blaðið - 25.08.2005, Qupperneq 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2005 blaöiö
Ljósleiðara-
væðing á Sel-
tjarnarnesi
Vinna við lagningu ljósleiðara inn á
rúmlega 1.000 heimili á Seltjarnar-
nesi er nú hafin. f tilkynningu frá
Orkuveitu Reykjavíkur vegna þessa
segir að verkefnið hafi áður tafist
vegna þess að þau tilboð sem bárust
Orkuveitunni hafi verið hærri en
reiknað hafi verið með. Samningar
hafi nú náðst við verktaka um verk-
ið á Seltjarnarnesi og er hann að
sögn innan kostnaðaráætlunar.
„Vinna við að koma upplýsinga-
veitunni sjálfri í gagnið er einnig í
gangi um þessar mundir en stefnt
er að því að hægt verði að veita
netþjónustu um kerfið í september,
símaþjónustu í október og í byrjun
desember geti sjónvarpsútsending-
ar um ljósleiðarakerfið hafist. ■
Kárahnjúkastífla
580 metrar yf-
ir sjávarmáli
Vinna við Kárahnjúkastiflu gengur
vel um þessar mundir og hefur tek-
ið miklum breytingum á stuttum
tíma. Stíflan rís upp í 580 metra
yfir sjó á stórum kafla. Á heima-
síðu Kárahnjúkavirkjunar segir
að Impregilo hafi komið fyrir sílói
uppi á stíflunni og í það renni fyll-
ingarefni á færibandi beint frá grjót-
mulningsstöð á vesturbakka Hafra-
hvammagljúfurs. Segir ennfremur
að stærstu trukkarnir sem notaðir
eru til að flytja efnið á sinn stað beri
yfir 40 rúmmetra í ferð, en aðeins
taki 45 til 70 sekúndur að fylla á
hvern þeirra úr sílóinu.
Vel gengurvið næst
stærstu stífluna
Vinna við Desjárárstíflu gengur
einnig vel og er nú rúmum þriðj-
ungi vinnu við hana lokið. Hún er
næst stærsta stíflan sem gera þarf
í tengslum við Kárahnjúkavirkjun,
um 60 metra há og 1.100 metra löng.
Gert er ráð fyrir að tæpa þrjár millj-
ónir af fyllingarefni þurfi í stífluna.
Vilja að próf-
kjör verði í
nóvember
Á fundi stjórnar Varðar - fulltrúa-
ráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
í gær var gerð tillaga um að prófkjör
flokksins vegna borgarstjórnarkosn-
inganna fari fram 4. til 5. nóvember.
Ennfremur var samþykkt á fundin-
um að leggja tillögu þar að lútandi
fram á fulltrúaráðsfundi sem boð-
aður hefur verið 5. september næst-
komandi.
í fréttatilkynningu vegna málsins
segir að samkvæmt prófkjörsregl-
um Sjálfstæðisflokksins sé þátttaka
í prófkjörinu heimil eftirfarandi:
a) Öllum fullgildum meðlimum
sjálfstæðisfélaganna í kjördæminu
sem þar eru búsettir og náð hafa 16
ára aldri prófkjörsdagana.
b) Þeim stuðningsmönnum Sjálf-
stæðisflokksins, sem munu eiga
kosningarétt í kjördæminu við
kosningarnar og undirritað hafa
inntökubeiðni í sjálfstæðisfélag í
kjördæminufyrirlokkjörfundar. ■
Táknfræði
vinabanda
Langvinn lungnateppa:
Lífsgæði
skipta máli
Tveir lungnalæknar af Land-
spítala háskólasjúkrahúsi, þeir
Gunnar Guðmundsson og
Þórarinn Gíslason, leiddu sam-
norræna rannsókn sem sýndi
að sjúklingar með lungnateppu
og verri heilsutengd lífsgæði og
öndunargildi en aðrir, væru lík-
legri til að leggjast aftur inn á
sjúkrahús. Þeir sem voru kvíðn-
ir og höfðu verri lffsgæði voru
einnig í marktækt meiri áhættu.
Þá var lítil hreyfing einnig
áhættuþáttur. Rannsóknin
leiddi þannig í ljós nýja áhættu-
þætti fyrir sjúkrahúsinnlögn-
um og vekur sérstaklega athygli
áhrif kvíða og lakari lífsgæða.
Þetta getur reynst mikilvægt
í meðferð sjúklinga með
langvinna lungnateppu.
