blaðið - 28.06.2005, Qupperneq 10
10 börn og upp<
þriðjudagur, 28. júní 2005 I blaðið
íslenskir foreldrar á kafi
í lífsgæðakapphlaupi
Verðum að hugsa okkar gang
Lífsgæðakapphlaupið
er í fullum gangi á ís-
landi og oftar en ekki
hefur það áhrif á börn-
in. Sífellt fleiri börn
dvelja í níu klukku-
stundir eða meira í
leikskóium og Ijóst er
að það er löng dvöl
fyrir lítið barn. Ef litið
er til þess að börn á
leikskólaaldri eru á
tengslamyndunartíma-
bili má velta upp þeirri
spurningu hvort þessi
langa dvöl geti haft
slæm áhrif á börnin.
Börnin á hakanum
Hermundur Sigmundsson, prófess-
or við Félagsvísinda- og tæknideild
Tækni- og náttúruvísindaháskóla
Noregs í Þrándheimi, segir að börnin
séu látin sitja á hakanum
á íslandi. „Fólk verður
að hugsa sinn gang, hér
gengur allt út á að vinna.
Við erum ekkert að sinna
bömunum vel. Við viljum
þeim vel en íslenskir for-
eldrar eru á kafi í lífsgæða-
kapphlaupi. Nú hef ég bú-
ið í Noregi í 18 ár og þegar
ég kem til íslands þá er
ekki talað um annað en
peninga, verðbréfoghluta-
bréf. Það er það eina sem
er talað um, það er enginn
sem talar um börnin.“
Eitthvað á íslandi
sem veldur ofvirkni
Hermundur hefur rannsakað þroska
og nám barna síðan 1992 og hefur
skrifað bækur og vísindagreinar um
það efni. Foreldrar og heimili eru
áhrifamestu aðilarnir í að efla þroska
bamsins en þrátt fyrir það eyðir ís-
lenskt barn jafnvel meiri
tíma á leikskóla en með
foreldrum sínum. „Það eru
hlutfallslega um helmingi
fleiri börn sem fá rítalín
hér á landi en í Danmörku.
Það er því klárt mál að það
er eitthvað hérna á íslandi
sem veldur allri þessari
ofvirkni. Maður spyr sig
hvort lítill tími með for-
eldrum gæti verið ein af
ástæðunumfyrirþessariof-
virkni,“ segir Hermundur
og yppir öxlum. Hermund-
ur segir að mikið jákvætt
áreiti örvi þroska barna
og lítið jákvætt áreiti hefti
þroska barna. Hann veltir
því einnig fyrir sér hvort börnin fái
nægilega örvun ef það eru um 30 börn
á einni deild, enda sé það alltof mik-
ill fjöldi. Það sé ágætt að hafa 15-16
börn á deild. Hermundur tekur fram
að leikskólar séu ágætir út af fyrir
sig. Það sé gott
fyrir börnin að
kynnast og ná
þessum félags-
lega þroska. Her-
mundur spyr sig
einnig þeirrar
spurningar af
hverju fólk sé að
eignast börn ef
það hafi engan
tíma fyrir þau.
„íslendingar eru
rosalega vinnu-
söm þjóð en áður
fyrr höfðum við
jafnvel ömmurn-
ar til að sinna
uppeldi og tala
við börnin. Nú til
dags er enginn
sem tekur að sér
þetta hlutverk,
enda voru ömm-
umar heima
þá en núna eru
þær líka útivinn-
andi.“
u—
Það eru
hlutfalls-
lega um
helmingi
fleiri börn
sem fá
rítalín hér
á landi en í
Danmörku
Hermundur Sigmundsson. prófessor
Lítil áhersla á að skoða þroska
barna
Hermundur segist ekki hafa nein
algild svör við því hvaða áhrif löng
vistun getur haft á bömin, enda sé
fiað flókið samspil ýmissa þátta. Á
slandi finnast litlar rannsóknir um
nám og þroska barna en Hermund-
ur hefur verið að berjast fyrir því að
opna hér rannsóknarmiðstöð, „enda
er ísland sérstakt þjóðfélag sem er
ekki á réttri leið, að mínu mati. Það
virðist vera lítil áhersla á að skoða
þroska og nám barna á íslandi og
hvað sé best fyrir þau. Háskólinn sem
ég vinn hjá í Noregi fékk 10 milljónir
norskra króna frá ríkinu til að rann-
saka nám og þroska barna. Á íslandi
er engin starfsemi á vegum ríkisins
til að rannsaka nám og þroska barna,
sem myndi þá nýtast leikskólum og
skólum." Hermundur er um þessar
mundir í hringferð um ísland og held-
ur fyrirlestra um hreyfingu og heilsu
á vegum Ungmennafélags Islands.
