blaðið - 28.06.2005, Qupperneq 22
þriðjudagur, 28. júní 2005 I blaðið
West Ham á
eftir Figo og Butt
Forráðamenn enska úrvalsdeild-
arliðsins West Ham hafa sett sig í
samband við Real Madrid vegna
hugsanlegra kaupa West Ham
á portúgalanum Luis Figo. Þetta
kemur fram í breska blaðinu The
Daily Star í gær. Figo, sem er 32ja
ára, er sagður þurfa að taka á sig
töluverða launalækkun ef hann
ætlar að spila með West Ham, fara
úr 10,8 milljónum íslenskra króna
á viku í 7,2 milljónir. Þá er Alan Par-
dew, framkvæmdastjóri West Ham,
að undirbúa tilboð í Nicky Butt, leik-
mann Newcastle, sem ekki náði að
festa sig í sessi í byrjunarliði félags-
ins í vetur. Tilboð Pardews hljóðar
upp á 240 milljónir íslenskra króna.
Greame Souness, framkvæmda-
stjóri Newcastle, keypti Butt á 300
milljónir frá Manchester United.
Nicky Butt er þrítugur að aldri.
Hópurinn fyrir NM
U17 kvenna valinn
Erna Þorleifsdóttir, þjálfari U-17 ára
landsliðs kvenna í knattspymu, hef-
ur valið leikmannahóp sinn sem tek-
ur þátt í Norðurlandamótinu. Leik-
mennimir koma frá átta félögum á
landinu en mótið fer fram í Noregi í
byrjun næsta mánaðar.
U 17 lið íslands
Fanndís Friðriksdóttir
Breiðablik 0 leikur
Guðrún E. Hilmarsdóttir
Breiðablik 8 leikir
Hekla Pálmadóttir
Breiðablik 8 leikir
Hlín Gunnlaugsdóttir
Breiðablik 0 leikur
Laufey Björnsdóttir
Breiðablik 3 leikir
Rósa Húgósdóttir
Breiðablik 0 leikur
Sandra Sif Magnúsdóttir
Breiðablik 4 leikir
Elísa Pálsdóttir
Fjölnir 1 leikur
Kristrún Kristjánsdóttir
Fjölnir 0 leikur
Rúna Sif Stefánsdóttir
Fjölnir 0 leikur
Anna Þórunn Guðmundsd.
Grindavík 0 leikur
G. Bentína Frímannsdóttir
Grindavik 0 leikur
Ása Aðalsteinsdóttir
HK 4 leikir
Thelma Gylfadóttir
ÍA 0 leikur
Mist Elíasdóttir
Keflavik 0 leikur
Agnes Þóra Árnadóttir
KR 0 leikur
Margrét Þórólfsdóttir
KR 0 leikur
Guðný Óðinsdóttir
Valur 0 leikur
Leikið verður 3.-6. júlí og Frakkar
verða með gestalið í mótinu.
VAGNHÖFÐA 17 SÍMI 587 2222
FH rúllaði yfir Fylki
Flestir sem fóra á leik Fylkis og FH í
Landsbankadeildinni áttu von á jöfn-
um leik og jafnvel að FH tapaði sín-
um fyrstu stigum á íslandsmótinu.
Fylki hefur gengið afar vel með FH
undanfarin ár þegar liðin hafa mæst í
Árbænum en í þessum leik sáu heima-
menn aldrei til sólar þó svo að veðrið
hafi verið eins og best verður á kosið.
Eftir hálftíma leik var staðan orðin
0-3 fyrir FH og var Allan Borgvardt á
skotskónum í tveimur fyrstu mörkun-
um. Áfram héldu gestimir og bættu
við einu marki og staðan í hálfleik
var 0-4. Heimir Guðjónsson og Auð-
un Helgason bættu við mörkum núm-
er þrjú og fjögur. Heimamenn löguðu
aðeins stöðuna í seinni hálfleik þegar
Helgi Valur Daníelsson og Björgólfur
Takefusa skoraðu fyrir Fylki, 2-4, en
Hafnfirðingar vora ekki hættir og
settu fimmta markið og þar var að
verki Allan Borgvardt. Daninn snjalli
skoraði því þijú mörk í leiknum og hef-
ur nú skorað sjö mörk í deildinni en
Tryggvi Guðmundsson, sem ekki náði
að skora í leiknum, er markahæstur
með átta mörk. Tryggvi Guðmunds-
son var rekinn af velli í leiknum gegn
Fylki, eftir að hafa lent í einhveijum
ryskingum við Ragnar Sigurðsson
Fylkismann. Dómari leiksins, Magn-
ús Þórisson, var ekki í vafa og rak
báða út af. Spurning hver þeirra var
æstastur, leikmennirnir sem vora
reknir út af eða Magnús dómari.
