blaðið - 28.06.2005, Síða 6
þriðjudagur, 28. júní 2005 I blaðið
POLISHING WAX
• Cottiin HewBlÆmiffiTechtioloq*
with High MalecalarSSSSiSqi
• Eitrcme Shinc and ftatccVMSÍ
• lasts thmgh moaths aiHmm:______
Wcathcriag aid WashmgJM
Á heimasíðu Miss Intercontinental
fegurðarsamkeppninnar er hægt að
kjósa um ljósmyndafyrirsætu keppn-
innar og er Ingunn Sigurpálsdóttir,
sem keppir fyrir hönd Islands, þar í
efsta sæti.
Það sem vekur athygli er að til
þess að nýta atkvæðarétt sinn þarf
að greiða fyrir það með greiðslukorti.
Þannig er hægt að kaupa 10 atkvæði
Miss Intercontinental:
Ingunn
í efsta
sæti
á eina evru, 20 fyrir tvær, 50 fyr-
ir fimm evrur og að lokum er hægt
að gefa þeim keppanda sem manni
þóknast 100 atkvæði fyrir einungis
10 evrur, sem samsvarar tæpum 800
krónum. Þá er e.t.v. rétt að nefna
að einungis 14 stúlkur höfðu fengið
atkvæði en kjósa má fram til 29. júlí
þegar keppnin verður haldin í Kína.
Þegar þetta er skrifað trónir Ingunn
á toppnum með 21,8% atkvæða en
fast á hæla hennar er Michelle Banz-
er frá Bandaríkjunum með 18,5%.
Konur sýna störfum
í álveri áhuga
Starfmanna-
stjórí Alcoa,
sem byggir
ÆKL. W nú álver í
K~'í ‘nm Reyðarfirði er
bjartsýnn á
að stór hluti
Bk starfsmanna
verði
konur. Mark-
mið Alcoa sé
að helmingur
starfsmanna
í hinu nýja ál-
veri verði konur og hélt fyrirtækið
þrjá kynningarfundi fyrir skömmu til
að kynna konum þá möguleika sem
þeim opnast á nýjum vinnustað. Að
sögn Hrannar Pétursdóttur, starfs-
mannastjóra Alcoa, mættu um 100
konur á fundina, sem var nokkuð
fram úr væntingum.
„Sú mynd sem almenningur hef-
ur af álverum sem vinnustað nútím-
ans byggist á gömlum álverum. Sú
mynd er ekki raunsæ,“ segir Hrönn.
Hrönn Pétursdóttir,
starfsmannastjóri
Alcoa.
Hún bendir á að konur gætu
fundið fjölmörg störf á nýjum
vinnustað, en viðurkennir um
leið að 50% markmiðið náist
líklega ekki á næstunni. Til
þess séu of margir starfsmenn
álversins iðnaðarmenn, og að
konur vanti nauðsynlega inn
í iðnaðarmannageirann. Hún
segir þó að um langtímamark-
mið hjá Alcoa sé að ræða, og
að unnið verði að málinu á
komandi árum.
Gera má ráð fyrir að um
400 manns muni vinna hjá
0
ALCOA
Stafrænt sjónvarp:
Ríkisútvarpiö
og 365 fá tíðnir
Póst- og fjarskiptastofnun tilkynnti í
gær að gengið hefði verið að tilboðum
Ríkisútvarpsins (RÚV) og 365 ljós-
vakamiðla ehf. í UHF-tíðnir fyrir staf-
rænt sjónvarp á landsvísu. Alls voru
tíu rásir boðnar út til útsendinga
samkvæmt DVB-T staðli og rann til-
boðsfrestur út 31. maí.
Athygli vekur að aðeins RÚV og
365 ljósvakamiðlar
gerðu tilboð í
rásirnar
og fær
R Ú V
þrem-
ur rás-
um út-
hlutað en 365 ljósvakamiðlar tveimur
rásum. RÚV hyggst nota eina rásina
alfarið til þess að dreifa háskerpu-
sjónvarpi (HDTV), en efasemdaradd-
ir hafa heyrst um burði RÚV til þess
að halda úti íleiri sjónvarpsrásum
þótt lagaheimild sé til þess, en stofn-
unin hefur átt við varanlegan rekstr-
arvanda að etja undanfarin ár.
í útboðslýsingu voru settar fram
kröfur um að bjóðendur skyldu
tryggja að uppbygging á dreifikerfi
til 98% landsmanna yrði lokið innan
tveggja ára. Tilboð beggja fyrirtækja
þóttu uppfylla skilyrði um útbreiðslu
sendinga og þjónustu við notendur og
var því gengið að þeim báðum.