Hann segir að það sé sérstaklega mik-
ilvægt að börn séu ekki fyrir framan
tölvuleiki og sjónvarp allan daginn.
Að endingu segir Hermundur: „Þeg-
ar við sitjum á grafarbakkanum þá
hugsum við til þess tíma sem við átt-
um með fjölskyldu okkar og vinum.
Það er enginn sem spáir í það hvort
hann hafi þénað þúsund kallinum
meira eða minna eða hve marga tíma
hannvann."
Ertu á hraðfgffi?
Bílaapótek - lyfin beint í bílinn - Hröð afgreiðsla
Opið kl. 10-24 alla daga vikunnar
Einnig innangengt apótek sem er opið mánudaga til laugardaga kl. 10-19.
Lyfjaval (yljavdl ii * slmi S77 1160
BlLAAPÓTEK OPID 10-24
úmsTurwnHiisig
HPI Savage fjarstýrður bensínbtll.
Fáanlegur með þremur vélastærðum 3,5,4,1 og 4,6cc.
Tómstundahúsið
Nethyl 2,
sími 5870600,
www.tomstundahusid.is
H i ta ve i t u vat n i ð
getur brennt!
Herdís Storgaard
Ánokkuðmörg-
um stöðum á
landsbyggðinni
geturreynsterf-
itt að stilla hit-
ann á baðvatn-
inu. Nú þegar
fólk er mikið að
ferðastermikil-
vægt að foreldr-
ar hafi þetta í
huga því árlega
brennast mörg böm á heitu vatni þar
sem fjölskyldan dvelur í sumarleyfi.
Slysin verða við ýmsar aðstæð-
ur, s.s. í sturtu, baðkari og
heitum pottum.
Margir hafa kynnst því hversu erftt
getur verið á sumum stöðum að stilla
vatnið í sturtunni rétt - hún er annað-
hvort of heit eða of köld. Svo má ekki
skrúfa frá kalda vatninu í öðru her-
bergi því þá verður vatnið í sturtunni
sjóðandi heitt. Þannig hafa flest slys-
in orðið og á svipaðan hátt í baðkar-
inu. Slysin í baðkari gerast við það
að hitinn á vatninu er stilltur og það
lá^ið rgnna,í karió, Síðan skrúfar ein-
-'hwr frá Kalda vátninu' á'ððrum stað
í húsinu og við það breytist stillingin
á vatninu sem er að renna í baðkar-
ið, og það er nú orðið sjóðheitt. Fólk
er kannski vant því að nota hitastýri-
tæki heima fyrir, sem sér um að hit-
inn haldist á réttri stillingu, og kann-
ar því oft ekki hita baðvatnsins áður
en það dembir sér út í. Slys í heitum
pottum (setlaugum) gerast einnig á
þennan hátt.
Á mörgum hitasvæðum á landinu
rennur hveravatn óhindrað á yfirborð-
inu. Þessi svæði eru mjög spennandi í
augum barna. Talsvert er um að börn
hafi verið að leika sér á svona svæð-
um, jafnvel mjög ung börn í fylgd
eldri systkina, sem hafa dottið ofan í
sjóðheitan leir og brunnið við það lífs-
hættulega.
Ágætu foreldrar og forráðamenn:
Hugið vel að hættunni af heitu vatni
á áfangastað fjölskyldunnar - þannig
má koma í veg fyrir alvarleg bruna-
slys á börnum.