blaðið - 28.06.2005, Síða 27
blaðið I þriðjudagur, 28. júní 2005
KU 5-7-9-11
KL.9-11
KL,5-7
KL 5.45-8-10.15
KL 5.45-8-10.15
KL 4.50
BATMAN BEGINS
INSIDE DEEP THROAT
A LOT LIKE LOVE
VOKSNE MENNESKER
CRASH
HITCHHIKER'S GUIDE TO THE GALAXY
BATMAN BEGINS KL. 5.10-6.30-8.10-9.30-11 B.1.12
HOUSEOFVAX KL 10.30 B.l. 16
THE WEDDING DATE KL. 8
THE ICE PRINCESS KL. 6
BATMAN BEGINS
MR. AND MRS. SMITH
A LOT LIKE LOVE
BATMAN BEGINS
BATMAN BEGINS VIP
A LOT LIKE LOVE
HITCHHIKER'S GUIDE.
THE WEDDING DATE
SVAMPUR SVEINSSON
BATMAN BEGINS KL. 5.30-8-10.30
A LOT LIKE LOVE KL. 6
CRASH KL.8-10
www.sambioin.is
MORGAN
REEMAN
KATIE
ILMES
CHRISTIAN
BALE
MICHAEL LIAM
CAINE NEESON
NYR OG MIKLU BETRI
LEEÐUBLÖKUMAÐUR
MBL. HILDUR LOFTSDÖPTTIR
BLAÐIÐ
LOKSÍíÍS, LOKSINS
M.M.M. XFM 91,9
GLEYMID OLLUM HINUM
BATMAN MYNDUNUM.
ÞESSI ER MÁLIÐ.
ANDRI CAPONE X-FM 91,9
GLEYMDU HINUM. ÞETTA
ER ALVÖRU BATMAN
Ó.Ö.H. DV
BATMAN, EINS OG ÞU HEFUR ALDREI SEÐ HANN AÐUR!
Fjöldi íslendinga tekur
þátt í útsendingu Live 8
Ragga Gísla, Inga Lind og Sölvi Blöndal hafa bókaö komu sína.
Undirbúningur fyrir Live 8 tónleik-
ana, sem fara fram á laugardaginn,
er nú í fullum gangi víða um heim
og þar á meðal á íslandi. Eins og
fram hefur komið í fréttum að und-
anfórnu hyggjast sjónvarpsstöðin
Sirkus og tónleikafyrirtækið Concert
sýna frá tónleikunum í 12 tíma dag-
skrá. Hundruð tónlistarmanna koma
fram um allan heim, meðal annars
Björk, Coldplay, Pink Floyd, Lauryn
Hill, U2, Madonna, Elton John og
Brian Wilson. Hér heima mun fjöldi
gesta líta inn í myndver sjónvarps-
stöðvarinnar og þar á meðal norska
glysrokksveitin Wig Wam, en sveit-
in heldur tónleika á Gauki á Stöng
sama kvöld. Fjölmargir þjóðþekktir
íslendingar hafa bókað komu sína í
útsendinguna. Listinn er langur en
á honum má meðal annars sjá Birg-
ittu Haukdal, Jónsa, Egil úr Vinyl,
Idol-stjörnuna Davíð Smára, Sölva
úr Quarashi, Samma úr Jagúar, Nyl-
on-stúlkurnar, Erp Eyvindarson, Jón
Gnarr og nýbökuð hjónin Svanhildi
Hólm og Loga Bergmann. „Þetta er
bein útsending og fullt af liði sem
kíkir inn í myndveriðsegir Einar
Bárðarson hjá Concert. „Þetta verður
stórt partí og sýnt verður frá öllum
tónleikunum sem fara fram í Banda-
ríkjunum, Frakklandi, Þýskalandi,
Japan, Ítalíu, Afríku og Bretlandi.
Ég man ennþá hvar ég var þegar á
sá Live Aid fyrst þannig að þetta er
viðburður sem menn muna alla ævi,“
bætir Einar við og er þetta án efa tón-
listarviðburður sem enginn má missa
af. Auk þess standa fyrirtækin nú í
samstarfi við UNICEF, Barnahjálp
Sameinuðu þjóðanna á íslandi, í
kringum útsendingu Live 8 og ætla
að hvetja fólk til að skrá sig sem
heimsforeldrar og hjálpa bágstöddum
börnum í heiminum. „Okkar verkefni
hér á íslandi er að safna heimsfor-
eldrum fyrir UNICEF og við ætlum
að keyra á því grimmt í dagskránni.
