blaðið - 26.10.2005, Blaðsíða 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2005 blaóið
Úrskurður Evrópudóm- CPlli|J^lfl|A
stólsins tekur af öll j£ £ lCll A A CE
mœli: m BP
eign Grikkja Iraks samþykkt
íbúar á
Flórída
jafna sig eft-
ir Wilmu
Evrópudómstóllinn úrskurð-
aði í gær að Grikkjum einum
sé heimilt að framleiða ost
undir nafninu „feta“ og lauk
þar með langri deilu milli
Grikkja annars vegar og
Danmerkur og Þýskalands
hins vegar um nafnið.
Úrskurðurinn er sigur íyrir
Grikkland þar sem talið er að
fetaostur hafi verið framleidd-
ur úr blöndu af kinda- og
geitamjólk í um 6.000 ár.
Danir og Þjóðverjar vildu
nota feta-nafnið yfir ost sem
líkist fetaosti og er framleidd-
ur í löndunum tveimur.
f rökstuðningi sínum
benti dómstóllinn á það mat
framkvæmdastjórnar Evrópu-
sambandsins að hinn eiginlegi
fetaostur fengi sitt einstaka
bragð frá tilteknum sauðfjár-
og geitategundum á Grikklandi.
í úrskurðinum sagði ennfremur
að fetaosturinn væri oíf tengd-
ur við Grikkland og gríska
menningu í öðrum ríkjum
ESB og væri markaðssettur
með myndum sem vísuðu í þá
menningu. Grísk stjórnvöld
hafa barist fyrir lögverndun
fetanafnsins í meira en áratug
fyrir Evrópudómstólnum.
Fyrsta stjórnarskrá fraka frá því
að Saddam Hussein var hrakinn
frá völdum hefur verið samþykkt.
Kjörstjórn lýsti þessu yfir í gær um
leið og hún kynnti úrslit í hinni
sögulegu þjóðaratkvæðagreiðslu
sem fram fór fyrr í mánuðinum.
Til að fella stjórnarskrárdrögin
hefði þurft að hafna þeim með að
minnsta kosti tveimur þriðju at-
kvæða í þremur héruðum landsins
af átján.
Endanleg úrslit þjóðaratkvæða-
greiðsfunnar sem fram fór þann 15.
október voru háð niðurstöðum í
héraðinu Nineveh þar sem einkum
súnnímúslimar búa. Nineveh var
á meðal síðustu héraða til að lýsa
yfir úrslitum. Stjórnarskrárdrög-
unum hafði þegar verið hafnað
með tilskildum meirihluta í tveim-
ur öðrum héruðum þar sem súnn-
ímúslimar eru í meirihluta. Þegar
atkvæði höfðu verið talin höfnuðu
aðeins 55% kjósenda í Nineveh-hér-
aði drögunum sem dugði ekki til
að fella stjórnarskrána.
Súnníarabar upp til
hópa mótfallnir
Súnníarabar, sem voru valdastétt í
landinu í tíð Saddam Hussein og
í öllum fyrri ríkisstjórnum lands-
ins, voru upp til hópa mótfallnir
stjórnarskránni þar sem þeir ótt-
uðust að hún myndi skilja hinar
mikiu olíuiindir landsins eftir í
höndum sjíta og kúrda.
Iraskur maður kynnir sér stjórnarskrárdrögin fyrr í mánuðinum.
Með samþykkt stjórnarskrárinn-
ar er fátt því til fyrirstöðu að hægt
sé að halda kosningar til löggjafar-
þings íraks í desember. Með nýju
stjórnarskránni fá héraðsstjórnir
umtalsverð völd í sínar hendur
og festir í sessi sjálfstjórn kúrda í
norðurhluta landsins. Búist er við
að sjítar setji á laggirnar svipað
sjálfstjórnarhérað í mið- og suður-
hluta landsins. _
Fellibylurinn Wilma olli
gríðarlegu tjóni og skildi um
6 milljónir manna eftir án
rafmagns þegar hann hélt
yfir Flórídaskaga á mánudag.
