blaðið

Ulloq

blaðið - 19.07.2005, Qupperneq 6

blaðið - 19.07.2005, Qupperneq 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2005 blaöiö PRODERM Fyrir þá sem stunda sundlaugar Vörn gegn klórvatni • Fyrir mjög þurra og viðkvæma húð. • Lagar strax, þurrk, sviða og kláða., • Berið á fætur til að minnka : líkur á sveppasýkingu. • Enqin fituáferð. V. v. Skráð Jækningavara • Vörn í 6 kist Fæst í apótekum www.celsus.is Takmörkun á vélarstærð bíla hjá ungum ökumönnum Engar rann- sóknir gerðar hérlendis Umræður um að takmarka það afl sem ungir ökumenn mega stjórna, þ.e. stærð bílvéla miðað við stærð bílsins, hafa verið háværar undanfarið. Þrátt fyrir þetta hafa engar rannsóknir far- ið fram á því hvort um slíkt vandamál sé að ræða hérlendis heldur hefur ein- ungis verið rætt um sambærileg lög er- lendis. Starfsmaður bílasölu sem haft var samband við benti á þá staðreynd að ef vilji væri fyrir hendi mætti ná 200 kílómetra hraða á nánast hvaða bíl sem er. Hækka frekar bílprófsaldur Jón Bjartmarz yfirlögregluþjónn segir að Ríkislögreglustjóri hafi hins vegar Iýst því yfir að frekar eigi að hækka bílprófsaldurinn í átján ár. Enn sem áður hæfist þó æfingaakstur við sex- tán ára aldur. „Þannig fá ökumenn sína fyrstu reynslu í lengri tíma und- ir handleiðslu.“ Hann bendir samt sem áður á að slysatíðni hjá ungum ökumönnum - og þá sérstaklega karl- mönnum - hafi verið hærri en hjá öðrum. Jón treystir sér ekki til þess að fullyrða hvort vélastærð hafi áhrif. ,Það kann þó að leiða til frekari hrað- aksturs að vera á kraftmeiri bílum.“ Af mörgu að taka Sigurður Helgason, verkefnastjóri Um- ferðarstofu, segir að í raun hafi þessi mál aldrei verið könnuð sem raun- verulegur kostur hérlendis. „Svona takmarkandi reglur eru m.a. til í Nor- egi og geta bæði snúið að vélastærð og hversu marga farþega ökumenn mega hafa í bílnum. Svo er einnig spurning um það hvort næturakstur sé tak- markaður. Hér á landi eru auðvitað bílar sem ungt fólk sækist eftir að kaupa, eiga og aka sem eru mjög kraft- miklir - e.t.v. hættulega kraftmiklir miðað við þyngd bílsins.“ Sigurður telur þó að brýnna sé að auka og bæta þjálfun ökumanna með því að koma á kennslusvæði þar sem ökumenn gætu prófað að aka við sem fjölbreyttastar aðstæður. ■ Víkin meðferðarheimili 34 meðferðarpláss fyllast á rúmri viku -eftir sumarlokanir Þórarinn Tyrfmgsson, y firlæknir á Vogi, tel- ur að þau 34 pláss sem eru í boði á meðferð- arheimilinu Víkinni fyllist á næstu tveimur dögum. Opnað var á héimilinu eftir sum- arlokanir 1 síðustu viku og því er ljóst að nokkuð margir biðu eftir plássi. Með þessu segir Þórarinn að biðlistar hafi minnkað all- verulega en bendir á að innlagnir séu færri en áður vegna breytinga á rekstri hjá SÁÁ. „Það eru fyrst og ffemst karlar á aldrinum 16 til 55 ára sem eiga erfitt með að fá meðferð núna þar sem sumarlokun er á meðferðar- heimilinu að Staðarfelli“, segir Þórarinn. Meðferð fyrir konur Á Vík er fyrst og fremst meðferð fyrir konur og eldri karlmenn. „Þessar sumarlokanir eru eins og aðrar sumarlokan- ir, með þeim náum við endum saman í rekstr- inum“, segir Þórarinn. ....... „Þetta er í þriðja sinn sem við höfum sumarlokanir en þær hafa tekist vel. Fólk þarf auðvitað að bíða og leggja aukalega á sig en þetta 99.......... Með þessum sumarlokun- um náum við endum saman er það sem verður að gera til þess að reksturinn gangi upp.“ Víkin er vökt- uð af læknum og hjúkrun- arfræðingum á Vogi en fimm starfsmenn eru þar að meðaltali. Þarna er end- urhæfingarmeðferð í um ....... fjórar vikur í senn og síð- an fer fólk út í lífið en fær stuðning á göngudeildinni á Vogi. ■ Díselolía veldur áhyggjum yfirvalda Hefóum átt að sjá vandann fyrr" Ofullnægjandi geymslumáti á díselolíu veldur Brunamála- stofnun, Umhverfisstofnun og Ríkislögreglustjóra miklum áhyggjum og þess vegna hafa þessir aðilar sett af stað átak þar sem vonast er til þess að minnka þá áhættu sem þegar er orðin. Aðspurður um ástæðu þess að ekki hafi verið farið af stað með forvarnir áður en skaðinn var skeður segir Björn Karlsson brunamálastjóri að stjórnvöld hafi verið smeyk við að ýta e.t.v. undir díselhamst- ur almennings. Hann viðurkennir þó að betur hefði mátt sjá fyrir vandann sem nú er orðinn. Vandi í boðskiptum Ekki virðist þó ljóst hvernig bregðast eigi við díselhamstri Islendinga í aðdraganda hækkunar á olíuverði um síðustu mánaða- mót. Ljóst er að margir hafa hamstrað dísel- olíu og að víða er hún geymd við vafasamar aðstæður. Sem dæmi