blaðið

Ulloq

blaðið - 22.07.2005, Qupperneq 18

blaðið - 22.07.2005, Qupperneq 18
Veiðivefurinn svfr.is Frábært úrval veiðileyfa í lax og silung - og þú gengur frá kaupunum beint á netinu. Fréttir, greinar og margtfleira Síðumúla 11 • 108 Reykjavík • Sfmi: 588 6500 • www.utivistogveidi.is Leirvogsá. Bítur á í Sértilboð Útivist og veiði býður í þessu sambandi Gray-IÍID6 stöng fyrir iínu 6 á sérstöku tilboði með 30% afslætti ef keypt er Loop-hjól og Loop-Opti skotlína með. OPIÐ f SUMAR: ‘S faugardaga 10-17, sunnudaga 11-16, virka daga 9-19 Neyðarsími allan sólarhringinn 844 7000 Það er víða fallegt við Selá og þar hafa veiðst 10 laxar í sumar. Útsölustaðir Loop vörunnar fyrir utan Útivist og veiði er Sjóbúðin á Akureyri og Veiðiflugan á Reyðarfirði hverju kasti Veiðiskapurinn hefur gengið ótrú- lega vel í Leirvogsá og áin er að kom- ast í 400 laxa, enda bítur á í hverju kasti stundum. Veiðimaður einn var við veiðar í ánni fyrir skömmu og var eitthvað að gantast við veiðifélaga sinn og sagði að þó hann myndi henda aftur fyrir sig myndi laxinn taka og um leið og maðkurinn kæmi ofan í ána. Veiðifélaginn sagi að þetta væri alls ekki hægt en félaginn reyndi þetta og um leið og maðkurinn snerti ána tók laxinn. Aftur vildi hann fíflast í veiðifélagnum og sagðist ætla að fara fyrir næsta hól og henda ofan í ána þaðan, þar myndi laxinn taka. Hann gerði þetta og viti menn, um leið og maðkurinn kom í hylinn tók fimm punda lax maðkinn. ■ eGO Odýrtbensín wlnmngur! VÉIÐI FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2005 blaóiö Hrútafjarðará: 32 laxar i siðasta hotti Gangurinn er ágætur í laxveiði þessa dagana en aðeins hefur þó hægt á veiðinni, einna helst vegna veður- blíðunnar, en göngur eru kröftugar í margar laxveiðiár og leiðsögumenn við Langá á Mýrum sáu tröllvaxna göngu renna sér upp ána fyrir fáum dögum. „Hollið sem var að hætta veiðum í Hrútafjarðará endaði í 32 löxum og áin hefur gefið núna á milli 60 og 70 laxa,“ sagði Þröstur Elliðason þegar við spurðum um stöðuna í veiðinni hjá honum. „Það veiddust 10 laxar í Breiðdalsá í dag en áin hefur gefið um 70 laxa. ' ■- Vegna mikillar eftirspurnar og sölu á Gray-line stöngunum hefur Loop ákveðið í samvinnu við Útivist og veiði að lækka verð á stöngunum um 20% 'Æ15 ú' Selá í Álftafirði hefur gefið 10 laxa og Laxá á Nesjum svipað nema að þar vantar rigingar, árnar eru vatns- litlar. Á Nessvæðinu í Laxá hefur veiðin verið allt í lagi og Laxá í Aðal- dal er öll að koma til,“ sagði Þröstur ennfremur. Síðustu daga hefur verið ágætis veiði á öllum svæðum Fnjóskár í Fnjóskadal en rúmlega 60 laxar hafa veiðst og svipað af sjóbleikju. Veiðimaður sem hafði samband við Blaðið sagðist hafa lent í ágætri laxveiði og fengið síðan fínar bleikj- ur i bland við laxinn í Fnjóksá. Silungasvæði Fnjóskár ætti að fara að detta inn þessa dagana en bleikjan er byrjuð að veiðast í Eyja- fjarðaránni og hún er væn. ■ Erlendur veiðimaður með fallegan lax úr Selá í Álftafirði. ■

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.