blaðið - 28.06.2005, Side 7
blaðið I þriðjudagur, 28. júní 2005
Gloria Arroyo, forseti Filippseyja, skömmu fyrir sjónvarpsútsendingu þar sem hún
bað filippseysku þjóðina afsökunar á ummælum sinum vegna kosninganna í fyrra.
Arroyo biðst
afsökunar
bjornbragi@vbl.is
ForsetiFilippseyja,GloriaArroyo,hef-
ur beðist afsökunar á því að hafa tal-
að við fulltrúa kjörstjómar um vonir
hennar til þess að vinna kosningam-
ar frá því í fyrra með milljón atkvæða
mun. Hún sagðist þó ekkert hafa gert
rangt og myndi ekki víkja úr embætti.
Arroyo talaði fyrir alþjóð í gær og bað
þjóðina um að sýna samheldni, en
miklar deilur spruttu eftir að málið
kom upp og hafa fjölmargir krafist
Flugvél nauð-
lent vegna
hnífs um borð
Farþegaflugvél frá flugfélaginu Am-
erican Airlines nauðlenti í Chicago
um helgina, um klukkustund eftir
að hún tók á loft, eftir að farþegi til-
kynnti flugáhöfninni að hann hefði
fundið lítinn hníf. Hnífinn fann hann
í pakka sem flugfélagið útvegar far-
þegum sínum, sem inniheldur kodda
og teppi. Þeir 200 farþegar, sem vom
á leið til Rómar, þurftu að gista eina
nótt í Chicago þar sem flugáhöfn-
in hafði, samkvæmt reglum, unnið
of margar samfelldar stundir. Við
grandskoðun á vélinni eftir að hún
lenti fannst ekkert grimsamlegt.
Talsmaður American Airlines sagð-
ist ekki vita hvernig hnífurinn komst
í pakkann.
loftkœling
þess að hún segi af sér, þegar fimm
ár eru eftir af kjörtímabili hennar.
„Ég viðurkenni að það var skortur á
dómgreind að hringja þetta símtal.
Ég biðst afsökunar. Ég sé einnig eftir
því að hafa látið svona langan tíma
líða þar til ég tala við ykkur,“ sagði
Arroyo, en þijár vikur er síðan málið
kom upp. „Ég tek fulla ábyrgð á gerð-
um mínum og vil fullvissa ykkur um
að éghef tvöfaldað viðleitni mína til að
þjóna þjóðinni og endurvinna traust
ykkar. Ég vil ljúka þessum kafla og
halda áfram að stjóma landinu."
Ekki er víst að yfirlýsing Arroyo
nái að sefa andstæðinga hennar og
vinstrisinna sem hafa sameinast
gegn henni og haldið fjölmenn mót-
mæli víða um Filippseyjar. Andstæð-
ingar Arroyo hafa einnig sakað hana
um að svindla í kosningunum og
vinna ekki fyrir fólkið í landinu.
ísraelskur hermaður dæmdur
fyrir morð
Fyrrum hermaður ísraelshers hefur
verið dæmdur fyrir morð á 22 ára
Breta á Gaza-svæðinu árið 2003.
Hinn 22 ára Tom Hurndall var við
störf sem ljósmyndari í palestínska
bænum Rafah og var, að sögn vitna,
að hjálpa bömum undan skotbar-
daga þegar hermaður í varðtumi
skaut hann í höfuðið. Hurndall dó
svo níu mánuðum síðar eftir að hafa
legið í dái allan þann tíma. ísraelsher
var tregur til að aðhafast eitthvað í
Tom Hurndall
málinu en eftir þrýsting frá bresk-
um stjórnvöldum og fjölskyldu Hurn-
dalls var ákveðið að rannsaka málið
til fulls.
