blaðið - 01.11.2005, Blaðsíða 2
2 I INNLEWDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 2005 blaöiö
Ófœrð á Vestur-
landi
Vegfarend-
ur komust
heim í gær
Vegurinn milli Laugarbakka
og Blönduóss var opnaður
seinnipartinn í gær. í kjölfar-
ið héldu flestir þeirra sem
orðið höfðu veðurtepptir
eftir aftakaveður á sunnu-
dagskvöldið til síns heima.
Veðrið skall á mjög skyndi-
lega á þessu svæði á sunnudags-
kvöldið. Björgunarsveitarmenn
voru kaUaðir út, meðal annars
vegna ferðalanga á leiðinni
milli Laugarbakka og Blöndu-
óss, sem margir sátu fastir í
bílum sínum. Farið var með
um 70 farþega í félagsheimilið
á Laugarbakka þar sem þeir
eyddu aðfaranótt mánudags-
ins, en talið er að tryggja hafi
þurft um 200 einstaklingum
gistingu víðs vegar á svæðinu
um nóttina. Fram eftir degi í
gær leit út fyrir að umræddir
einstaklingar þyrftu að eyða
annarri nótt fjarri heimilum
sínum en seinnipartinn í gær
fór veður hins vegar að ganga
niður og í kjölfarið var hægt að
opna ófæra vegi. Þegar Blaðið
ræddi við Hólmfríði Bjarna-
dóttur hjá Hvammstangadeild
Rauða krossins seinni partinn
í gær voru flestir þeir sem hún
vissi af þegar lagðir í hann.
Hún sagði að fram eftir degi
hefðu hinir veðurtepptu ferða-
langar tekið lífinu með ró og
stemmningin verið afslöppuð.
Hins vegar hefðu flestir verið
fegnir þegar vegurinn opnaðist,
enda aldrei skemmtilegt að
komast ekki ferða sinna.
KB banki:
Launakostn-
aður eykst
um 54%
Fyrstu níu mánuði ársins jókst
launakostnaður KB banka um
54%. Bankinn greiddi rúma 13
milljarða í laun á tímabilinu
en hækkunin skýrist fyrst
og fremst af fjölgun starfs-
manna hjá bankanum. Fjöldi
stöðugilda í lok september
var 2.307, en á sama tíma f
fyrra voru stöðugildin 1.538.
Kaupin á breska bankanum
Singer&Friedlander valda
mestri aukningu stöðugilda
en þar störfuðu 535 manns.
Topparnir grœða
Nýta sér kauprétt fyrir
hundruði milljóna
Fimm ára gamall kaupréttarsamningur sem KB-banki gerði við
starfsmenn sína skilar þeim nú himinháum fjárhœðum ígróða
Sjö yfirmenn í KB-banka nýttu sér
í gær kaupréttarsamning sem ger-
ir þeim kleift að kaupa hlutabréf í
bankanum á margfalt lægra gengi
en það mælist í dag. Með þessu eru
þeir að innleysa nánast samstundis
persónulegan hagnað upp á mörg
hundruð milljónir. f þessu skyni
tilkynnti bankinn 1 gær hækkun
á hlutafé um 3,8 milljónir þar sem
um 2,8 milljón hlutar munu seljast
á genginu 102,5 kr. á hlut og um ein
milljón á genginu 122 kr. á hlut.
Heildargróði um 780 milljónir
f tilkynningu frá Kauphöll fslands
í gær kom fram að sjö fruminnherj-
ar sem eru stjórnendur í Kaupþingi
banka hf. hafi ákveðið að nýta sér
kauprétt að hlutum í bankanum í
samræmi við kaupréttarsamninga
sem bankinn gerði við starfsmenn
sína árið 2000. Með þessum samn-
ingi fá þessir fruminnherjar rétt
til að kaupa hlutabréf á genginu
102,5 kr. en í dag mælist gengi hvers
hlutar á 599 kr.. Það er því ljóst að
fyrir hvern keyptan hlut hagnast
þessir fruminnherjar margfalt og
gróðinn skiptir í sumum tilfelfum
hundruðum milljóna. Einstakling-
arnir sem hér um ræðir eru þeir
Ármann Þorvaldsson, fráfarandi
framkvæmdastjóri, Bjarki H. Diego,
framkvæmdastjóri, Guðný Arna
Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri,
Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri,
Ingólfur Helgason, forstjóri á fs-
landi, Sigurður Einarsson, starfandi
Sigurður Einarsson:
Græðir 400 milljónir
stjórnarformaður og Steingrímur
Kárason, framkvæmdastjóri. Alls
keyptu þessir stjórnendur 1.558.680
hluti á genginu 102,5 en væru þeir
seldir í dag væri heildargróði þeirra
tæpar 780 milljónir.