Framarar heillum horfnir
Fram og Keflavík mættust á Laugar-
dalsvelli. Framarar gátu með sigri
híft sig upp í 3. sæti og Keflvíkingar
stefndu að sama markmiði. Framar-
ar komust yfir með sjálfsmarki Kefl-
víkinga þegar þeir reyndu að bjarga
góðum skalla Víðis Leifssonar. Þeir
bláklæddu voru töluvert betri í fyrri
hálfleik en hinum unga miðverði liðs-
ins, Kristjáni Haukssyni (18 ára),
urðu á alvarleg mistök fimm mínút-
um fyrir lok fyrri hálfleiks og Stefán
Öm Amarson nýtti sér það og skor-
aði fram hjá Gunnari Sigurðssyni í
markinu hjá Fram. 1-1 var staðan í
hálfleik og það vora ekki liðnar nema
20 sekúndur af seinni hálfleik þegar
Hólmar Öm Rúnarsson skoraði fyrir
Keflavík. Gestimir voru miklu betri
í seinni hálfleik en Framarar reyndu
hvað þeir gátu að jafna metin en
komust lítt áfram gegn Suðumesja-
piltum. Hörður Sveinsson kom inn
á sem varamaður og skoraði þriðja
mark Keflavíkur einni mínútu fyrir
leikslok en Ingvar Ólason svaraði
fyrir Fram 60 sekúndum síðar og
lokatölur urðu því 2-3 fyrir Keflavík.
Guðmundur Steinarsson var sá leik-
maður sem Framarar réðu ekkert
við í leiknum á Laugardalsvelli en
hann er í fantaformi, drengurinn, og
er virkilega gaman að horfa á hann
spila fótbolta. Framarar urðu fyrir
áfalli í leiknum þegar Andri Fannar
Ottósson var borinn af leikvelli og er
búist við að hann verði frá keppni í
allt að þrjár vikur, en Andri Fannar
er með trosnuð liðbönd.
Sanngjamt í Grindavík
Grindavík og Þróttur léku í Grinda-
vík. Þar vora Þróttarar betri aðilinn
lungann úr fyrri hálfleik Eftir 15 mín-
útna leik vora þeir búnir að ná foryst-
unni þegar Halldór Hilmisson skor-
aði með ágætisskoti. Þróttarar hefðu
með smáheppni getað komist tveim-
ur mörkum yfir en þess í stað jöfnuðu
Grindvíkingar m’etin þegar um 20
mínútur voru til leiksloka. Þá skoraði
Magnús Þorsteinsson. Um fimm mín-
útum síðar fékk Þróttarinn Dusan
Jaic að líta sitt annað gula spjald og
þar með vora Þróttarar einum færri
síðasta kortérið í leiknum. Gylfi Þór
Orrason dómari gaf átta sinnum gula
spjaldið í leiknum og Jaic fékk tvö
þeirra. Jafntefli, 1-1, urðu úrslitin og
verða það að teljast sanngjöm úrslit.
Þar með era Þróttarar komnir með
fimm stig og era enn í neðsta sæti en
Grindvflringar komust að hlið Fram-
ara í 6.-7. sæti með átta stig.
Sharapova
Rússneska tennisdrottningin Mar-
ia Sharapova, sem er aðeins 18 ára,
komst öragglega í átta manna úr-
slit á Wimbledon-mótinu í tennis í
gær. Sharapova lék gegn frönsku
stúlkunni Natalie Dechy, sem er í
16. sæti heimslistans, og Sharapova
vann öragglega í tveimur settum,
6-4 og 6-2. Sharapova mætir löndu
sinni Nadiu Petrovu í ótta manna
úrslitum en Sharapova hefur titil að
veija. Lindsay Davenport vann Kim
Clijsters 6-3, 6-7 og 6-3. Mary Pierce
sló út ítölsku stelpuna Flaviu Pen-
netta og Venus Williams átti ekki í
teljandi erfiðleikum með löndu sína,
Jill Craybas.
líkleg til afreka
Hewitt áfram í karlaflokki
Ástralinn Lleyton Hewitt, sem er
númer þijú á heimslistanum, lenti í
töluverðum erfiðleikum með Banda-
ríkjamanninnTaylorDentí 16manna
úrslitum, en Dent er númer 16 á list-
anum. Hewitt vann tvö fyrstu settin,
6-4, en Bandaríkjamaðurinn vann
það þriðja, 6-7. í fjórða settinu vann
svo Hewitt 6-3 og komst í 5. umferð
eða átta manna úrslit. Andy Roddick
fró Bandaríkjunum, sem er númer
tvö á heimslistanum, sló út Guill-
ermo Coria frá Argentínu með því að
vinna 6-3, 7-6 og 6-3. Femando Gonz-
alez frá Chile sló út Rússann Mikhail
Youshny. Svíinn Thomas Johansson
sló út Búlgarann
Max Mimyi, 6-4,
7-5 og 6-4. Þeg-
ar Blaðið fór í
prentun var Ro-
ger Federer, sem
er númer eitt á
heimslistanum,
að vinna Juan
Carlos Ferrero
frá Spáni í fyrsta
settinu.
