blaðið - 28.06.2005, Side 4
þriðjudagur, 28. júní 2005 I blaðið
Þingmannaheimsóknir mjög gagnlegar
ísland vinsælt
hjá erlendum
erindrekum
Ene Ergma kemur til fundar við Halldór Blöndal.
Mikill verðmunur
milli tjaldsvæða
í gærmorgun kom Ene Ergma, for-
seti eistneska þingsins, til íslands í
opinbera heimsókn í boði Halldórs
Blöndal en þau hittust á Alþingi og
ræddu við formenn þingflokkanna.
Halldór segist þeirrar skoðunar að
þingmannaheimsóknir sem þessar
séu mjög gagnlegar og er skemmst
að minnast þess þegar hann fór í
svipaða heimsókn til Skotlands í boði
forseta skoska þingsins. Helstu kosti
heimsóknanna segir Halldór að per-
sónuleg tengsl geti auðveldað mjög
samningagerð milli landa. Hann seg-
ir íjölmörg dæmi til um þetta og nefn-
ir t.a.m. að í viðræðum um evrópska
efnahagssvæðið hafi hjálpað mjög vin-
Sex mótmælendur, í tveimur tjöldum,
dvelja nú við Sauðaá, nálægt Kára-
hnjúkum. Með þessu vill fólkið mót-
mæla byggingu Kárahnjúkavirkjun-
ar. Tjöldin eru í landi Valþjófsstaða,
sem er kirkjujörð í Fljótsdal á Héraði.
Samkvæmt lögum þurfa mótmælend-
ur að fá leyfi jarðeiganda til að setja
upp tjaldbúðir, og það gerðu þeir
í gær. Höskuldur Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri Prestsetrasjóðs, sagð-
ist í samtali við Blaðið hafa fengið
erindi frá hópnum í tölvupósti. Hann
hafi þegar haft samband við prestinn
á Valþjófsstað, sem og stjómarmenn
Prestsetrasjóðs, og þar á bæ væm
allir sammála um að leyfa fólkinu að
skapur íslendinga við þáverandi land-
búnaðarráðherra Þýskalands.
Nóg í boði
^Alþjóðavæðing veldur því að gagn-
kvæmar heimsóknir hafa færst í
vöxt,“ segir Halldór og bætir við að
yfirleitt komi frumkvæðið frá er-
lendu aðilunum. „Það er almennt
meiri áhugi á íslandi en áður. Þá er
líka meira samstarf milli þinganna
og meiri ásókn í að auka samstarf
þjóðþinganna, fram hjá alþjóða stofh-
unum og ríkisstjóm," sagði Halldór
Blöndal. forseti Alþingis, og bætti því
við að lslendingar færu alls ekki á
alla þá staði sem þeim væri boðið til.
setja upp umræddar tjaldbúðir.
Greinilegt er á öllu að mótmælend-
ur búast við að það fjölgi í hópnum.
Þannig hafa þeir sótt formlega um
leyfi til Heilbrigðiseftirlits Austur-
lands til að setja upp tvo kamra við
tjaldbúðirnar. Helga Hreinsdóttir,
framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftir-
litsins, staðfesti þetta í gær og sagði
ennfremur að leyfið hefði þegar verið
afgreitt með samþykki.
Báðir aðilar sögðu að ekki væri
hægt að gera ráð fyrir öðm en hópur-
inn gengi vel um á svæðinu - þetta
væri jú hópur af náttúruverndarsinn-
um. |
í nvrri könnun sem Verðlagseftirlit
ASI gerði á tjaldsvæðum um allt land
kom í ljós mikill verðmunur milli
svæða. Gisting getur verið ókeypis
fynr fjölskyldu með tvö börn, 12 og
15 ára, allt upp í að kosta 4.800 kr.
Algengast er að gjald sé innheimt
fynr hvem einstakling sem gistir á
hverju tjaldsvæði og að ókeypis sé
eða að afsláttur sé veittur fyrir böm.
Það er þó mismunandi við hvaða ald-
ur full gjaldtaka miðast. Á sumum
svæðum er þó aðeins rukkað fyrir
hvert tjaldstæði, óháð því hve margir
gista í hveiju tjaldi.
í könnun ASÍ er einungis gerður
samanburður á verði fyrir gistingu
á tjaldsvæðum en ekki borin saman
sú þjónusta sem í boði er á hverju
svæði.
Gisting fyrir tvo fullorðna með tvö
börn, 5 og 10 ára, í tvær nætur var
ódýrust á tjaldsvæði Patreksfjarðar
þar sem hún kostaði ekki neitt.
Könnunina má finna á heimasíðu
ASÍ, www.asi.is.
Sótti slasað-
an sjómann
Björgunarskipið Ingólfur lagði að bryg-
gju á Hornafirði um kl. 8 í gærmorgun.
Björgunarskipið Ingólfur, sem er
skip Slysavarnafélagsins Landsbjarg-
ar á Höfn í Hornafirði, fór í sinn
fyrsta leiðangur aðfaranótt mánu-
dags. Skipið var kallað út um kl.
04.30 til að sækja slasaðan skipverja
af bátnum Smáey frá Vestmannaeyj-
um. Maðurinn hafði dottið ofan í lest
skipsins og slasast í andliti við fallið.
Skipin mættust skammt austur af
Hrollaugseyjum og var sjúklingurinn
fluttur þar á milli skipa.
Björgunarskipið lagði síðan með
hinn slasaða að bryggju á Hornafirði
um klukkan 8 í gærmorgun, og var
þegar farið með hann í aðhlynningu
hjá lækni. ■
Verðmetið á rúmar 130 milljónir.
Metið á 130
milljónir
Stjórn Fasteignastofu Reykavíkur-
borgar ákvað á fundi sínum í gær að
selja húsið að Sólvallagötu 10, sem
margir þekkja sem gamla mæðra-
heimilið. Samkvæmt verðmati gera
borgaryfirvöld ráð fyrir að húsið selj-
ist á rúmar 130 milljónir. Á fundin-
um var ákveðið að selja fleiri hús, svo
sem Fríkirkjuveg 3, sem lengi hýsti
Innkaupastofnun. Ástæða þess að
húsin eru seld nú er að borgin telur
sig ekki hafa frekari not fyrir þau. ■
Flug til New York
í allan vetur
Flogið verður til New York borgar
fjórum sinnum í viku næsta vetur en
þetta er breyting frá fyrri árum. Það
er Icelandair sem flýgur en undanfar-
in tvö ár hefur félagið gert hlé á flugi
sínu yfir háveturinn. Sú verður þó
raunin með flug til og frá Minneapol-
is í um tvo mánuði í vetur.
Ástæðan fyrir þessum breyting-
um er sú að markaðsaðstæður í New
York eru hagstæðari en þær hafa
verið undanfarin ár, að sögn Guðjóns
Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa
Icelandair.
TILB0ÐSDEKK
OTRULEGT VERÐ!
AÐEINS FYRSTA FLOKKS DEKK • FAGMEWMSKA í FYRIRRÚMI
FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK
DEKKJAHÓTEL
VIÐ GEYIVIUM DEKKIN FYRIR ÞIG ALLT ÁRIÐ GEGN VÆGU GJALDI
GUMMIVINNUSTOFAN EHF.
RÉTTARHÁLSI 2 • 110 REYKJAVÍK • SÍMI 587 5588
WWW.GVS.IS / WWW.TILBODSDEKK.IS
Kirkjan leyfir
þeim að vera