Að minnsta kosti sex dauðs-
föll eru rakin til bylsins í
Flórídaríki einu og þúsundir
íbúa héldu enn til í neyðar-
skýlum í gær þrátt fýrir að
bylurinn væri farinn hjá.
Yfirvöld á þremur fjöl-
mennustu svæðum ríkisins
bjuggu sig undir að dreifa
ís, vatni og öðrum nauð-
þurffum til íbúa sem urðu
illa úti í óveðrinu. Óttast er
að það kunni að taka fáeina
daga og jafnvel vikur fyrir
samfélagið að komast í samt
lag. Út af rafmagnsleysinu
voru flestar verslanir lok-
aðar í gær og langar raðir
mynduðust við þær fáu sem
voru opnar. Sums staðar
var hleypt inn í hollum og
máttu margir bíða lengi til
þess að geta orðið sér úti
um nauðsynjavörur, vatn og
rafala svo nokkuð sé nefnt.
Það tók bylinn um sjö
klukkustundir að fara yfir
Flórídaskaga en þaðan hélt
hann út á Atlantshafið þar
sem styrkur hans jókst á ný.
VOLVO S40 VOLVO V50 VOLVO S60 VOLVO V70 VOLVO S80 VOLVO XC70 AWD VOLVO XC90 AWD
VELDU VOLVO VSO FYRIR NOTAGILOIO
Volvo V50 er stærðfræðileg snilld, sportlegur og fullur af
lífsorku. Hann er sparneytinn og slær keppinautum sínum
við fyrir glæsileika, aksturseiginleika og tæknibúnað. Áratuga
umhyggja Volvo fyrir öryggi fjölskyldunnar og þörfum hennar
kristallast í Volvo V50. Áhersla á markvissa hönnun skutbíla
setur Volvo V50 á stall hjá fjölskyldufólki sem leitar að réttu
samræmi rýmis og hleðslu, þar sem rétt þyngdardreifing
skerðir ekki aksturseiginleika skutbílsins. Veldu sér-
hannaðan herragarðsbíl frá Volvo: Volvo V50. Þú finnur
notagildið sem hann færir þér og þínum i leik og starfi.
Mikill staðalbúnaður einkennir Volvo
Þú færð mikinn staðalbúnað í Volvo V50: WHIPS bak-
hnykksvörn, SIPS hliðarárekstrarvarnarkerfi, stöðugleikastýr-
ingu og spólvörn, ABS hemlakerfi með EBD hemlajöfnun,
4 loftpúða auk hliðarloftpúða, tölvustýrða loftkælingu með
hitastýringu, hágæða hljómflutningstæki með 8 hátölurum,
rafdrifnar rúður, upphituð sæti, 16“ álfelgur og margt fleira.
Þú velur um skemmtilegar vélar í Volvo V50. Hinar geysi-
öflugu 170 og 220 hestafla vélar mörkuðu tímamót í bíl-
greininni fyrir nýstárlega hönnun og tæknibúnað. Nú færðu
Volvo V50 með óvenjusprækri 125 hestafla 1,8 lítra vél og
enn meiri búnaði en áður. Komdu í Brimborg.
Heimsbíll ársins í fyrsta sinn í sögunni
Volvo V50 var tilnefndur sem „Heimsbíl ársins 2005“ og
bætist tilnefningin við flóru viðurkenninga Volvo V50 og
Volvo S40 en Volvo S40 er m.a. bíll ársins á íslandi. Öryggi
er lúxus. Veldu Volvol
Komdu í Brimborg. Spurðu söluráðgjafa Volvo á íslandi um
verð og gæði. Við gerum þér gott tilboð um staðgreiðsluverð
fyrir gamla bílinn.
WORLD
CAK or
THEYEAR
AWARDS
Volvo V50 bensín.
Veró frá 2.545.000 kr.*
Volvo V50 dísil.
Veró frá 2.845.000 kr*
• Brimbofg og Volvo áskilja sér rétt til afl bfeyta verði og búnaði án fyrirvara og að auki er kaupverö háð gengi, Nánari upplýsingar veita söluráðgjafar Brimborgar.