blaðið - 22.07.2005, Page 22

blaðið - 22.07.2005, Page 22
22 I VIÐTAL FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2005 Maðiö oeGo ödýrt bensfn -* ávinningur Jóhanna Kristjónsdóttir um Arabaheiminn, vestrœn þjóðfélög ogfrelsið Komin upp úr hóffvœrðargryfju ,Ég hef ekki unnið afrek en ég hef náð tökum á þessari tegund af lífi og mér finnst það gott." Aþessu ári eru 25 ár síðan Jó- hanna Kristjónsdóttir fór í fyrsta sinn til Arabalanda. Frá þeim tíma hefur hún verið óþreytandi við að kynna Islendinga fyrir Arabaheiminum, farið með ferðahópa á þetta heimssvæði, hald- ið námskeið og skrifað bækur um Arabaheiminn. „Ég fór nokkrar ferðir til ísrael á áttunda áratugn- um,“ segir hún. „Á þeim tíma var ríkjandi viðhorf að ísraelar ættu um sárt að binda og Arabar væru skúrk- ar. Þegar ég hafði kynnst nútímarík- inu Israel komst ég að því að þótt ég hefði skrifað erlendar fréttir í tíu ár á Morgunblaðið, þar á meðal lærð- ar greinar um Miðausturlönd, þá vissi ég lítið um þennan heimshluta. Óstjórnlegt hatur ísraela á Aröbum vakti líka vangaveltur hjá mér. Ég ákvað að reyna að kynna mér málið og fór til Jórdaníu og Egyptalands." Eru Arabalöndin mjög ólík? „Vesturlandabúum hættir til að líta á Arabaheiminn sem eina heild og gera engan stigsmun á löndum en Arabaheimurinn er afar fjölbreyti- legur rétt eins og hinn vestræni. Það er mikilvægt að horfa á hverja þjóð fyrir sig. Auðvitað er margt sameig- inlegt í þessum löndum, til dæmis trúin og tungumálið, en siðir og afstaða manna er mismunandi frá landi til lands. Það lýsir ákveðinni vanþekkingu að setja Arabaheim- inn undir sama hattinn.“ Alhæfing er hættuleg Það er sennilega útbreitt viðhorf á Vesturlöndum að mannréttindum 99.......................... Það á ekki að fletja fólk út og gera það allt eins, eins og okkur er farið að hætta til. Einstak- lingseðlið fær ekki að njóta sín lengur, nema fólk brjótist um til þess. Það er ekki góð þróun." sé ábótavant íþessum löndum og að staða kvenna sé þar sérstaklega slœm. Hver er raunveruleg staða kvenna í Arabaheiminum? „Mér finnst karlmenn á Vestur- löndum hafa meiri áhyggjur af kúg- un kvenna í Arabaheiminum en kon- ur. Þegar maður spyr menn hvað þeir eiga við þá svara þeir venjulega: „Þær verða að ganga í þessum hræði- legu fötum.“ Þá kemur í ljós að þeir vita ekki hvort þessar konur eru kúg- aðar eða ekki. Þeim finnst bara fötin ljót og það fer svo mikið í taugarnar á þeim að úr verður rugl. Þær ganga jafnvel í kuflum og eru með blæjur fyrir andlitinu og skýring manna er sú að það sé vegna þess að karlmenn kúgi þær. Þetta er ekki svona einfalt og meðal annars þess vegna skrif- aði ég bókina Arabíukonur. I einu Arabalandi eru konur skyldaðar til að bera slæður og það er í Sádi Arabíu. Annars staðar er þetta val kvenna. Þær sem klæða sig svona kjósa að klæða sig á þennan hátt og það tengist ekki kúgun á nokkurn máta.“ Eru konur í Arabaheiminum þá ekki kúgaðar? „Eru vestrænar konur ekki kúgað- ar. Er ekki launamunur í vestrænum þjóðfélögum? Eru þar ekki kvenna- athvörf sem fyllast af lúbörðum kon- um. Konur láta kúga sig hér og þar og alls staðar. Þær eru ekki kúgaðri í Arabaheiminum en annars staðar sé litið á heildina. Alhæfing er hættu- leg og ber ekki vitni um mikla þekk- ingu.“ Eg get ímyndað mér að einhverjir muni reiðastþessum orðum þínum. „Mér er nokk sama. Ég þekki þessi lönd, hef lifað þar og hrærst meira og minna síðustu tíu árin og verið þar með annan fótinn í 25 ár. Ég veit hvað ég er að segja. Það þýðir ekki fyrir fólk að segja mér það sem ég skil betur og veit ívið meira um en það gerir. I mínum huga er endalaus hógværð hluti af kúgun kvenna og ég er komin upp úr þeirri hógværð- argryfju Ég tala svona vegna þess að ég þekki stöðu kvenna í Araba- heiminum betur en flestir aðrir hér álandi. Það er gnægð af hlutum sem ég veit ekkert um en þarna veit ég um hvað ég er að tala.“ Hroki og yfirlæti Höldum áfram að tala um hugmynd- ir um kúgun. Það eru margir sem sjá íslam sem kúgunartrúarbrögð. „Hin upprunalega íslam Kóransins er fallegur friðar- og kærleiksboð- skapur en bókstafstrúarmenn hafa alltaf afbakað trúarbrögðin. Á einn eða annan hátt er trúin notuð sem kúgunartæki um allan heim og það á líka við um kristna trú. Það er lít- ill vandi að taka hugmyndir og gera þær að kúgunartæki. Vesturlandabú- ar hafa tröllatrú á lýðræðishugmynd- um sínum og ætla að þvinga þeim upp á arabíska veröld þar sem er allt annar menningarheimur, annað gildismat og allt annað viðhorf. Ar- abískt lýðræði lýtur ekki sömu lög- málum og vestrænt lýðræði - sem betur fer.“ Afhverju segirðu sem beturfer? „Ég sé ekki að vestrænt lýðræði tryggi okkur fyrirmyndarþjóðfélög. I mörgum þeirra Árabalanda sem við köllum vanþróuð og segjum að búi við einræði eru frjálsar kosning- ar. Það hefur dregið úr ritskoðun og víða er hún ekki lengur fyrir hendi. Arabalöndin eru á einn eða annan hátt að feta sig í átt til arabísks lýð- ræðis. Arabar kæra sig ekki um vest- rænt lýðræði og hafna vestrænum hugsunarhætti og þeir þurfa ekki að vera bókstafstrúarmenn til þess. Mér leiðist oft hrokinn og yfirlæt- ið sem einkennir vestræn þjóðfélög og allt er þar grasserandi í efnis- hyggju og fégræðgi. Það er mikið gott að fólk eigi vel til hnífs og skeið- ar og það má vera forríkt mín vegna en þegar lífið snýst einungis um að safna gullpeningum undir koddann þá er fólk orðið fátækt í sálinni. Ver- öldin er ekki bara hvít og svört, við höfum líka alla hina litina og eigum að nota meira af þeim, líka í hugsun. Það á ekki að fletja fólk út og gera það allt eins, eins og okkur er farið að hætta til. Einstaklingseðlið fær ekki að njóta sín lengur nema fólk brjótist um til þess. Það er ekki góð þróun.“ Hrakandi blaðamennska Talið berst að blaðamennsku en þar býr Jóhanna yfir mikilli reynslu. „Fréttamennskan er ansi yfirborðs- leg og tíðindum sætir ef blaðamaður skrifar greinaflokk einu sinni á ári. Fjölmiðlar gefa starfsmönnum sín- um ekki næg tækifæri og mér finnst þeir ekki hlúa nógu vel að þeim og

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.