blaðið - 28.06.2005, Page 25
blaðið I þriðjudagur, 28. júní 2005
Hoppað á netinu út í heim
- leikur með lággjaldaflugfélögum
Með tilkomu lággjaldaflugfélaganna
er orðið allt að því hlægilega ódýrt að
fara á milli landa. Ýmsu er að sjálf-
sögðu fórnað til þess að geta boðið
upp á ferðalag fyrir lítið - eins og
plássi, þjónustu og hinum sívinsæla
flugvélamat - en fyrir þá sem það
vilja er hægt að komast ótrúlega
langt fyrir afskaplega lítið. Ef geng-
ið er út frá því að meðalverð á miða
frá Iceland Express sé 20-25 þúsund
krónur til London, Kaupmannahafn-
ar eða Frankfurt, standa ferðalöng-
um ýmsir möguleikar til boða.
Haldið í Austurvíking
Fyrir þá sem vilja heilsa upp á ætt-
ingja og vini á Norðurlöndum er
hægt að fara til Kaupmannahafnar,
þaðan til Stokkhólms og síðan til
Helsinki. Blaðinu reyndist erfitt að
finna lággjaldaflug frá Finnlandi til
Osló, en lausnin fólst þá í að skjótast
frá Finnlandi til London og þaðan til
Osló. Það kostaði heilar 8.000 krón-
ur. Frá Osló er síðan flogið aftur til
Kaupmannahafnar og þaðan heim.
Þessi Norðurlandaferð kostaði um
það bil 50.000 krónur.
Menning í Mið-Evrópu
Frá Kaupmannahöfn er hægt að
fara í prýðilegan kúltúrhring - Kaup-
mannahöfn, Prag, London, Berlín,
Frankfurt - og þaðan heim með
minningar og menningu í farteskinu.
Þessa hringferð á að vera hægt að
fara fyrir um 46.000 krónur.
T-vvxvsfciuie
nxxers
1 Wi«xo«oí 2coUcn Ciobcs*
The Aviator
Flestir láta sig
bara dreyma um
framtíðina. Hann
skapaði hana.
Frábær verð-
launamynd Mart-
ins Scorsese um
ævi auðkýf-
ingsins Howards
Hughes
Meet The
Fockers
Og þú sem hélst
að ÞÍNIR foreldrar
væru eitthvað
skrítnir. Stórstjörn-
urnar Robert
DeNiro, Ben Stiller
og Dustin Hoffman
í sprenghlægilegri
framhaldsmynd.
Closer
Þeir eru ófáir sem
halda því fram að
Closer sé ein besta
mynd sem gerð var
á síðasta ári og
hefur hún verið
hlaðin lofi og viður-
kenningum enda
toppleikarar í öllum
aðalhlutverkum.
Shall We Dance?
Hvað er kallinn
eiginlega að
bauka eftir
vinnu? Stórleik-
ararnir Richard
Gere, Jennifer
Lopez og Susan
Sarandon í
rómantískri
gamanmynd.
Ray
Á bak við einstak
tónlistina var
einstakur maður.
Jamie Foxx
túlkar Ray
Charles af stakri
snilld í einni af
bestu myndum
síðasta árs.
Vesturferð fyrir 12.000 krónur
pr. stórborg
Einnig er hægt að bregða sér í Vestur-
Evrópuhring fyrir um það bil 60.000,
ef vel er á spöðum haldið. Þá er gert
ráð fyrir Reykjavík-London-París-
Róm-Barcelona-London-Reykj avík,
en þá fara ferðalangar á milli nokk-
urra af stærstu og líflegustu borgum
álfunnar fyrir 12.000 krónur að með-
altali.
Allt hægt
Ekki er hægt að staðfesta þetta verð
þar sem verðskalar lággjaldafyrir-
tækja eru afar fljótandi, en það er
eflaust hægt að gera betur. Möguleik-
arnir eru allt að því ótæmandi.
SIDEWAYS
Elektra
Þjálfuð til að
berjast. Neydd til
að drepa. Þokka-
dísin Jennifer
Garner er ofur-
hetjan Elektra
sem nú þarf á
öllum sínum
hæfileikum að
halda til að
komast lífs af.
Sideways
í leit að rétta vín-
inu, réttu konunum
og sjálfum sér...
Hreint út sagt
stórkostleg mynd
sem farið hefur
sigurför um heim-
inn.Tilnefnd til
Óskars verðlauna
sem besta mynd
ársins.
Lemony
Snicket's...
Óhamingja. Ógleði.
Ótuktarskapur.
Sem sagt: Loksins
eitthvað skemmti-
legt. Jim Carrey fer
á kostum sem hinn
gráðugi Olaf greifi í
frábærri mynd.
After the Sunset
Glæpir borga sig
aldrei. Bara stund-
um. Pierce Brosn-
an, Woody Harrel-
son og Selma
Hayek í gaman-
samri spennu- og
fléttumynd frá Brett
Ratner.
Son of the Mask
Settu upp
grímuna og sjáðu
hvað gerist.
Jamie Kennedy
og margir þekktir
leikarar halda
uppi fjörinu í
sprellfjörugri
grínmynd fyrir
alla fjölskylduna.
www.easyjet.com
www.ryanair.com
www.icelandexpress.
com
www.sterling.com
www.skyscanner.net
1
umJ0Jr' F}í»» Á■ j J í'.; fc.-l|i - • ' J
; - l .UU U' 'jifiiáifiÍaPSBB
i
I ..s /' S'ft
1 1 Q
r