Fjöldamorðingi játar sekt sína
kirkjuþings í bæjarfélagi sínu og
var einnig skátaforingi. Hann kjrkti
fórnarlömb sín og þóttu morðin afar
óhugguleg og vöktu athygli um þver
og endilöng Bandaríkin. Árið 1974
myrti hann hjón á fertugsaldri og
tvö börn þeirra. Þremur árum síðar
myrti hann þijár konur á miðjum
þrítugsaldri. Eftir það lét hann ekk-
ert frá sér spyijast í mörg ár þar til
í fyrra að dagblað eitt í Wichita fékk
sent umslag sem innihélt ljósmyndir
af líki konu sem Rader hafði myrt ár-
ið 1986 og ökuskírteini hennar. Morð
sem ekki hafði verið rakið til BTK-
morðingjans. í kjölfar þess sendi
hann frá sér mörg bréf með dularfull-
um skilaboðum en lögreglan komst
svo á snoðir um Rader þegar tölvu-
disklingur sem hann sendi frá sér
var rakinn til kirkjunnar sem hann
starfaði í. Hann var svo handtekinn
25. febrúar síðastliðinn. Þá kom í
ljós að hann hafði einnig verið valdur
að þremur öðrum morðum sem voru
óupplýst.
Ekki hefur verið ákveðið hvenær
dómsúrskurður verður kveðinn upp
en ljóst er að Rader hlýtur ekki dauða-
refsingu þar sem glæpimir voru
framdir áður en ný lög um dauðarefs-
ingar í fylkinu tóku gildi.
Dennis Rader.
Sextugur maður frá Kansas-fylki í
Bandaríkjunum, Dennis Rader, hefur
jétað sig sekan um 10 morð sem fram-
in voru á árunum 1974-1991. Morðin
voru öll framin á Wichita-svæðinu
í Kansas og ollu mikilli skelfingu.
Morðinginn var viðumefndur „BTK-
morðinginn", sem stóð fyrir „bind,
torture, kill“ (í. binda, pynta, myrða),
og var hann vanur að senda lögreglu
og fjölmiðlum dularfull skilaboð sem
tengdust morðunum. Rader, sem er
sextugur núna, var handtekinn fyrir
fjórum mánuðum og hefur mikil eftir-
vænting ríkt vestanhafs yfir fréttum
af málinu.
Hrottafengin morð
Rader, sem er giftur tveggja bama
faðir, gegndi á sínum tíma forsæti
Norðmenn and-
vígir aðild að
ESB
Samkvæmt skoð-
anakönnun frétta-
vefsins Nationen.no
er meirihluti Norð-
manna andvígur aðild að Evrópu-
sambandinu. I könnuninni, sem gerð
var á dögunum, kom fram að 51,5%
landsmanna vilja ekki að Noregur
gangi í ESB en einnig vekur athygli
að aldrei hafa jafnfáir verið hlynntir
aðild að sambandinu, eða 36%. Inn-
an Verkamannaflokks Jens Stoltemb-
ergs hefur andstaðan við aðild ekki
verið meiri síðan 2002. Fylgi við að-
ild að ESB hefur farið minnkandi um
allan Noreg, að undanskildum norð-
urhlutanum og í Ósló og Akershus.
Grábjörn banaði hjónum
Miðaldra hjón fundust látin í tjaldi
á náttúruvemdarsvæði í Alaska eft-
ir að grábjöm hafði ráðist á þau á
sunnudag. Hjónin vom í „River-raft-
ing“ ferð og höfðu tjaldað meðfram
Hulahula-ánni, þar sem þau síðan
fundust, ásamt ónotuðu skotvopni.
Ekkert fólk var í grenndinni þegar
árásin átti sér stað. Skömmu áður en
dýrið réðst á hjónin hafði maður, sem
sá dýrið þegar hann sigldi niður ána,
tilkynnt það yfirvöldum. Lögregluyfir-
völd segjast hafa fundið dýrið og fellt
það. Lögreglan sagði ekkert benda til
þess að mannfólk hafi valdið dauða
hjónanna og sviðsett atvikið.
Þýskar vændiskonur
í réttindabaráttu
l
Verð frá 49.900 án vsk.
ÍS-hÚSÍð 566 6000
Deilur um réttmæti lögleiðingar vændis fyrir þremur árum
lög gera það að verkum að vændis-
konur hafa rétt til atvinnuleysis- og
sjúkratrygginga. Breyti þeir (stjóm-
málamennirnir) lögunum á nýjan
leik munu vændiskonur ekki hafa
þessi réttindi," sagði Cetin.