Játar morð
Sigurður Freyr Kristmunds-
son hefur játað að hafa myrt
mann að Hverfisgötu 58 síðast-
liðinn laugardagsmorgun. Hinn
myrti var tvítugur að aldri og
lést af völdum stungusárs í
hjartastað.Yfirheyrslur hafa
staðið yfir frá laugardegi og var
Sigurður úrskurðaður f gæslu-
varðhald en öðrum sleppt að
lokinni skýrslutöku. Nú hefúr
hann játað verknaðinn á sig.
Illa gengur að manna störf
Vinnuveitendur íhuga að ráða erlent vinnuafl
Atvinnuleysi hefur aldrei verið
minna á Islandi en nú og lítur út
fyrir að ekki verði breyting á því
á næstunni. Ráðningarstofum og
vinnumiðlanir sem Blaðið hafði
samband við eru á einu máli um að
fjöldi starfa sé í boði en að misvel
gangi að ráða í þau. Jens Ólafsson,
framkvæmdastjóri Ábendis, segir
þetta gilda um mörg störf og þá sér-
staklega afgreiðslu og verkamanna-
störf.
Sumarstarfsmenn á skólabekk
Nú streymir skólafólk á skólabekki
og hverfur þar með frá sumarstörf-
um sínum. „Á næstu tíu dögum kem-
ur í ljós hvernig markaðurinn verður
þar sem sumir hætta við skólann og
snúa aftur til starfa", segir Agla Sig-
rfður Björnsdóttir, ráðningarstjóri
Vinna.is. Baldur G. Jónsson, ráðgjafi
hjá Hagvangi, segir þó að áhrif þess
að störfum fjölgi þegar sumarstarfs-
fólk fer aftur í skóla hafi farið minnk-
andi undanfarin ár. „Það eru sífellt
fleiri fyrirtæki sem eru farin að leita
annarra leiða til þess að leysa hjá
sér sumarstörfin. Það er
samt alltaf talsverð
hreyfing á haustin
og jafnvel meiri
núna en oft
áður.‘
Mikið framboð atvinnu veldur
því að atvinnurekendur leita margir
út fyrir landsteinana í leit að starfs-
fólki. Máli skipti að þannig fáist fólk
í störf sem illa gangi að fylla auk
þess sem oft sé hægt að greiða lægri
laun þrátt fyrir tilraunir verkalýðsfé-
laga til þess að sporna við því. ■
Hin upphaflegu armbönd Lance Arm-
strong gegn krabbameini.
Með friði, með fórnarlömbum flóð-
bylgjunnar í Asíu.
■ Með umhverfinu, móti hvítblæði, með
líffæragjöf, móti eiturlyfjum.
Eins og greint var frá í Blaðinu í gær er
nokkuð um það að svonefnd „vinabönd“
eða „tryggðabönd" séu seld í nafni
einhvers málefnis án þess að ágóðinn
rati endilega þangað. Það
hefur hins vegar vafist
fyrir mörgum hvað allir
þessir litir merkja. Hér að
neðan er stuttur leiðarvísir
yfir þá helstu og hvað hver lit-
ur á að tákna sérstaka umhyggju
armbandsberans fyrir, en hitt er
svo annað mál að margir hafa reynt að
eigna sér sama litinn, sumir fleiri en einn
og uppskorið rugling fyrir.
■ Móti alnæmi, með fórnarlömbum B Með Asperger-sjúklingum, með mann
flóðbylgjunnar í Asíu, með Bush Banda- réttindum, móti reykingum.
ríkjaforseta, með Liverpool, móti reyk-
ingum, móti hjartasjúkdómum. I Með sykursjúkum, á móti heilakrabba.
T Gegn kynþáttahyggju.
Gegn fátækt í heiminum, gegn alnæmi,
gegn fátækt í Afríku.
U Gegn brjóstakrabba.
■ Með barnavernd, gegn barnaþrælkun,
gegn einelti.
■ Móti heimilisofbeldi, móti slímseigju-
sjúkdómi, með götubörnum, með dýra-
vernd, gegn heilahimnubólgu.
■ Sorgarviðbrögð, á móti húðkrabba.
Landbúnaðarniðurgreiðslur:
Hvergi hærri styrkir til
bænda en á íslandi
Hvergi í heiminum eru greiddir jafn-
miklir styrkir til landbúnaðar og
á íslandi, en til þess að bæta gráu
ofan á svart er opinber stuðningur
við landbúnað á íslandi með þeim
hætti að hann er sérstalclega til þess
fallinn að skekkja samkeppni á al-
þjóðamarkaði. Þetta kemur fram
í nýrri skýrslu Fjárlagastofnunar
Bandaríkjaþings, en þar er einnig
fundið að því að fslendingar leggi
ofurtolla eða aðrar hindranir á nær
alla helstu landbúnaðarvöru Banda-
ríkjanna.