TOYOTA-MOTAROÐIN I GOLFI
KARLAR
lcelandair-mótið Carlsberg-mótið Ostamótið Heildarstig:
1. Sigurpáll Geir Sveinsson GKJ 62,6 111,1 111,1 284,8
2. Auðunn Einarsson GK 42,4 35 166,7 244,1
3. Magnús Lárusson GKJ 138,9 46,2 185,1
4. Örlygur Helgi Grímsson GV 138,9 14,1 18,53 171,53
5. Heiðar Davíð Bragason GKJ 166,7 166,7
6. Björgvin Sigurbergsson GK 21,45 20,26 62,6 104,31
7. Hlynur Geir Hjartarson GOS 13,26 12,43 50 75,69
8. Stefán Már Stefánsson GR 9,95 62,6 72,55
9. Ottó Sigurðsson GKG 21,45 46,2 67,65
10. Birgir M. Vigfússon GR 32,5 14,1 18,53 65,13
11. Helgi Birkir Þórisson GK 32,5 20,26 52,76
12. Ólafur Már Sigurðsson GR 21,45 30 51,45
13. Örn Ævar Hjartarson GS 50 50
14. Pétur Óskar Sigurðsson GR 13,26 25 9,8 48,06
15. Davíð Már Vilhjámsson GKJ 9,5 35,8 45,3
KONUR
lcelandair-mótið Carlsberg-mótið Ostamótið Heildarstig:
1. Ragnhildur Sigurðardóttir GR 62,6 166,7 166,7 396
2. Þórdís Geirsdóttir GK 166,7 50 32,5 249,2
3. Anna Lísa Jóhannsdóttir GR 111,1 111,1 222,2
4. Nína Björk Geirsdóttir GKJ 50 111,1 161,1
5. Tinna Jóhannsdóttir GK 30 62,6 46,2 138,8
6. Helena Árnadóttir GA 22,4 42,4 62,6 127,4
7. Helga Rut Svanbergsdóttir GKJ 42,4 46,2 88,6
8. Anna Jódís Sigurbergsd. GK 16,65 35 22,46 74,11
9. Katrín Dögg Hilmarsdóttir GKJ 25 32,5 57,5
10. Ingibjörg Osk Einardóttir GR 14,1 30 12,4 56,5
11. Karlotta Einarsdóttir NK 35 18,4 53,4
12. Kristín Sigurbergsdóttir GK 13,5 25 38,5
13. María M. Guðnadóttir GKG 16,65 13,5 30,15
14. Anna M. Guðmundsd. GR 12,4 17,2 29,6
15. Anna S. Sigmarsdóttir GK 14,7 14,7 29,4
Þegar keppni er hálfnuð á Toy-
ota-mótaröðinni í golfi í karla- og
kvennaflokki, er Ragnhildur Sigurð-
ardóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur
með yfirburðaforystu í kvennaflokki.
Ragnhildur er með 396 stig en næsti
keppandi er með tæp 250 stig en þar
er Þórdís Gerisdóttir á ferð. Hjá körl-
unum er öllu jafnari keppni en Sigur-
páll Geir Sveinsson úr golfldúbbnum
Kili í Mosfelsbæ er í efsta sæti en
Auðunn Einarsson úr golfklúbbnum
Keili úr Hafnarfirði er í öðra sæti.
Sex mót era í heildina í Toyota-móta-
röðinni og það má segja að vægi sig-
urs í hveiju móti sé mun meira en
áður hefur tíðkast. Núna verður gert
nokkurt hlé á Toyota-mótaröðinni
vegna þátttöku landsliðanna í golfi
á Evrópumótinu. Karlamir heíja
keppni á morgun á Hillside-vellin-
um í Englandi en keppni þar lýkur
á laugardag. Þeir sem keppa fyrir ís-
landshönd em Magnús Lárusson og
Heiðar Davíð Bragason úr GKJ, Örn
Ævar Hjartarson úr GS, Ottó Sig-
urðsson og Sigmundur Einar Másson
úr GKG, og Stefán Már Stefánsson
úrGR.
Konurnar hefja síðan keppni á
Evrópumótinu í Karlstad í Svíþjóð
5. júlí.
Næsta mót hjá körlunum og kon-
unum á Toyota-mótaröðinni verður
ekki fyrr en 21.-24. júlí en þá verð-
ur íslandsmótið í höggleik haldið á
Hólmsvelli í Leiru.
Staðan í Toyota-mótaröðinni, þeg-
ar keppni er hálfnuð, er eftirfarandi: