blaðið - 22.07.2005, Page 12

blaðið - 22.07.2005, Page 12
12 I ERLENDAR FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2005 blaAÍ6 öeGO ódýrt bensín + ávinningur! Lækkað gengi júans Kínversk stjórnvöld hafa afráðið að hætta að tengja gjaldmiðil sinn við gegni Bandaríkjadals eins og gert hefur verið síðastliðin tíu ár. Frá því að Kína gekk í Alþjóða gjaldeyr- issjóðinn hefur þrýstingur aukist á að rofin verði tenging miðlanna en gengishagnaður Kínverja er langt umfram það sem önnur þróunar- ríki búa við. Talið er að staðsetning næsta þings Alþjóða gjaldeyrissjóðs- ins, en það verður haldið í lok árs í Kína, hafi ýtt undir þessa ráðstöfun. Kínverskar útflutningsvörur munu hækka í verði í kjölfar gengislækk- unarinnar en útflutningur Kínverja hefur verið helsta ástæða gríðalegs efnahagsbata landsins. Afleiðing þessa gæti þó verið slæm fyrir Vest- urlandabúa sem hafa undanfarið búið við litla verðbólgu, að hluta til vegna lágs vöruverðs á innfluttum kínverskum varningi. Mikið af útflutningshagnaði Kín- verja liggur í bandarískum ríkis- skuldabréfum en verðmæti þeirra fyrir Kína minnkar við þessa geng- islækkun júans. Það getur orðið til þcss að Kínverjar leiti í auknu mæli eftir aukinni breidd í gjaldeyrismiðl- um sem aftur gæti leitt til gengis- hruns dollarsins. Játaði að hafa kastað handsprengju að Bush Georgískur maður, Vladimir Arutyunian, hefur játað að hafa kastað handsprengju að George W. Bush, Bandaríkjafor- seta, þegar hann talaði á fjöldafundi í Tíblísí, höfuðborg Georgíu, í maí síðastliðnum. Arutyunian greindi frá þessu þegar lögregla yfirheyrði hann á miðvikudag þar sem hann lá særður á sjúkrahúsi eftir skotbar- daga sem hann lenti í við lögreglu- menn. Átti skotbardaginn sér stað i þorpi utan við höfuðborgina en einn lögreglumaður lést í bardagan- um. Georgísk yfirvöld birtu á mánu- dag mynd af hinum grunaða og hétu rúmum 5 milljónum íslenskra króna fyrir upplýsingar sem gætu leitt til handtöku hans. í gær birtust svo í sjónvarps- f r é t t u m myndir sem sýndu Aruty- unian blóðug- an og marinn á sjúkrabör- um í haldi lög- reglunnar. Yfir völd vildu ekki greina frá því Vladimir Arutyunian hvort Aruty- unian tengd- ist samtökum aðskilnaðarsinna en búist er við yfirlýsingu innanríkis- ráðuneytisins vegna málsins hið fyrsta. Bandaríska sendiráðið í Ge- orgíu gaf frá sér yfirlýsingu í gær þar sem það fagnaði góðu samstarfi innanríkislögreglu Georgiu og alrík- islögreglu Bandaríkjanna, FBI, við að leysa málið. Talsmaður sendiráðs- ins neitaði þó að greina frá því hvort FBI hafi tekið þátt í handtökunni eða hvort hún muni fylgja málinu eftir nú þegar Arutyunian hefur ver- ið handtekinn. Bush var í lífshættu George Bush og forseti Georgíu, Mik- hail Saakashvili, stóðu á ræðupalli Metfjöldi ofbeldisglæpa á Bretlandi Ofbeldisglæpir á Englandi og Wales náðu metfjölda árin 2004-2005 þegar lögregla skráði yfir eina milljón slíkra glæpa Það er 7% hækkun frá árinu á und- an. Lögreglan skráði 1.035.046 glæpi og eru þá ekki taldir með kynferðis- glæpir eða rán. Þrátt fyrir það voru í heild skráðir 6% færri glæpir en frá árinu á undan en hins vegar voru byssuglæpir 6% fleiri. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu lögreglunnar á Bretlandi. Yfirmaður innan lögreglunnar, Hazem Blears, sagði niðurstöðurnar vera áfanga út af fyrir sig. Lýsti hún yfir ánægju með fækkun allra glæpa og sagði ennfremur að ástæðan fyrir fjölgun skráðra ofbeldisglæpa væri líklega sú að fólk tilkynni þá í auknu mæli og lögreglan sé duglegri að bregðast við þeim en áður. Skugga- innanríkisráðherra Bretlands, Dav- id Davis, sagði hins vegar tölurnar vera „enn frekari sönnun fyrir því að ríkisstjórninni heldur áfram að mistakast að bregðast við ofbeldis- glæpum.