blaðið - 22.07.2005, Síða 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2005 blaðið
ARBÆIARSAFN
OPIÐ ALLA DAGA í SUMAR FRÁ10 -17
Nánari upplýsingar á vefslóðinni www.minjasafnreykjavikur.is
O"
TE & KAFFI
- í Díllonshúsi
Minjasafn Reykjavíkur
ÁRBÆJARSAFN
eGO
ódýrt bens(n + ávinningur!
Skemmti-
ferðaskip
til bjargar
Læknir um borð í skemmtiferðaskip-
inu Explorer gerðist bjargvættur í
gær þegar maður fékk hjartaáfall
um borð í skútu í Dýrafirði. Explor-
er var í um 10 mínútna fjarlægð frá
skútunni og breytti stefnu sinni til
móts við hana þar sem maðurinn
var tekinn um borð. Áðurnefndur
læknir hlúði þar að honum þar til
arla Landhelgisgæslunnar, TF-
F, kom á staðinn og flutti hann
til Reykjavíkur. Maðurinn er ekki í
lífshættu. ■
Dagforeldrar
að hverfa
Inga Hanna Dagbjartsdóttir stjórn-
armaður i Barnavistun, félagi dagfor-
eldra í Reykjavík, telur að R-listinn
trúi því ekki hversu mikill rekstrar-
kostnaður er hjá dagforeldrum og
því hafi Skattstjórinn í Reykjavík
farið fram á ítarlegar framtalsupp-
lýsingar frá þeim öllum.
Hún segir stefnu R-listans ekki
fjölskylduvæna og spyr hvort dag-
foreldrar verði næsta starfsstéttin
í Reykjavík til að hverfa. „Allavega
finnst mér það ekki fjölskylduvænt
þegar fólk getur ekki lengur valið
hvort börnin þeirra geta verið í ró-
legheitum hjá dagmömmu fyrsta
árið eða farið á stóra deild inni á
leikskólum. Mér finnst það ekki
spennandi kostur fyrir lítil börn,
kannski ekki nema sex mánaða
gömul“, segir hún. ■
Erfiðasti kaflinn efftir
Trampólínslys:
Tæplega 100 börn á
slysadeild í sumar
Betur fór en á horfðist þegar 12 ára
drengur féll af trampólini og missti
meðvitund í fyrrakvöld. Þetta er al-
varlegasta trampólínslysið það sem
af er sumri en Herdís Storgaard, verk-
efnisstjóri slysavarna barna, óttast
að enn fleiri slys muni eiga sér stað
ef fólk fer ekki að átta sig á hættunni.
Hún áréttar þó að hún sé ekki mót-
fallin trampólínum þar sem þau ýti
undir hreyfingu ungmenna. „Ég er
auðvitað hlynnt notkun trampólína
en það má ekki kosta líf og limi."
Á ekki að þurfa banaslys
„Fólk þarf að gera sér grein fyrir
hættunum sem fylgja trampólínum.
Með þessu áframhaldi mun birtast
frétt um að einhver hafi látist vegna
höfuðhöggs eða lamast í kjölfar háls-
brots“, segir Herdís. Það sem af er
sumri hafa hátt í hundrað börn kom-
ið á bráðamóttöku Landspítalans
vegna slysa tengdum trampólínum.
Þá eru ótalin þau börn sem ekki
koma á bráðamóttökuna heldur fara
beint á heilsugæslustöðvar eða til
tannlækna.
Herdís bendir á að flest slysin
mætti koma í veg fyrir með því að
fara eftir leiðbeiningum sem fylgja
með trampólfnunum og með því að
fylgjast með börnunum sem leika
sér á þeim. Þá bendir hún fólki á að
fylgjast með ástandi leiktækjanna
og endurnýja það sem þarf. ■
Spútnikbátar
kærðir vegna fimm
pólskra starfsmanna
Kjartan Jakob Hauksson er kominn
vel á veg í því að verða fyrsti íslend-
ingurinn til þess að fara hringinn í
kringum landið á handaflinu einu
saman. Hann kom á árabát sínum til
Hafnar í Hornafirði í gær og var vel
tekið af vinum og vandamönnum.
Hingað til hefur Kjartan róið í allt að
Verkalýðsfélag Akraness lagði í gær
inn kæru gegn slippfyrirtækinu
Spútnikbátum vegna fimm pólskra
starfsmanna fyrirtækisins. Fullyrð-
ir verkalýðsfélagið að starfsmenn-
irnir fái aðeins greiddar rúmar 300
krónur í jafnaðarkaup á tímann.