í þinghúsinu í Berlín var hins
vegar lítil samúð með mótmælum
vændiskvennanna, einkum úr hópi
íhaldsmanna. Þingmaður kristilegra
demókrata, Ute Granold, fullyrti að
lögleiðing vændis fyrir þremur árum
hefðu verið mistök sem þyrfti að leið-
rétta. „Vændi er ekki eins og hvert
Þýskar vændiskonur beijast nú fyrir
því að tryggja að ríkisstjórn Þýska-
lands dragi ekki til baka áunnin
réttindi þeirra, eins og einhveijir
þingmenn þar í landi hafa mælst til
að verði gert. Árið 2002 var vændi lög-
leitt í Þýskalandi og hefur sú ákvörð-
un verið nokkuð umdeild meðal lands-
manna.
Katharin Cetin er talsmaður
Hydra-hópsins sem berst fyrir rétt-
indum vændiskvenna í Þýskalandi og
skipulagði m.a. mótmæli fyrir utan
þinghúsið í Berlín á dögunum. „Þessi
annað starf. Það er brot á mannlegri
reisn," sagði Granold. „Konur eru ann-
aðhvort neyddar til þess eða þurfa á
peningum að halda. Lögin eru einsk-
is nýt. Engin kona hefur tryggt sjálfa
sig, einfaldlega vegna þess að þær
vilja það ekki. Þess vegna er þörf á
nýjum lögum."
Stephanie Klee, vændiskona til 20
ára og fulltrúi þrýstihóps fólks í kyn-
lífsbransanum, segir að ástæðan fyr-
ir því að svo fáar vændiskonur hafi
fært sér nýtilkomin réttindi sín í nyt,
sé það homauga sem samfélagið lít-
ur starfsstéttina. Vændiskonur þori
ekki að opinbera starf sitt af ótta
við fordóma almennings. JÞetta var
ekki nema lítið skref af því sem við
áttum von á og því sem við þurftum.
Það sem skiptir öllu máli er að gefa
okkur löglega og sanngjarna stöðu
til að sinna starfi okkar," sagði Klee
ennfremur.
Samkvæmt fréttamiðlinum BBC
er áætlað að hátt í 400.000 vændis-
konur séu starfandi í Þýskalandi, en
það er tæplega hálft prósent af íbúa-
fjölda landsins.
OGLEYMANLEGAR STUNDIR MEÐ
Tæki sem koma þér í sumarskap
Canon PowerShot A400
Stafræn myndavél á frábæru veröi
■ 3.2 milljón pixlar.
■ 2.2x aðdráttur í linsu.
• 12 tökustillingar.
• VGA kvikmyndabútar meö hljóði.
• Fáanleg i fjórum litum.
Tilboösverö 18.900 kr.
Verð 22.900 kr.
Canon PowerShot S60
Glæsileg 5.0 milljón pixla vél
• 3.6x gleiðhorna linsa með aðdrætti.
• 13 tökustillingar.
■ DIGIC og iSAPS tækni.
• 9-punkta AiAF sjálfvirkur fókus.
• Beintengjanleg í samhæfða prentara.
Tilboðsverð 39.900 kr.
Verð 49.900 kr.
Canon MP370 fjölnotatæki
Hágæöa Ijósmyndaupplausn
■ 2 pl dropastærð.
• Hraðvirk í prentun/ljósritun.
■ Beintenging í myndavél
og rauf fyrir minniskort.
• Rammalaus prentun/ljósritun.
Tilboðsverð 14.900 kr.
Verð 19.900 kr.
CanoScan 5200F
Öflugur skanni fyrir skjöl og filmur
Mjög hraðvirkur.
2400 x 4800 punkta upplausn.
Háhraða USB 2.0 tenging.
4 stillanlegir flýtihnappar.
Tækni sem fjarlægir rispur.
Tilboðsverð 16.900 kr.
Verð 21.900 kr.
NÝHERJI
Nýherji hf. • Borgartúni 37 -105 Reykjavik • Simi 569 7700 • www.nyherji.is