Þó ísland sé langefst á þessum
lista sigla hin aðildarríki EFTA, Nor-
egur, Sviss og Liechtenstein, í kjöl-
farið. í skýrslunni er þó ekki mikið
gert úr þessum óvenjumiklu niður-
greiðslum, enda landbúnaðarfram-
leiðsla þessara ríkja óveruleg og lítt
samkeppnisfær á alþjóðamarkaði
þrátt fyrir styrlcina.
f krónum og aurum er það Evrópu-
sambandið (ESB), sem samkvæmt
skýrslunni borgar mest í útflutn-
ingsbætur, en tæp 90% allra útflutn-
ingsbóta heimsins koma úr vösum
evrópskra skattgreiðenda.
Skýrsla í aðdraganda
leiðtogafundar
Þessi skýrsla Fjárlagastofnunar
Bandaríkjaþings er unnin í aðdrag-
anda leiðtogafundar Alþjóðavið-
skiptastofnunarinnar (WTO), sem
fram fer í Hong Kong í desember.
Þróunarríkin saka hin auðugri um
að þrýsta niður verði á heimsmark-
aði með niðurgreiðslum, sem aftur
geri bændum í þróunarríkjunum
erfitt fyrir í samkeppni. Sé litið til
skýrslunnar verður ekki annað séð
en að nokkuð sé til í þessum ásökun-
um.
Mismunandi áhrif styrkja
Samkvæmt skýrslunni nemur
stuðningur Evrópusambandsins við
bændur meira en helmingi mark-
aðsbjögunar heimsins í landbúnaði.
Ástæðan er sú að stuðningur við
landbúnað getur verið afar margvís-
legur, en hefur mismikil áhrif á við-
skipti og samkeppni eftir því hvern-
ig honum er háttað. Launauppbætur
bænda hafa þannig lítil áhrif út fyr-
ir landsteinana meðan framleiðslu-
styrkir hafa veruleg áhrif langt út
fyrir heimahagana.
í skýrslunni eru sérstaklega tekn-
ir fyrir tollar á bandaríska landbún-
aðarvöru, en þar kemur á óvart að
fsland leggur ofurtolla (100% eða
meira) á nær allar helstu landbún-
aðarafurðir, sem Bandaríkjamenn
flytja út og gengur miklu lengra í
því en Evrópusambandið. Virðist
þar einu gilda þótt fslendingar fram-
leiði sjálfir nær ekkert af þeim og
því erfitt að átta sig á tilganginum.
f því samhengi má nefna maís, soja-
baunir og hveiti. ■
Árni svarar
Ástrala
Árni M. Matthiesen sjávarút-
vegsráðherra hefur sent bréf
til Ian Campbell umhverfis-
ráðherra Ástralíu þar sem
hann svarar spurningum hans
um hvalveiðar íslendinga. í
fyrsta lagi bendir Árni á að
hrefhuveiðar fslendinga séu
löglegar samkvæmt lögum
Alþjóða hvalveiðinefndarinnar
en þar segi að aðildarríki hafi
óumdeilanlegan rétt til þess að
veiða hval í vísindaskyni. Þá
nefnir hann að ólíklegt þyki að
veiðarnar hafi neikvæð áhrif á
stærð hrefnustofnsins við land-
ið.Árni nefnir að hvalir séu stór
hluti af lífríki sjávar í hafsögu
íslands og því sé óæskilegt að
þeir séu ekki teknir með í rann-
sóknum á vistkerfum sjávar.
Sambærilegar upplýs-
ingarað neðan
Árni sendir Campbell bréfið
vegna fyrirspurnar hans um
vísindaveiðar fslendinga. f
ljósi þess að í Ástralíu sé það
stundað að elta kameldýr og
kengúrur í þyrlum til þess að
veiða dýrin óskar Árni eftir
sambærilegum upplýsingum
frá Ástralíu. Því býst Árni við
því að í ljósi áhuga Campbells á
hvalveiðum veiti hann fúslega
sambærilegar upplýsingar um
kengúruveiðar á fyrirhuguðum
fundi um hvalveiðar.
HÁDEGISVERÐARTILBOÐ 690.
Blandið saman allt að 3 réttum úr hitaborði
Tilboöin gilda ekki meö heimsendingu Sóltún 3 S 562 9060 Bæjarlind 14-16 S 564 6111