“ Davis sagði þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að Ieyfa lengri drykkjutíma á kráum Bretlands vera vitlausa og ranga. Ríkisstjórn- in vildi með þessu reyna að draga úr áfengistengdum ofbeldisglæpum en Davis segir ákvörðunina hafa haft þveröfug áhrif. Hazem Blears neit- aði því að setning drykkjulaganna laðaði að sér fólk hvaðanæva úr heiminum sem kæmi í drykkjuferð- ir til Bretlands Hún sagði þó að ríkis- stjórnin hefði nú þegar tekið ákvörð- un um að endurskoða þau. 1 skýrslunni kom einnig fram að innbrotum hefur fækkað um 20% og bílþjófnuðum um 17%. Kynferðis- glæpir voru 17% fleiri eða 61.000 og segir lögreglan það m.a. vera vegna endurbóta á lögum um kynferðis- glæpi og viðleitni lögreglu og stjórn- valda í að fá fórnarlömb slíkra glæpa til að kæra. 73 voru skotnir til bana með byssu á 12 mánaða tímabili og eru það fimm fleiri en árið á undan. Dalvegi 32, Kópavogi. Sími 564-248D Tilboð á plöntum í sumarbústaðinn Loðvíðir 250 kr Myrtuvíðir 490 kr. Ilmreynir 950 kt: Ódýr og falleg sumarblóm l^07o aflslóttur af körf um Selja 550 kr. Sitkagreni 750 kr Hrúteyjavíðir 550 kr. Lerki 490 kr Birki 550 kr BÍagreni 490 kr Betri plöntur á góðu verði -Tilboð alla daga r lARNMÓOElíMlKtUÖKVAU tL4SOM<NSBNO.NG Tómstundahúsið Nethyl 2, sími 5870600, www.tomstundahusid.is á Frelsistorginu í miðbæ Tíblísí og ávörpuðu þúsundir manna þegar handsprengju var kastað að þeim. Lenti sprengjan innan við 30 metra frá ræðupallinum en sprakk ekki. Yfirvöld hafa staðfest að Bush hafi verið í lífshættu og aðeins tilviljun hafi ráðið því að sprengjan sprakk ekki. Bush stóð þó fyrir aftan skot- helt gler þegar hann ávarpaði fund- inn. Hitabylgja í Phoenix Hitabylgja í Phoenix í Arizona- fylki hefur valdið dauða 18 manna, sem flestir hverjir voru heimilislausir, og hafa yfirvöld átt erfitt með að útvega slíku fólki vatn og skjól. í fyrsta skipti um árabil hafa athvörf fyrir heimilislausa verið opnuð yfir daginn til að veita heimilis- lausum skjól fyrir brennheitri sólinni en hitinn á svæðinu hefur verið vel yfir meðallagi á hverjum einasta degi í bráðum mánuð. Hefur hann farið hátt í 43 gráður og yfir svalasta tíma dagsins fer hann ekki undir 31 gráðu. Lögreglan hefur hafið aðgerðir við að dreifa þúsundum vatnsflaskna sem matvöruverslanir hafa gefið og borgaryfirvöld hafa sett upp stærðar tjald í miðbænum þar sem fólk getur skýlt sér. Alsírskum diplómötum rænt í írak Tveimur alsírskum diplómötum og bflstjóra þeirra var rænt af vopnuðum mönnum í Bagdad í gær. Talið er að tilgangurinn með mannráninu sé að hræða stjórnvöld í ríkjum múslima sem stutt hafa ríkisstjórn íraks en hún komst til valda í apríl síðastliðnum að undirlagi Bandaríkjamanna. Uppreisnar- menn hafa í auknu mæli beint aðgerðum sínum gegn erindrek- um þessara ríkja. Sendiherra Egyptalands var myrtur í Irak fyrr í mánuðinum, helsti sendi- fulltrúi Bahrain var særður lítillega og sendiherra Pakistan slapp ómeiddur ff á banatilræði gegn honum á dögunum. 5.3 Megapixlar Videoupptaka (320x240) 1.5” LCDskjár ISO stillingar: 50,100, 200 Auto 3 x Optical Zoom - 3 x Digital Zoom 64mb minniskort fylgir Lithium rafhlaða Staerð: 94 x 63 x 35mm Þyngd: 210gr. Taska fylgir ArcSoft Photo Suite fylgir Acer CS-5530 5.2 Megapixlar Videoupptaka (640x480) 2.5" LCD skjár ISO stillingar: 50,100, 200 Auto 3 x Optical Zoom - 4 x Digital Zoom 64mb minniskort fylgir Uthium rafhlaða Stærð: 89 x 55 x 24mm Þyngd: 180gr. Taska fylgir ArcSoft Photo Suite fylgir Kr. 23.900 Acer CR-6530 6.3 Megapixlar Videoupptaka (320x240) 2.5" LCD skjár ISO stilllngar: 50, 100, 200 Auto 3 x Optical Zoom - 4.4 x Digital Zoom 64mb minniskort fylgir Lithium rafhlaða Stærð: 93 x 63 x 35mm__________________ Þyngd: 210gr. Taska fylgir ArcSoft Photo Suite fylgir Kr. 27.900 Acer CR-8530 8.3 Megapixlar Tekur Ijósmyndir og videomyndir(320x240) 2.5" LCD skjár, 201.096 pixlar ISO stillingar: 50,100,200 Auto Myndáferðir: Svart/Hvítt, Brúntóna, Sterkir litir Innbyggt flash, tima-taka, nærmynda stilling 3x Optical Zoom, 5x Digital Zoom Linsa 7.2 - 21.6mm, Ijósop f/ 2.8 - 4.8 64mb minniskort fylgir Stærð: 94 x 57 x 27mm Þyngd: 150gr. Kr. 37.900 svan) tæknl SIÐUMULA 37 - SIMI 510 6000 - WWW.SVAR.IS y

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.