blaðið - 22.07.2005, Qupperneq 24
24 I TÍSKA
FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2005 blaðið
„Sixties lúkkið" sívmsœla
Balenciaga
- Fjölbreytileiki, sjálfstœði ogflottheit
Það er jafnan svo að tíska hvers ára-
tugs lítur dagsins ljós á ný og verður
ekki síður áberandi en það sem er í
tísku hverju sinni. Islendingar eru
vel með á nótunum, þó svo að ekki
séu allir sammála um nöfn tímabil-
anna. Það sem viða er kallað „sixti-
es“, tímabilið 1960-1970, höfum við
kosið að kalla „seventies" - eða sjö-
unda áratuginn.
Hvað sem því líður er hér rætt um
það tímabil þegar ofurfyrirsætan
Twiggy var upp á sitt besta en hún
hefur alla jafna verið kölluð ímynd
„sixties lúkksins". Á þessum árum
var talað um að litir og frelsi hefðu
loksins náð fótfestu í fatnaði og ein-
ræði í tísku heyrði sögunni til - fjöl-
breytileikinn var í hávegum hafður
og sjálfstæði og framsækni í fatnaði
varð áberandi. Þetta var fæðing
tískustrauma sem áttu eftir að ryðja
sér til rúms mörgum árum síðar og
það oftar en einu sinni.
Það fer vart framhjá þeim sem á
annað borð velta fyrir sér straumum
ogbylgjum í fatnaði að „sixties" útlit-
ið hefur verið viðloðandi hér á landi
og þegar arkað er niður Laugaveg-
inn gefur að líta ýmsar skemmtileg-
ar týpur, í fatnaði frá þessum árum.
Engan þarf að undra þar sem við
íslendingar erum vel með á nótun-
um og óháðir annars ákveðnum
stefnum sem gerir það að verkum að
landslag hérlendis er afar fjölbreytt
í tísku.
Allir helstu tískufrömuðir gefa
„sixties lúkkinu" byr undir báða
vængi og nú hafa óvíða sést áhrif frá
þessum áratugi á tískupöllum stór-
borganna. Það er því ekki úr vegi
fyrir almenning að glugga í skápa
foreldra eða ömmu og afa og reyna
að finna þar eitthvað sem hægt er að
nýta á ný. Einnig getur verið sniðugt
að breyta fötunum eftir eigin þörf-
um, bæta og laga, eftir hentugleika
hvers og eins. ■
halldora@vbl.is
Christian Dior
Boudicca
Dolce & Gabbana
MaxMara
Proenza Schouler
Lesley Hornby, eða Twiggy eins og
hún hefur verið kölluð, var í raun
fyrsta súpermódelið í heiminum.
Tískuhönnuðir, sem og alls konar
fyrirtæki, kappkostuðu að fá hana
í auglýsingar sem margar hverjar
fengu mikla athygli vegna þokka
fyrirsætunnar. Hún var stjarna
allra unglingsstúlkna og á tíma
Chanel
Luella
Emanuel Ungaro
þekktasta andlit veraldar. Andlit
hennar prýddi flest tímaritin eins
og t.d. Vogue, Newsweek, Harpers
Bazaar og Tatler. Ekki eingöngu var
Twiggy þekkt fyrirsæta, heldur gaf
hún út tónlist og Iék í myndum en
óhætt er að segja að stjarna hennar
hafi risið hratt þegar hún var kom-
in á sjónarsviðið. Þá átti hún eigin
fatalínu, Twiggy Dresses, sem höfð-
aði einna helst til ungs fólks á árum
áður. Enn þann dag í dag er talað af
lotningu um þessa merku konu og
nafn hennar hefur trónað á toppn-
um yfir þekktustu konur heims svo
árum skiptir. ■
Mini pils
Litaðar sokkabuxur með
munstrum
Lágar buxur
Buxnadragtir
Þröngar buxur úr ull eða
nælon
Stuttir kjólar
Opnar gegnsæjar skyrtur
Fleygnir toppar
Stórir eyrnalokkar
og margt margt fleira sem
lifir enn í dag...
Konuri
bama-
fötum
Konur keyptu mini pils og
stutta kjóla í gríð og erg en
árið 1965 gripu yfirvöld í
Bandaríkjunum til þess
ráðs að setja á reglur sem
bönnuðu konum að kaupa
sér barnaföt. Það höfðu
þær alla jafna gert og
sluppu þar af leiðandi
við 10% skattaálagn-
ingu enda allt eins w
sniðugt fyrir konur
að nota barnaföt þar
sem fötin voru orðin
fyrirferðalítil og meira
sást í hold.