má nefna þá olíu sem geymd er í plasttunnum í aftanívögnum á malarplani milU Smáralindar og Smára- torgs og var fjallað um í fféttum Stöðvar 2 um helgina. Slökkvilið höfuðborgarsvæðis- ins telur málið ekki hey ra undir sig þar sem vagnamir eru á víðavangi og því eigi heil- Þrátt fyrir vitneskju um díselolíu í þessum aftanívagni hafa yfirvöld ekkert gert í málinu. Þau hafa þó áhyggjur af málum sem þessu. brigðisyfirvöld að sjá um málið. Þó höfðu heilbrigðisfulltrúar Kópavogsbæjar einung- is heyrt af málinu í fréttum en ekki eftir öðmm boðleiðum. Samt sem áður var bent á að mörg mál þessa efnis væm til athugun- ar hjá þeim og þau yrðu öll rannsökuð. Því virðist sem yfirvöld séu ekki viss um það hver eigi að hafa áhyggjur af fleiri þúsund lítmm af dísilolíu í affanívagni á bílaplani. Þó er athygli vakin á því að geymsla og með- ferð olíubirgða af þessu tagi er óheimil. Mengunarhættan mikil Fjölmargar ábendingar hafa borist yfirvöld- um um díselolíu í misáreiðanlegum ílát- um. Brunamálastjóri telur íkveikjuáhættu Iíklegast ekki vera helsta áhyggjuefnið þar sem töluverðan hita þarf til þess að kvikni i díselolíu. Hins vegar er mikil hætta á meng- un þar sem olían mengar alvarlega jörð og vatn leki hún niður. Dýr í jarðvegi og setlög em í sérstakri hættu hvað þetta varðar auk þess sem vatnsból geta tímabundið orðið ónothæf. Olíufélögin kaupa olíuna Þeir sem náðu sér í birgðir af dísilolíu fyrir verðhækkunina um síðustu mánaðamót er bent á að kynna sér þær reglur sem segja til um geymslu á olíunni. Ef þeir telja að geymsluaðstæðum sé ábótavant er þeim bent á að olíufélögin hafa lýst sig tilbúin að kaupa olíuna til baka eða að farga henni sé hún ónothæf. Heilbrigðisyfirvöld benda einnig á að slys vegna ólöglegrar geymslu olíunnar eru að öllu leyti á ábyrgð eigenda olíunnar, hvort sem um eldhættu eða meng- un sé að ræða. Verði hinn almenni borgari var við slys eða olíuleka er honum gert að hafa sam- band við viðkomandi heilbrigðiseftirlit en ef um stærri leka er að ræða er símanúmer- ið 112. Sjálfboðaliðar aðstoði á Menningarnótt Aðstandendur Menningarnætur f Reykjavík hafa óskað eftir sjálfboðalið- um til að taka þátt í starfi menningar- nætur sem verður haldin 20. ágúst. Að sögn Sifjar Gunnarsdóttur, verkefna- stjóra viðburða hjá Reykjavíkurborg, er verkefni sjálfboðaliðanna fyrst og fremst að taka myndir af atburðum Menningarnætur og á sama tíma að veita og afla upplýsinga. „Hugmyndin er að setja upp nokkrar upplýsinga- stöðvar í miðbænum á Menningarnótt. Þar væru sjálfboðaliðarnir nokkurs konar umsjónarmenn yfir þeim svæð- um. Þar myndu þeir t.d. dreifa dagskrá hátíðarinnar og skrásetja það sem fyrir augu ber með myndavélum en slíkt er mjög dýrmætt þegar hátíðin er kynnt erlendis." Þá er einnig á teikniborðinu að vinna í því að gera viðhorfskönnun meðal gesta Menningarnætur. Erlend fyrirmynd Byrjað var með þetta verkefni 1 fyrra og er það af erlendri fyrirmynd. „Ég kynnt- ist þessu á ráðstefnu um hátíðarhöld þar sem ég hitti menn sem standa að gríðar- stórri listahátíð rétt hjá San Fransisco. Þeir töluðu um hvað hátíðin þeirra gæti aldrei orðið að veruleika án sjálfboða- liða sem hjálpuðu þeim árlega.“ ■ Vinna við klæðningu Kárahnjúkastíflu gengur vel Vel gengur að leggja steypta klæðningu vatnsmegin á Kárahnjúkastfflu sam- kvæmt frétt á heimasíðu framkvæmdar- innar, karahnjukar.is. Þar kemur fram að verkið hófst 23. júní síðastliðinn og sé á áætlun. Áður hafði vatnshlið stífl- unnar verið undirbúin með sérstöku undirlagi til að slétta það og rétta af. Verkið fer þannig fram að steyptur er 15 metra breiður renningur 1 einu og byrjað er neðst. Steypan er flutt að brún- inni fyrir ofan og skilað í rennu niður í svokölluð skriðmót þar sem henni er jafnað yfir flötinn sem lagt er á hverju sinni og hún víbruð til að hvergi mynd- ist holrúm í umfangsmiklu neti steypu- járns. Skriðmótin, sem jafnframt eru vinnupallur, hanga f vírum sem gríðar- öflugar rafknúnar vindur draga upp og þannig gengur verkið smám saman, en mótin þokast einn t il tvo metra á klukku- stund. Steypuklæðningin er þykkust neðst á stíflunni, allt að 70 sentimetrar, en þynnist þegar ofar dregur og verður um 30 sentimetrar efst. Gert er ráð fyr- ir að þessu hluta vinnunnar við Kára- hnjúkastíflu ljúki sumarið 2006. Erum að taka r • • • Nýbýiavegi 12 • 200 Kóparogi Súni 554 4433 Útsalan í fullum gangi! Opnunartími mán - föst. 10-18 laugardaga 10 -16

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.