Við hlökkum mikið til að takast á við
það verðuga verkefni," bætir Einar
við. Útsendingin hefst á hádegi laug-
ardaginn 2. júlí nk.
Smashing Pumpkins
saman á ný?
Samkvæmt fréttum MTV eru miklar
líkur á því að hljómsveitin Smashing
Pumpkins hyggist koma saman á ný,
en hljómsveitin spilaði síðast saman
á tónleikum 2. desember árið 2000. í
síðasta mánuði sagði Billy Corgan,
söngvari sveitarinnar í samtali við
MTV News, að engar líkur væri á
slíku en nú virðist sem annað hljóð
sé komið í kappann. í auglýsingu í
blaðinu Chicago Tribune koma fram
áform söngvarans um að ná bandinu
sínu saman á ný en þar segist hann
vilja fá hljómsveitina, lögin sín og
drauma til baka. Ekki kemur fram
hvernig hann hyggist endurvekja
hljómsveitina eða hvenær það verði.
Trommuleikarinn Jimmy Chamberl-
in hefur þegar staðfest að hann verði
með og sagði í viðtali við Tribune að
hann væri spenntur fyrir að spila
með gömlu félögunum á ný. Þessi
frétt kemur fáum á óvart þar sem
Chamberlin og Corgan hafa unnið
þónokkuð saman eftir að Smashing
Pumpkins hættu, meðal annars í
hljómsveitinni Zwan, sem átti sér
stutta lífdaga, og Chamberlin spil-
aði með í nokkrum lögum á sólóplötu
Corgans, The Future Embrace.
Það gæti orðið erfiðara að sannfæra
aðra fyrrum meðlimina um að þess-
ir endurfundir séu góð hugmynd og
ekki hefur enn heyrst frá gítarleikar-
anum James Iha ogbassaleikaranum
D’Arcy Wretzky. Chamberlin segist
vonast til þess að fjórmenningarnir
standi allir á sviðinu en segist þó en-
göngu getað svarað fyrir sjálfan sig.
Eitt er víst að þessar fréttir kæta
marga aðdáendur sem urðu miður
sín þegar sveitin leystist upp fyrir
tæpum fimm árum.
Mars Volta
hættir við tónleika
Samkvæmt fréttum tónlistartíma-
ritsins NME hefur hljómsveitin Mars
Volta neyðst til að hætta við tónleika-
ferð sína um Evrópu vegna veikinda
eins meðlimanna. Sveitin átti meðal
annars að spila á Hróarskelduhátíð-
inni um næstu helgi en eftir að gít-
arleikarinn, Omar Rodriguez-Lopez,
annar forsprakki hljómsveitarinnar,
fór að kvarta undan magaverkjum
sem fóru að ágerast kom ekki annað
til greina en að aflýsa öllum fyrirhug-
uðum tónleikum. Vonast er til að
hljómsveitin geti spilað saman aftur
með haustinu en búið var að skipu-
leggja tónleikaferð um Bandaríkin
með System Of A Down.
Gallagher finnst
Live 8 vera tímasóun
Það eru ekki allir jafnhrifnir af
framtaki Boþs Geldof með Live 8
tónleikunum. Damon Albarn hef-
ur gagnrýnt tónleikahaldarana og
segist efast um að þeir komi íbúum
Afríku til hjálpar og nú stígur Noel
Gallagher úr Oasis fram og segir tón-
leikana alla vera eintóma tímasóun.
Gallagher segir í viðtali að þetta sé
ekkert annað en tilgangslaus athöfn
sem muni ekki hjálpa til við að draga
úr skuldum þróunarríkjanna þar
sem ráðamenn muni aldrei hlusta.
Hann bætir því við að rokkstjörnur
hafi engin áhrif á stjórnmálamenn
og að það muni engu breyta þótt þær
syngi nokkur lög á sviði. Hann spyr
blaðamann hvort líkur séu á því að
ráðherrar G8-ríkjanna muni horfa á
Annie Lennox syngja Sweet Dream
eða Keane syngja Somewhere Only
We Know og segja að þau hafi virki-
lega eitthvað til síns máls. „Það mun
aldrei gerast," segir Gallagher að lok-
um, neikvæðnin uppmáluð.