæða væri til samráðs
þar á milli, hvað þá íhlutunar. Hann
taldi jafnframt að þó að ummæli for-
setans væru á margan hátt óvenjuleg
þá rúmuðust þau vel innan utanrík-
isstefnu lýðveldisins, engum blandað-
ist hugur um að samband íslands og
Bandaríkjanna væri náið og efasemd-
ir um skrifræði Evrópusambandsins
væri að finna í öllum stjórnmálaflokk-
um. ■
Leiðrétting
Ranghermt var í myndatexta á
forsíðu Blaðsins í gær að FH hefði
burstað Fylki 5-1 í Árbænum í
fyrrakvöld. Hið rétta er að FH burst-
aði Fylki 5-2.
Sjá nánari umfjöllun á íþróttasíðu
á bls. 22 í Blaðinu í dag.
HADEGISVERÐARTILBOÐ
HEITT HLAÐBORÐ Á AÐEINS
Frá I I.O(í- 13.30 AA
Tilboðlð gildir til 30. Júní
1» éákl
690.-
Sóltún 3
Sími: 562 9060
Bæjarlind 14-16
Sími: 564 6111
t h o i I e n s h matstofQ
O Heiðskirt 0 Léttskýjað ^ Skýjað
Amsterdam
Barcelona
Berlfn
Chicago
Frankfurt
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Mallorka
Montreal
New York
Orlando
Osló
París
Stokkhólmur
Þórshöfn
Vin
Algarve
Dublin
Glasgow
23
30
21
22
28
18
16
19
19
26
31
25
23
26
19
27
18
11
28
23
17
20
(Alskýjað // Rigning, lltilsháttar Rlgnlng ’?’ Súld Snjókoma Slydda Snjóél jj
Skúr
12V
M
/
/
6
11°-'
&
/ /
✓
w
J0
■;0
i9rb
mw
W 4> -jj;í 14°
///^
Veðurhorfur í dag kl: 12.00 Veðursíminn K)2 0600 Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu (slands 13^| // / n*v
Á morgun