blaðið - 14.07.2005, Síða 6
6 innlent
? -
fimmtudagur, 14. júlí 2005 I blaðið
Sigurður Þ. Ragnarsson:
Ekki hægt að panta veður
Fjölmargir íslendingar hafa flúið
votviðrið sem hefur verið áberandi í
höfuðborginni það sem af er júlímán-
uði. Sigurður Þ. Ragnarsson veður-
fræðingur segir að ef það rigni næstu
helgi verði það þriðja vatnsveðurs-
helgin í röð og að líkur séu á því að
þá fylli mælinn hjá mörgum. „Eg tek
undir með þv£ fólki sem segir að það
sé kominn alveg nógu stór skammtur
af sólarleysi hér á suðvesturhominu.
Mig er líka farið að lengja eftir betra
veðri“, segir Sigurður. Hann segir að
von sé á betra veðri á næstunni en að
breytingin verði þó ekki mikil. Hlýtt
loft er að nálgast Island en það verður
„skammvinn og nett hitasveifla" sem
hefur mest áhrif á norður og austur-
land.
Ósanngjarn samanburður
Sigurður bendir þó á að um ósann-
gjaman samanburð sé að ræða vegna
hitabylgjunnar sem reið yfir landið í
fyrrasumar. J>ó að fólk taki sér sum-
arfh' í júh og æth að treysta á blíðu
þá em veðurguðimir ekki endilega í
sömu hugleiðingum. Það er ekki hægt
að panta veður héma eins og fólk er
alltaf að komast betur að.“ Þó segir
Sigurður að sumarið sé aðeins hálfn-
að og vill því ekki afskrifa neitt. „Það
getur enn ýmislegt gerst, allavega er
ekki neitt fast í hönd.“ ■
. —..
Blaðið/Steinar Hugi
Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur
er við það að gefast upp á því aö smíða
sólpall í votviðrinu sem verið hefur.
Ræktun á
erfðabreyttu byggi
Fagaðilar
ekki hlutlausir
Líkið í Suður-Afríku:
Játning liggur fyrir
Lögregluyfirvöld í Jóhannesarborg
í Suður-Afríku hafa staðfest að líkið
sem fannst steypt í ruslatunnu er
af fslendingnum Gísla Þorkelssyni.
Gísh, sem var 54 ára gamall, bjó í
Suður-Afríku síðustu ellefu ár ævi
sinnar og starfaði þar á eigin vegum.
Hann á fjölskyldu hérlendis en syst-
ir hans býr í Bandaríkjunum.
Vinur hans bar kennsl á líkið
en áætlað er að kryfja það í
dag til þess að komast að dán- l
arorsök. |
Par hefur verið handtek-
ið vegna málsins og hefur '
43 ára kona játað á sig að
minnsta kosti hluta þess. Akær-
Adrenalíngarðurinn
an á hendur þeim er í fjórum hðum;
morð, þjófnaður, fiársvik og fyrir að
halda upplýsingum frá lögreglunni.
Karlmaðurinn, sem er 28 ára, hefur
hins vegar neitað sök. Talið er að þau
hafi þekkt Gísla
en þau koma
fyrir rétt
næstu
viku. ■
Skemmtigarður
opnar á Nesjavöllum
Fyrirætlanir íslenskra aðila um að
hefja ræktun á erfðabreyttu byggi
hér á landi til lyfjaframleiðslu vekja
margvíslegar spumingar að mati
Gunnars Á. Gunnarssonar, fram-
kvæmdastjóra vottunarstofunnar
Túns. Hann fullyrðir að ræktun á
erfðabreyttu byggi utanhúss myndi
hvergi vera leyfð annarsstaðar í Evr-
ópu enda meti aðrar evrópuþjóðir
það þannig að um of mikla áhættu
sé að ræða. Hann bendir ennfrem-
ur á að tveir af stærstu fagaðilum í
rannsóknar og ráðgjafarþjónustu við
landbúnað hér á landi séu hugsanlga
vanhæfir í málinu þar sem þeir eru
hluthafar í fyrirtækinu sem stefnir á
umrædda ræktun.