Undirbúning-
ur kominn á
fullt
Undirbúningur fyrir Þjóðhátíð í Vest-
mannaeyjum er nú kominn á fullan
skrið. í þessari viku verður til að
mynda byrjað að flytja í Herjólfsdal
öll helstu mannvirki Þjóðhátíðar.
Meðal þess sem flutt verður í dalinn
er stóra sviðið, brúin og fleira. Hóp-
ur manna mun á næstuni vinna við
að koma öllu nauðsynlegu fyrir í
dalnum. Farið er að safna eldiviði í
brennuna og vinna að ýmsu öðru er
hátíðinni tengist.
í gær var tilkynnt að engin önnur
en Icy Spicy Leoncie myndi troða upp
á Þjóðhátíð í ár. Hún mun koma fram
á kvöldvöku hátíðarinnar á fóstudags-
kvöldinu.
Kirkjan kemur til móts
viö samkynhneigöa
Alcoa þegar starfsemin verður kom-
in á fullan skrið, en byrjað verður að
ráða almenna starfsmenn um mitt
næsta ár.
Þjóðkirkjan hefur lengi verið
gagnrýnd fyrir skilningsleysi á
málefnum samkynhneigðra.
Kristján Valur Ingólfsson,
lektor við Háskóla íslands og
prestur á Þingvöllum, segir mál-
in vera í vinnslu innan kirkj unn-
ar og von sé á úrskurði kenni-
nefndar um hjónavígsluritúal.
Samt verði ekki litið fram hjá
því að kirkjan hafi mikil áhrif
og vill alls ekki hlaupast und-
an merkjum með það. í sérriti
Kirkjuritsins, sem Prestafélag
íslands gefur út, er samantekt
á erindum þriggja málþinga
undir nafninu „Samkynhneigð,
kirkja og trú“. Ritinu er lokið
með ályktun um skipan þriggja
manna starfshóps. Hlutverk
hans sé að gera hjónavígsluritú-
al sem gildir jafnt fyrir vígslu
allra hjóna, óháð kynhneigð.
Niðurstaða þessarar hópvinnu
skuli liggja fyrir innan þriggja
mánaða.
Kirkjan opin öllum
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir,
verkefnisstjóri á Biskupsstofu, bend-
ir á að kirkjan sé auðvitað öllum opin
og til staðar fyrir alla þá sem eiga við
vandamál að etj a. Vissulega sé ágrein-
ingur um stöðu samkynhneigðra
innan hennar en hér á landi snúist
hann nánast eingöngu um hjónabönd
þeirra. Hún telur fordóma gegn sam-
kynhneigðum frekar vera í hefðum
samfélagsins heldur en innan kirkj-
unnar - samkynhneigðir séu velkomn-
ir í kirkjuna eins og allir aðrir.
e
pór tjaW Omaona)
7.400 W-
Esja tjaW (6r|}!
29.900 w.
ROmfeottf)ö'sMdut)a'd
anna)
Hafnarfjarðarmeistaramót
í dorgveiði
- fyrir börn
Á morgun verður haldið ár-
legt Hafnarfjarðarmeistara-
mót í dorgveiði fyrir börn á
aldrinum 6-12 ára.
Þessi keppni við Flensborgarbryggju
hefur tekist vel undanfarin ár og
verið ungum keppendum til ánægju-
auka og mikils sóma en í fyrra voru
rúmlega 300 keppendur. Veiðarfæra-
leysi þarf engan að stoppa því þeir
sem ekki eiga veiðarfæri geta fengið
þau lánuð á keppnisstað. Einnig verð-
ur hægt að fá beitu og leiðbeiningar
hjá starfsmönnum en það eru leikja-
námskeiðin í Hafnarfirði sem standa
fyrir dorgveiðinni. Verðlaun eru veitt
fyrir stærsta fiskinn og þeir sem
veiða flesta fiska fá einnig verðlaun.
Styrktaraðili keppninnar er Veiðibúð-
in við lækinn, sem gefur verðlaun -
veiðarfæri og góð ráð. Leiðbeinendur
íþrótta- og leikjanámskeiðanna verða
með öfluga gæslu við bryggjuna, auk
þess sem Siglingaklúbburinn Þytur
verður með björgunarbát á svæðinu.
Keppnin hefst um kl. 13.30 og lýkur
um kl. 15.00.
RIÐ ER TIMINN
ÞAKMÁLUN
S: 697 3592 / 844 1011
66°NORÐUR tjöldin fást í verslunum okkar
í Faxafeni, Garðabæ og á Akureyri