Þrír kaupa langmest
Einstaklingarnir kaupa mismikið
en flesta hluti kaupa Sigurður Ein-
arsson, Hreiðar Már Sigurðsson og
Ingólfur Helgason. Sigurður nýtir
sér rétt til að kaupa 832.444 hluti
sem kostar hann rétt rúmar áttatíu
og fimm milljónir. Við sölu þessara
hluta, sé miðað við núverandi gengi,
mundi Sigurður því innleysa hagn-
að upp á rúmlega fjögur hundruð
Hreiðar M. Sigurðsson:
Græðir 200 milljónir
milljónir. Hreiðar kaupir 394.148
hluti á rúmar fjörutíu milljónir
miðað við gengið 102,5 en gæti selt
þá hluti í dag á tæpar 240 milljónir
með þá hagnað upp á tvö hundruð
milljónir. Ingólfur Helgason kaupir
120.740 hluti og hagnaður hans því
tæpar 60 milljónir. Fyrir tveimur
árum varð uppi fótur og fit í sam-
félaginu þegar það varð kunnugt
að Sigurður Einarsson og Hreiðar
Már Sigurðsson hefðu gert svipaðan
kaupréttarsamning og þeir eru nú
að nýta sér. Bankinn varð þá harð-
lega gagnrýndur m.a. af þáverandi
forsætisráðherra, Davíð Oddsyni,
sem í kjölfarið hætti viðskiptum við
bankann.
Opinber gjöld
Bankarnir greiða langmest
Þrír stærstu viðskiptabankarnir
greiddu nærri fimm milljarða í skatt
samkvæmt fréttatilkynningu sem
Skattstjórinn í Reykjavík sendi frá
sér í gær. Þar kemur einnig fram að
fimm stærstu skattgreiðendur á höf-
uðborgarsvæðinu greiða rúmlega
tíu milljarða í opinber gjöld.
Bankarnir í sérflokki
Það er launaafgreiðsla Fjársýslu rík-
isins sem greiðir hæst gjöld allra að-
ila eða rétt rúma fjóra milljarða en
á skattagrunnskrá Reykjavíkur eru
um 10.486 lögaðilar. Þar á eftir koma
bankarnir þrír: KB-banki með rúm-
lega 1,8 milljarða, Landsbankinn
með tæplega 1,8 milljarða og svo fs-
landsbanki með 1,3 milljarða. Spari-
sjóður Reykavíkur og nágrennis er í
20. sæti með um 140 milljónir. Sé ein-
ungis horft til fjármagnstekjuskatts
skipa bankarnir þrír þrjú efstu sæt-
in með alls fjóra milljarða og í fjórða
sæti er svo Landssíminn með rétt
rúmar sex hundruð milljónir. Lands-
síminn greiðir einnig hæstan eignar-
skatt í Reykjavík eða um 35 milljónir
og þar eftir kemur Mjólkursamsal-
an í Reykjavík með um 30 milljónir,
Sjóvá-Almennar með 17 milljónir og
svo Sparisjóður vélstjóra með rúmar
16 milljónir.