Mennirnir hafa ennfremur ekki at-
vinnuleyfi hér á landi. Fyrirtækið
ber því hinsvegar við að mennirnir
séu ráðnir hingað til lands á svo-
kölluðum þjónustusamningi milli
fyrirtækisins og starfsmannaleigu
í Póllandi. Vilhjálmur Birgisson,
formaður verkalýðsfélags Akraness,
segir að félagið muni ekki sætta sig
við þetta og muni leita réttar síns.
Vegna þessa hafi það kært fyrirtæk-
ið í gær.
„Þetta er stórt vandamál sem snýr
að öllu samfélaginu. Leigan fyrir
starfsmennina er öll greidd beint
út til Póllands og það situr ekki
ein króna eftir hér á landi. Hvern-
ig í himninum eigum við að halda
uppi þeirri samfélagsþjónustu sem
við höfum gert fram að þessu ef
Tveir af pólsku starfsmönnunum aö störfum hjá slippfyrirtækinu Spútnikbátum
fyrirtæki fara að gera þetta í auknu semd við starfsmenn fyrirtækisins
mæli”, spyr Vilhjálmur. Geymis ehf. sem snerti 12 pólska
Málið svipar nokkuð til annars starfsmenn fyrirtækisins. ■
máls sem kom upp nýlega þegar Al-
þýðusamband Islands gerði athuga-
30 klukkustundir í einu. Hann segir
að það sé vissulega líkamlega erfitt
en að fólk geri sér ekki alltaf grein
fyrir því að einveran taki líka mik-
ið á. Framundan er erfiðasti kafli
ferðarinnar en Kjartan ætlar að róa
af öllu afli eins langt og veður leyfir
vinkœlar
kr
Verö
25.000
meðfram suðurströnd landsins. Tak-
markið er að komast til Reykjavikur
í lok mánaðarins en það fer að öllu
leyti eftir veðurguðunum.
Ferðast til að auðvelda
ferðalög annarra
Kjartan er hjálparliði hjá Sjálfsbjörg
og ákvað því að samtvinna sigling-
una fjársöfnun fyrir fötluð börn.
„Þetta er eini sjóðurinn sinnar teg-
undar á landinu og sá eini sem fatlað-
ir geta sótt í til þess að komast í ferða-
lög eins og aðrir landsmenn", segir
Kjartan og biður fólk um að hringja
í söfnunarsímann 908-2003. ■
Kaupmáttur
eykst
Launavísitalan hækkaði um
0,4% milli maí og júní síðastlið-
ins samkvæmt tilkynningu sem
Hagstofa íslands sendi frá sér
í gær. 1 morgunkorni íslands-
banka i gær segir að tæplega
helmingur hækkunarinnar nú
skýrist af kjarasamningsbundn-
um launahækkunum hjá hinu
opinbera. Þar segir ennfremur
að laun hafi hækkað mest á
almennum markaði síðustu
misserin en umsvif hafa verið
mikil í efnahagslífinu. 1 ljósi lít-
ils og minnkandi atvinnuleysis
er líldegt að laun hækki frekar
og launakostnaður fyrirtækja
aukist þar með á næstunni.
Þetta kann að leiða til meiri
verðbólguþrýstings í hagkerfinu.
Laun í landinu hafa hækkað
um 6,3% síðustu tólf mánuði
samkvæmt Hagstofunni en
á sama tíma hefúr verðlag
almennt hækkað um 2,8%.
Þetta þýðir að síðustu tólf
mánuði hefur kaupmáttur
launa vaxið um 3,4%.
Unniö er aö því aö endurbæta
fiskimjölsverksmiðju Granda á
Vopnafirði
Miklu landað
á Vopnafirði
Yfir 80.000 tonnum af upp-
sjávarfiski hefur verið landað
á Vopnafirði það sem af er
þessu ári. Þetta kemur fram á
heimasíðu Granda sem og að
vinnsla í fiskimjölsverksmiðju
fyrirtækisins hafi verið nánast
samfelld frá 10. janúar til 13.
júlí, þó með tveimur stuttum
stoppum.Á þessum tíma hefur
verið landað 27.589 tonnum af
kolmunna, 39.594 tonnum af
loðnu og 7.364 tonnum af norsk-
íslenskri síld. Auk þessa voru
unnin og fryst á loðnuvertíð-
inni i vetur 1000 tonn af hrogn-
um og 5.100 tonn af loðnu.
Fyrir síðustu helgi voru
eimingartæki úr fiskimjölsverk-
smiðju HB Granda í Þorláks-
höfn flutt austur og verða tækin
sett upp í verksmiðjunni á
Vopnafirði. Með þessu skapast
betri aðstaða til þess að jafna
afköst f vinnslunni einkum
þegar efnið er erfitt vegna átu.
Auglýsingadeild 510-3744
blaöiöL=