Sinna stefnumótum fyrir hið
opinbera
Aðilamir sem um ræðir em annars-
vegar Landbúnaðarháskóli íslands
og hinsvegar Bændasamtök íslands,
sem bæði em meðal stærstu fagaðila
á sínu sviði. Gunnar bendir á að báðir
þessara aðila hafi gengt veigamiklu
hlutverki í stefnumörkun og annast
ráðgjafahlutverk fyrir hið opinbera
í landbúnaðarmálum, meðal annars
hvað varðar ræktun á erfðabreyttu
byggi-
„Það á ekki að þurfa að draga
hlutleysi slíkra aðila í efa, en í ljósi
þessara tengsla vakna spurningar í
mínum huga“ segir Gunnar. „Eg er
ekki að kveða upp neinn dóm í þess-
um efnum heldur einfaldlega benda
á staðreyndir".
Á laugardaginn verður draumur
adrenalínfikla íslands að veruleika
með opnun Adrenalínsgarðsins við
Nesjavelli. Adrenalíngarðurinn er
fyrsti skemmtigarður sinnar tegund-
ar á íslandi og samanstendur af um-
fangsmikilli háloftabraut, klifurvegg,
stærstu rólu landsins, svifbraut og
öðmm ögrandi viðfangsefnum. Garð-
urinn byggir á fríimkvæði og virkni
þátttakenda sjálfra sem er ólíkt vél-
knúnum tívolítækjum sem margir
þekkja. Þannig er það þátttakandinn
sem þarf að taka allar ákvarðanir um
að leggja í þrautirnar.
Miðpunktur virkrar afþreyingar
á íslandi
Samhliða dagskrá Adrenalínsgarðs-
ins verður boðið upp á hópefli,
hellaferðir, fiallahjólreiðar, ratleiki,
ísklifur, jöklaferðir og kajakferðir.
Adrenalín býður upp á mikið úrval
virkrar afþreyingar á íslandi og verð-
ur hinn nýi Adrenalíngarður á Nesja-
völlum miðpunktur þeirrar starf-
semi. Adrenalíngarðurinn er opinn
fyrir einstaklinga um helgar og allt
árið fyrir hópa. Á laugardaginn kl.
13:00 er formleg opnun og kynning
á starfsemi hans og verður aðgangur
því ókeypis milli 13:00 - 17:00. ■
■ ■ ■ ■ I
TEIKNINGA-HERÐATRÉ
Verktakar
Teiknistofur
Verkfræðingar
Hönnuðir
©
mnr/ur
&.
jyŒingarejni
HELLUSTEYPA JVJ
VAGNHÖFÐA 17 SÍMI 587 2222
Nýbrauð og Baugsmálið:
Fimmkall á brauðið
í „offshore“-sjóð
Framleiðslustjóri Nýbrauðs staðfestir að rætt hafi
verið um sérstakt álag á Bónusbrauð, en til þess
hafi ekki komið þar sem viðskiptaforsendur hafi
breyst áður en af því gat orðið
Eins og Blaðið greindi frá á
þriðjudag kemur það fram f lög-
regluskýrslum Baugs-rannsóknar-
innar að Jón Ásgeir Jóhannesson,
forstjóri Baugs, hafi á sínum tíma
viljað leggja fimm krónur á hvert
Bónusbrauð til þess að standa
straum á kaupum á skemmti-
snekkjunni Thee Viking og rekstri
hennar. Einar Viðarsson, fram-
leiðslustjóri hjá Nýbrauði og einn
eigenda fyrirtækisins staðfestir að
þannig hafi verið í pottinn búið.
JBrauðið átti að kosta 67 krón-
ur, en hluti af verðinu, fimm krón-
ur nánar til tekið, áttu að renna í
„offshore“-sjóð“ eins og þeir kölluðu
það. Ég vissi ekkert hvað þeir ætl-
uðu að gera við þann pening," segir
Einar um ráðagerðir Jóns Ásgeirs.
Að sögn Einars var það Jón Ás-
geir, sem hafði frumkvæði að stofn-
un fyrirtækisins. „Ég var að vinna
hjá Myllunni og hann sótti mig
þangað.“
Frumkvæðið hjá Jóni Ásgeiri
en Jón Gerald leppaði
Einar segir að frá fyrstu tíð hafi
mikil leynd hvílt yfir eignarhaldi
Baugsforstjórans og hafi Jón Ger-
ald Sullenberger leppað eignar-
hlutinn fyrir hann, sem nam 20%.
