blaðið - 22.07.2005, Blaðsíða 15
blaðið FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2005
ÁLIT 115
Fréttastofa
íslands
Katrín
Jakobsdóttir
í gær var tilkynnt
um nýja fréttastöð
365 miðla sem á að
fara í loftið með
haustinu. Stöðin
á að nýta samlegð-
aráhrif af öllum
þeim fréttastofum
sem þegar eru starf-
andi hjá fyrirtæk-
inu, þ.e. Fréttablaðinu, DV, Stöð 2
og Bylgjunni. Eigi að síður fullyrti
framkvæmdastjóri þessarar nýju
stöðvar, Róbert Marshall, að hver
fréttastofa myndi halda ritstjórnar-
legu sjálfstæði sínu.
Eftir fjölmiðlafrumvarpsfárið
í fyrra er ekki laust við að maður
staldri við þegar þessar fréttir ber-
ast. Er í raun hægt að tala um rit-
stjórnarlegt sjálfstæði þessara frétta-
stofa sem starfa hlið við hlið í sama
húsi og eiga líka að vinna saman á
nýrri stöð? Að minnsta kosti er varla
hægt að tala um samkeppni þessara
fréttastofa nema sem innanhússam-
keppni einstakra starfsmanna eða
deilda sem vilja standa sig vel. Þær
vinna allar fyrir sömu eigendur og
sama fyrirtæki.
Gildir þá einu þó að starfsmenn
staðan núna nokkuð augljóslega að
aldrei hefur verið jafn mikilvægt að
styrkja stöðu Ríkisútvarpsins sem
öflugs fjölmiðils í almannaeigu. Ef
ákveðið yrði að selja RÚV kæmi
nefnilega ekki á óvart ef fjölmiðill-
inn endaði í eigu 365 — eins og aðrir
fjölmiðlar hér á landi. Þá kæmi eina
virka samkeppnin á fréttamarkaði
að utan — og hún myndi að sjálf-
sögðu ekki skipta máli fyrir frétta-
flutning af innlendum atburðum.
Þar yrði Fréttastofa íslands einráð.
Katrín Jakobsdóttir
www.murinn.is
99...................
Efákveðið yrði að selja
RÚV kæmi nefnilega
ekki á óvart effjölmið-
illinn endaði í eigu 365
þessara fjölmiðla kvarti undan skíta-
skotum frá Hér og nú sem virðist
eiga að virka eins og einhver fjarvist-
arsönnun fyrir 365 og eiga að sýna
að þrátt fyrir allt séu allir þessir
miðlar sjálfstæðir og taki jafn fast á
eigin starfsfólki og öðrum.
Það er full ástæða til að hafa
áhyggjur af þróun á íslenskum fjöl-
miðlamarkaði. Ef fréttastofur 365
miðla renna í „praxís“ saman í eina
fréttastofu er samkeppnin orðin
lítil því aðrar fréttastofur eru þá
fréttastofur Ríkisútvarpsins, Morg-
unblaðsins og Blaðsins. Fréttastofa
365 myndi líklega verða öflugasta
fréttastofan á þessum markaði en
bæði Morgunblaðið og Blaðið mæl-
ast vel undir Fréttablaðinu í dagleg-
um lestri á dagblöðum.
Stöðugur styr stendur um Ríkis-
útvarpið þar sem ákveðin öfl í sam-
félaginu hafa geisað mjög um einka-
væðingu þeirrar stofnunar. Þó sýnir
510-3744
Ný fréttastöð
Gestur
Guðjónsson
Nú hafa 365 miðl-
ar gefið út að þeir
ætli að hefja rekst-
ur nýrrar frétta-
sjónvarpsstöðvar.
Það hljómar afar
spennandi og verð-
ur að teljast djarft
að reyna rekstur á
slíkri stöð og áhuga-
vert að sjá hvort hún standi undir
sér. Það er samt margt í tengslum
við þetta mál sem vekur upp spurn-
ingar.
Stöðvarstjóri stöðvarinnar verður
sá hinn sami og „sagði af sér“, eins
og hann komst sjálfur að orði, þegar
hann var staðinn að því að bera hel-
berar lygar upp á forsætisráðherra í
herför sinni og hóps fréttamanna hjá
fyrirtækinu gegn honum, án þess að
gera neina tilraun til að fá fréttina
staðfesta. Ætli hann hafi skipt um
skoðun eða lært eitthvað af því at-
viki? Ætli það sé tilviljun að hann
sé ráðinn til þessa starfa og er það
kannski vísbending um þá ritstjórn-
arstefnu sem eigendur fyrirtækisins
vilja við hafa á þessum miðli?
Reyndar er mér það til efs að hann
hafi sagt eins mikið af sér og hann
vildi vera að láta, ætli hann hafi
nokkurn tíma farið af launaskrá fyr-
irtækisins, þrátt fyrir að hafa sett sig
nánast í guðatölu vegna fórnar sinn-
ar fyrir málstaðinn?
Eins er allrar athygli vert að setja
þessa stöð í loftið þegar vitað er að
forstjóri Baugs, sem er stærsti ein-
staki hluthafinn í OgVodafone sem
aftur á 365 miðla, verður mikið í um-
ræðunni vegna dómsmála. Ætli það
sé tilviljun að fara eigi í útsendingar
á „sjón-útvarpsefni“ þar sem efnið
verður óhjákvæmilega mun minna
unnið en við eigum að venjast og
fleiri hlutir látnir flakka órannsak-
aðir en áður og líklegt sé að frétta-
stofur Stöðvar 2, Fréttablaðsins, DV
og Hér og nú muni koma að með
efni eins og Fréttablaðið hefur verið
að gera á Talstöðinni? Ætli það sé af
óánægju með þá framtíðarsýn sem
að sjónvarpsstjórinn sagði upp störf-
um?
Það verður í það minnsta áhuga-
vert að sjá hversu lengi rekstri þessar-
ar stöð verður haldið áfram eftir að
dómsmálunum lýkur og ekki síður
áhugavert hvort almennir hluthafar
í OgVodafone muni hafa gleði og arð
af þessari ráðstöfun fjármuna sinna.
Gestur Guðjónsson
www.framsokn.is
Hörpusilki
Akrýlbundin, alhliða
málning, úti og inni.
Áratuga góð reynsla.
Fjölakrýl 50
Vatnsþynnt akrýlmálning.
Hefur einstaka viðloðun,
sveigju- og veðrunarþoi.
Hentar sérstaklega á þök.
Gæðamálning I Fagleg ráðgjöf I Frábær hula
510-3799
Skiptiborð
510-3700
blaðiö=:
lÍtoy.u.,-,
Tilboð
Afsláttur á útimálningu og viðarvörn
í verslunum Hörpu Sjafnar
10 itr. 4.990 kr.
HorpaSjöfn
Stórhöfða 44 Bæjarlind 6 Austurslða 2
Skelfan4 Dalshraun 13 Austurvegur 69
Snorrabraut 56 Hafnargata 90 Hllöarvegur 2-4
www.harpasjofn.lswww.flugger.com