Toyota umboðið greið-
ir meira en Alcan
í Reykjanesumdæmi eru um 6.243
aðilar á skattagrunnskrá. Þar er
Actavis Group hf. efst á blaði og
með algera sérstöðu með tæpar sex
hundruð milljónir. Þar á eftir kem-
ur R Samúelsson, sem rekur Toyota
umboðið á íslandi, með um 216 millj-
ónir. Þá er Kópavogsbær í þriðja sæti
með um 214 milljónir og Varnarlið-
ið í Keflavík er í fimmta sæti með
um 208 milljónir. Athygli vekur að
Alcan, sem rekur álverið í Straums-
vík, er aðeins í tíunda sæti með um
143 milljónir í opinber gjöld.
Rjúpnaveiði
Snjór hamlar
veiðum
Mikil snjókoma hefur verið
víða á landinu undanfarna
daga. Ein afleiðing þess er
að rjúpnaskyttur hafa átt
erfiðara um vik en ella.
„Rjúpnaskyttur hafa því orðið
að hafa verulega fyrir því að
komast upp til fjalla eða þangað
sem fuglinn heldur sig,“ segir
til að mynda um málið á heima-
síðu verslunarinnar Útivist
og veiði. Þar segir ennfremur
að lítil sem engin rjúpnaveiði
hafi verið um síðustu helgi.
„Framundan er því snjóa-
mikill nóvembermánuður
sem mun gera rjúpnaskyttum
erfiðara um vik. Rjúpan fer í
kjarrlendi og víða er bannað
að veiða á slíkum stöðum
nema með leyfi landeigenda.
Þannig að ef fer sem horfir
með tíðarfarið þá verður ekki
veitt mikið af rjúpu þetta
haustið," segir ennfremur á
heimasíðu Útivistar og veiði.
Fangaflugvél CIA
Lenti á Kefla-
víkurflugvelli
Steingrímur J. Sigfússon
hefur lagt ff am íyrirspurn lil
utanríkisráðherra í sambandi
við fangaflug bandarísku
leyniþjónustunnar. Bandaríkja-
stjórn hefur setið undir harðri
gagnrýni fyrir að flytja grunaða
hryðjuverkamenn til landa þar
sem pyntingar eru leyfðar. Til
þess eru þeir taldir hafa notað
sérstakar þotur sem gengið
hafa undir nafninu „drauga-
flugvélarnar” í norrænum
fjölmiðlum en þar hefur málið
vakið mikla atljygli. Fréttastofa
útvarps greindx frá því í gær að
samkvæmt upplýsingum frá
Flugmálastjórn hafi þess háttar
vél lent á Keflavíkurflugvelli
í mars sl.. Þetta samræmist
svörum danska utanríkisráð-
herrans sem svaraði svipaðri
fýrirspurn og Steingrímur
J. hefur lagt fram, á danska
þinginu. Utanríkisráðherrann
danski staðfesti að vél hefði
lent á Kastrup flugvelh í mars
og verið á leið til Keflavíkur.
^ÍSLANDS MÁLNING
afsláttur
af öllum málningarvörum
BIORA INNIMÁLNING FRÁ TEKNOS
V l\lý tegund almattrar veggjamáln-
ingar sem hefur mikla þvottheldni
V' Þolir yfir 10000 burstastrokur
skv. SFS 3755 staðlinum
•f Gæðastöðluð vara á góðu verði
ÍSLANDSMÁLNING • Sími 517 1500 • Vömhús / verslun Sætúni 4
O Heiðsklrt 0 Léttskýjað Skýjað ® Alskýjað
. Rigning, litilsháttar ý/ý Rlgning ? J Súlð
'T* Snjókoma y-j Slydda Snjóél r—j skúr
Amsterdam
Barcelona
Berlin
Chicago
Frankfurt
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Mallorka
Montreal
NewYork
Orlando
Osló
París
Stokkhólmur
Þórshöfn
Vín
Algarve
Oublin
Glasgow
14
20
12
06
14
15
06
11
11
15
23
10
10
17
09
14
09
08
10
15
11
10
-3°?
/>
*
-2°
*
*
Slydda ^ Snjóél ;
<K *
-2'
-2°
Breytileg
2'
Veðurhorfur í dag kl: 18.00
Veðursíminn
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands
2\
-3° :j; 'l'
A morgun
✓ / 1'
/ /
✓ '