Hugmyndin hafi hins vegar alfarið
verið Jóns Ásgeirs. „Hann hafði
samband við mig þar sem ég var
og spurði hvort ég hefði áhuga á
að fara út í svona brauðgerð og bað
mig um að áætla hvað við gætum
boðið brauðið á miðað við tilteknar
forsendur.“ Þar var tilgreint magn
og verð til Aðfanga, sem miðaðist
við að Nýbrauð gerði ekkert annað
en að baka og pakka inn brauði.
Baugur myndi annast dreifinguna,
söluna og allt annað.
Ráðagerðimar breyttust hins
vegar þegar í ljós kom að Baugur
var samningsbundinn Myllunni
hálfu ári lengur en Jón Ásgeir hafi
talið og bakarí Nýbrauðs stóð tilbú-
ið og verkefnalaust.
„Treystu mér“
„Til þess að þrauka fram í apríl
vantaði auðvitað rekstrarfé, en
Jón Ásgeir vildi ekki skrifa upp á
lán en sagði við mig: „Treystu mér,
skrifaðu bara upp á þetta, þetta
verður allt komið í topplag 1. apríl.
Engar áhyggjur."
Það stóðst síðan ekki, því að-
stæður voru breyttar í apríl.
Myllan gerði mun betra tilboð í
Bónusbrauð en áður og forsendur
Nýbrauðs því verulega breyttar.
„Við fengum skilaboð um að við
yrðum að jafna það verð í okkar
tilboði, greiða markaðsstyrk og
standa í dreifingunni sjálfir, þann-
ig að það var í raun búið að kippa
fótunum undan verksmiðjunni áð-
ur en hún byrjaði," segir Éinar.
„Það stóðst ekkert af því sem
hann hafði lofað, magnið sem Bón-
us átti að fá reyndist miklu minna,
í staðinn fyrir að kaupa brauðið
tók Bónus það í umboðssölu og við
þurftum að bera það, sem ekki seld-
ist. Það var dauðadæmt,“ segir Ein-
ar og er ómyrkur í máli um fyrrum
viðskiptafélaga sinn.
Svikamylla frá A-Ö
„Jón Ásgeir fór einfaldlega illa með
okkur hina. Við vorum að gera
þetta fyrir hann, hann var ekki að
gera þetta fyrir okkur. Það stóðst
ekkert af því sem hann sagði og
allt féll á okkur.“
Einar segir að þeir hefðu e.t.v.
átt að gera sér grein fyrir því að
þessi aðkoma Jóns Ásgeirs hafi ver-
ið vafasöm, pukrið með eignarhald-
ið hafi bent til þess og menn hafi
gert sér grein fyrir að hann væri
a.m.k. á gráu svæði samkeppnis-
laga.
„En auðvitað kviknar áhugi þeg-
ar svona stór maður í viðskiptalíf-
inu hefur samband við mann og
vill fara í bissness með manni. Ég
hélt bara að þessi maður myndi
ekki svíkja mann svona. Þegar
síðan allt stefndi í óefni fyrir hans
mistök og tilverknað vildi Jón Ás-
geir ekki einu sinni svara mér
hvað þá meir. Þetta var svikamylla
frá A-Ö.“
Heilbrigðisstofnun sýknuð
af 28 milljóna
Héraðsdómur Suðurlands sýknaði í
gær Heilbrigðisstoínun Suðurlands
(HSS) af rúmlega 28 milljóna króna
skaðabótakröfu fyrrum læknis á
Heilsugæslustöðinni í Hveragerði.
Lækninum var sagt upp störíum árið
2003 eftir að hafa hlotið áminningu
áður. í áminningunni var meðal ann-
ars sett út á ólöglegar garvistir lækn-
isins og óstundvísi, og þar sem hann
tók sig ekki á í kjölfar áminningar
króna kröfu
var honum sagt upp. Læknirinn
taldi hinsvegar að uppsögnin væri
ólögleg og fór því fram á bætur. Hér-
aðsdómur komst að þeirri niðurstöðu
að staðið hefði verið lögformlega að
áminningu sem læknirinn fékk, m.a.
fyrir samskiptaörðugleika við sjúkra-
flutningamenn og sjúklinga og einnig
óstundvísi sem og að uppsögnin hafi
verið í lagi.
SUMARIÐ ER TÍMINN
ÞAKMÁLUN
S: 697 3592/844 1011